29.04.1975
Sameinað þing: 70. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3423 í B-deild Alþingistíðinda. (2520)

244. mál, aðild Íslands að háskóla Sameinuðu þjóðanna

Fyrirspyrjandi (Sigurður Blöndal) :

Herra forseti. Ég þakka hæstv. menntmrh. fyrir svör hans við þessari fsp. en ég sé það af þeim að málið er vissulega til umræðu og umfjöllunar í hans rn., en jafnframt er ljóst að það er langt í land að nokkrar ákvarðanir verði teknar. En það, sem ég vildi leggja áherslu á hér, er að ákvarðanir dragist ekki það lengi að við missum af strætisvagninum. Ég veit ekki, t. d. í sambandi við haf- og fiskirannsóknir, hvaða áhrif það kann að hafa að smáríki eins og Malta bauð þegar fram í upphafi aðild sinnar alþjóðlegu Hafrannsóknastofnunar að háskólanum, hvort það getur haft einhver áhrif á hugsanlega aðild Hafranasóknastofnunarinnar hér. Þetta er mál sem verður sjálfsagt kannað. En höfuðatriðið er að halda þessu máli vel vakandi því að ég held að það geti verið, eins og ég reyndi að setja fram rök fyrir í grg., að þetta sé mál sem við getum haft mjög góðan hag af og geti líka verið þáttur í framlagi okkar til aðstoðar við þriðja heiminn.