29.04.1975
Sameinað þing: 71. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3425 í B-deild Alþingistíðinda. (2524)

249. mál, tekjustofnar sýslufélaga

Jóhannes Árnason:

Herra forseti. Till. sú til þál. á þskj. 474, sem ég hef leyft mér að flytja hér ásamt hv. 4. þm. Vesturl., er í því fólgin að Alþ. álykti að skora á ríkisstj. að gera nú þegar ráðstafanir til að auka tekjur sýslufélaga svo að þeim verði gert kleift að sinna lögboðnu hlutverki og aðkallandi viðfangsefnum. Hin aukna tekjuöflun, sem till. gerir ráð fyrir, beinist því aðallega að tvennu: Í fyrsta lagi að gera sýslufélögum kleift að sinna því hlutverki sem þeim hefur þegar verið falið samkv. gildandi lögum og í öðru lagi að gera þeim kleift að sinna ýmsum þeim verkefnum sem telja verður aðkallandi fyrir viðkomandi hérað og horfa til framfara og heilla fyrir íbúa þess.

Um hin lögboðnu verkefni sýslufélaga má vísa til 92. gr. sveitarstjórnarlaga og er gerð nánari grein fyrir því í grg. þeirri er till. fylgir. Kemur þar fram að sýslunefndir eigi að hafa eftirlit með fjármálum sveitarfélaganna, endurskoðun og úrskurðum ársreikninga þeirra svo og allra fyrirtækja sem rekin eru á vegum hreppanna; enn fremur umsjón með því að hreppsnefndirnar starfi yfirleitt í sveitarstjórnarmálum gagnvart gildandi lögum og reglugerðum; enn fremur að annast umsjón og stjórn vegamála samkv. vegal. og sýsluvegasamþykktum. Þá eiga sýslunefndir að setja ýmsar reglugerðir og samþykktir er gilda fyrir allt umdæmið og hafa eftirlit með framkvæmd þeirra, t. d. að því er varðar fjallskil og notkun afrétta. Sýslunefnd hefur afskipti af forðagæslu samkv. lögum um búfjárrækt og annast eftirlit með hundahaldi og greiðir hluta af kostnaði við eyðingu refa og minka. Sýslunefndir annast ráðningu ljósmæðra og greiða hluta af launum þeirra, tilnefna hreppstjóraefni, og auk þess er víða í lögum gert ráð fyrir aðild og afskiptum sýslunefnda af ýmsum málum á þann veg að því fylgja einhver útgjöld. En síðan segir svo í 92. gr. sveitarstjórnarlaga, að sýslunefndir láti uppi álitsgerðir um mál er varða einstaka hreppa og sýsluna, enda skal engu slíku máli til lykta ráðið fyrr en álitsgerðar sýslunefndar hefur verið leitað. Þá fara sýslunefndir með stjórn allra sveitarstjórnarmála er varða sýsluna í heild svo og till. um hvað eina er verða má sýslunni til gagns eða til að afstýra bjargarskorti eða hallæri.

Í þessum síðustu greinum segir býsna mikið eða það spannar yfir býsna mikið ef þær eru krufnar til mergjar. Auk hinna lögboðnu verkefna tel ég að sýslunefndum beri að hafa afskipti af framfaramálum er varða sýsluna í heild og heppilegt þykir að leysa sameiginlega fyrir viðkomandi svæði. Er hér um að ræða þá málaflokka sem hinar minni einingar er mynda sýslufélagið, þ. e. a. s. hrepparnir, geta ekki leyst einir út af fyrir sig af fjárhagslegum ástæðum þar sem ekki er grundvöllur fyrir viðkomandi starfsemi í þeim hreppi og ekki er heldur skynsamlegt af þjóðhagslegum ástæðum að leysa á þann veg. Kemur sýslunefndin þá fram sem nokkurs konar samnefnari fyrir þá hreppa sem eru á svæðinu og mynda sýslufélagið lögum samkvæmt. Þetta hafa fjölmargar sýslunefndir gert um langt árabil og hefur þetta fyrirkomulag yfirleitt gefið góða raun. Þeir málaflokkar, sem hér um ræðir, eru fyrst og fremst framkvæmdir sem ríkið og sveitarfélögin leysa sameiginlega samkv. lögum. Má þar nefna menntamál, skólabyggingar, sjúkrahús, læknisbústaði o. fl. á sviði heilbrigðismála, dvalarheimili aldraðra og jafnvel hafnarframkvæmdir og vatnsaflsvirkjanir. Enn fremur hafa sýslusjóðir átt þátt í lausn atvinnumála, beitt sér fyrir byggingu safnahúsa fyrir bókasöfn og fleiri söfn sem ætluð eru fyrir allt svæðið. Í sumum tilvikum hafa tvö sýslufélög eða fleiri eða sýsla og kaupstaður haft samstarf við lausn slíkra mála þar sem það hefur þótt við eiga. Þá hafa sýslusjóðir veitt fjárhagslegan stuðning til ýmiss konar menningar- og líknarmála í héraðinu, svo sem leiklistarstarfsemi, söngstarfsemi, íþrótta, skógræktar, náttúruverndar, kaupa á sjúkrabifreiðum og rekstrar þeirra og sömuleiðis snjóbifreiða. Svo mætti lengi telja, en þetta verður látið nægja.

Augljóst má vera að til að leysa þessi héraðsmál þurfa sýslusjóðir á verulegu fjármagni að halda og því er till. á þskj. 474 um auknar tekjur sýslufélaga, sem hér er til umr., flutt. Í 101. gr. sveitarstjórnarlaga segir að því, sem á vantar að tekjur sýslusjóðs hrökkvi fyrir útgjöldum, skuli jafnað niður á hreppana og er þá átt við hin svokölluðu sýslusjóðsgjöld. Samkv. því gera lög ráð fyrir að sýslufélög hafi aðra tekjustofna til að byggja á, en síðan á aðeins að jafna niður sýslusjóðsgjaldinu til að ná saman endum. Enda þótt nokkur sýslufélög kunni að hafa einhverjar aðrar tekjur þá er það svo í reynd að sýslusjóðsgjaldið er aðaltekjustofn flestra sýslufélaganna. Er þar um að ræða framlög hreppanna til að standa straum af hinum sameiginlegu útgjöldum og þeim er jafnað niður eftir ákveðnum reglum. Um sérstakan almennan tekjustofn sýslufélaga er ekki að ræða.

Í till. sjálfri er ekki bent á sérstaka leið til lausnar á þessu máli en í grg. er bent á hluta af söluskatti sem þá væri eðlilegast að gengi í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga og skiptist á milli sýslufélaga eftir nánar ákveðnum reglum. Einnig mætti hugsa sér að Byggðasjóður kæmi þarna til greina og ákveðinni upphæð eða prósentu af ráðstöfunarfé sjóðsins yrði árlega ráðstafað til sýslufélaga til opinberra framkvæmda í héraðinu, enda yrði við skiptingu þess fjár á milli sýslufélaganna þess vandlega gætt að fénu yrði ráðstafað í samræmi við hlutverk Byggðasjóðs, en hlutverk Byggðasjóðs er einmitt að stuðla að jafnvægi í byggð landsins með því að veita fjárhagslegan stuðning til framkvæmda og eflingar atvinnulífs með hliðsjón af landshlutaáætlunum og til að bæta aðstöðu til búsetu í einstökum byggðarlögum og koma í veg fyrir að lífvænlegar byggðir fari í eyði. Ég álít að það beri að líta á sýslufélögin sem umdæmi er heppilegt sé að leysi ákveðin verkefni sveitarstjórna og að þýðing þeirra muni fara vaxandi í framtíðinni. Í mínum huga er efling sýslufélaganna fjárhagslega, svo sem rakið hefur verið, með hluta söluskatts eða framlagi úr Byggðasjóði, nema hvort tveggja kæmi til, því í sjálfu sér liður í byggðastefnu, tilfærsla á valdi, þ. e. valddreifing út í héruðin. Að mínu áliti hlýtur meginkjarninn í sannri byggðastefnu að vera sá að dreifa valdinu í þjóðfélaginu út í héruðin til sveitarstjórnanna, enda fái þær jafnframt til umráða hæfilegt fjármagn til að leysa þau verkefni sem nauðsyn krefur og almannaheill í byggðum landsins kallar á miðað við aðstæður á hverjum stað og tíma.

Í framhaldi af þessu vil ég víkja nokkrum orðum að umdæmaskipan landsins með tilliti til sveitarstjórna sem stjórnvalda og byggðastefnu í því sambandi. Óþarft er að rekja sögulega hlið þessa máls. Öllum er kunnugt um langa sögu hreppa og sýslufélaga og á síðari áratugum kaupstaða í stjórnkerfinu. Ég tel að skortur á stækkun sveitarstjórnarumdæma og þéttbýlismyndun víðs vegar um landið hafi á liðnum ártugum í mörgum tilvikum staðið eðlilegri byggðaþróun fyrir þrifum. Það hefur skort hæfilega stór umdæmi er fengju umráð yfir nægilegu fjármagni til að leysa þau samfélagslegu mál sem leysa verður með sameiginlegu átaki úti á landsbyggðinni til að byggja þar upp undir stjórn heimaaðila.

En hvað er þá byggðastefna og hvernig verður hún best framkvæmd? Hér sem víðar er auðvitað spurning um leiðir að markmiði. Ég efast ekki um að þeir flokkar, sem standa að núv. stjórnarsamstarfi, vilji báðir vinna að framkvæmd byggðastefnu — enda yfirlýst í stjórnarsáttmálunum — til að koma í veg fyrir fólksflótta úr sveitum og þróttmiklum sjávarplássum og kaupstöðum úti á landi til höfuðborgarsvæðisins, enda virðist vera svo að það sjónarmið eigi stöðugt vaxandi fylgi að fagna með landsmönnum. Í byggðamálum á Íslandi þarf að gera stórátök á næstu árum. En hvaða leiðir á þá að fara? Er það t. d. rétt stefna að samþjappa valdi yfir öllu því fjármagni, sem verja á til framkvæmda byggðastefnu úti um land, í eina stofnun í höfuðborginni? Ég held varla. Þvert á móti tel ég að það eigi í framtíðinni að tengja þær aðgerðir, sem gera þarf í byggðamálum, héruðunum sjálfum meira en gert hefur verið með því að færa til stjórnvalda úti um landsbyggðina ráðstöfunarrétt yfir meira fjármagni í þágu byggðamála. Það þarf m. ö. o. að auka sjálfstjórnarrétt sveitarfélaganna í sambandi við þá málaflokka er lúta að byggðamálum eins og ég hef rakið hér að framan.

En nú kann einhver að spyrja: Hvers vegna að fara að efla sýslufélögin fjárhagslega nú svo sem þáltill. gerir ráð fyrir? Er ekki einfaldlega hægt að leggja allar sýslunefndir í landinu niður og fela landshlutasamtökum sveitarfélaga og hinum ýmsu rn. að annast verkefni þeirra? Ég vil leyfa mér að halda því fram að heppilegustu einingarnar í sveitarstjórnarmálum og héraðamálum, miðað við núverandi aðstæður, séu kaupstaðirnir og sýslurnar að því er varðar sameiginleg mál umdæmisins, sem fara stöðugt vaxandi, en síðan hefur hver hreppur auðvitað með sín staðbundnu mál að gera svo sem verið hefur. Kaupstaðirnir eru nú 19 með Reykjavík, sýslurnar eru 23 með rúmlega 200 hreppa innan sinna marka. Meðalíbúafjöldi í sýslum og kaupstöðum utan Reykjavíkur mun vera rúmlega 9000 íbúar. Í sumum tilvikum kemur til álita að sameina sýslufélög. Kemur þetta einkum til greina ef eitthvað yrði úr sameininga hreppa og þar með fækkun þeirra, sbr. um það atriði lög frá 1970 um sameiningu sveitarfélaga. En sannleikurinn er bara sá að öll þróun í þessum efnum hlýtur að verða hægfara og eðlilegast er að frumkvæðið komi heiman að, en ekki samkv. valdboði ofan frá. En það er annað sem gera mætti og það er að gera sýslunefndirnar virkari og auka tengsl þeirra við hreppsnefndirnar. Í því sambandi finnst mér að til álita geti komið að oddvitar hreppanna eigi stöðu sinni samkvæmt sæti í sýslunefndinni auk fulltrúa sem kjörnir yrðu samkv. ákveðnum reglum þar sem tekið yrði tillit til stærðar þeirra hreppa er sýslufélagið mynda. Með þessu móti finnst mér að sýslunefndin komi fram, auk þess að vera stjórnvald, jafnframt sem nokkurs konar samstarfsnefnd hreppanna um sameiginleg málefni sín á hverju svæði.

Herra forseti. Ég fer nú að stytta mál mitt. Ég vil aðeins að lokum leggja áherslu á mikilvægi þeirra mála sem ég hef gert hér að umtalsefni, þ. e. héraðamála og byggðamála, og framkvæmdar þeirra.