29.04.1975
Sameinað þing: 71. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3433 í B-deild Alþingistíðinda. (2532)

231. mál, alþingismenn gegni ekki öðrum fastlaunuðum störfum í opinberri þjónustu

Flm. (Sigurður Blöndal):

Herra forseti. Ég hef ásamt hv. 7. landsk. þm. flutt á þskj. 472 till. til þál. um að alþm. gegni ekki öðrum fastlaunuðum störfum í opinberri þjónustu — sem hljóðar svo:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að undirbúa lög og reglur sem feli í sér að alþm. sitji ekki í fastlaunuðum embættum eða störfum á vegum hins opinbera.“

Hér er enn á ný flutt mál sem við þessir sömu fluttum á árinu 1972 og varðar þrjú meginatriði: Í fyrsta lagi nýtingu starfskrafta alþm., í öðru lagi fordæmi fyrir alla opinbera þjónustustarfsemi um það að sinna skyldunni og rækja af samviskusemi það starf, sem þeir eru launaðir til, og í þriðja lagi mál, sem varðar virðingu Alþingis.

Árið 1971 urðu verulegar breytingar á launakjörum alþm. Laun þeirra hækkuðu svo mikið að þeir eru nú launaðir eins og ýmsir þeir embættismenn þjóðarinnar sem gegna hinum ábyrgðarmestu störfum. Breytingin fól í sér viðurkenningu á því að þingmennska væri starf sem launa bæri sómasamlega, enda er það skoðun, sem ýmsir reyndustu þm. hafa haldið fram, að starfið á Alþ. og sambandið við kjósendur í kjördæmunum sé orðið svo umfangsmikið að meira verði ekki af mönnum krafist ef leysa eigi það bærilega af hendi.

Þótt þetta tvennt, sjálf launakjör þm. og matið á starfi þeirra, hafi breyst, er annað óbreytt. Opinberir starfsmenn og embættismenn geta eftir sem áður gegnt störfum sínum í orði kveðnu og tekið fyrir allt að 60% launa og aldrei minna en 30% af launum. Augljóst er að þessi skipan mála er ekki sæmandi. Menn gegna ekki tveimur ábyrgðarmiklum störfum, sem þeir taka fyrir laun þótt skert séu, með fullum afköstum.

Mér er ákaflega minnisstætt þegar ég sat sem þingskrifari í þessum sal fyrir 29 árum við borð sem þá var á sama stað og ræðupúltið sem ég stend nú á og skrifaði upp ræðu sem Gísli heitinn Jónsson, þáv. formaður fjvn., var að halda og lét svipu vandlætingar sinnar ganga á þeim opinberu starfsmönnum, þeirra á meðal alþm., sem voru að vasast í alls konar störfum sem þeir tækju full laun fyrir á hverjum stað með þeim afleiðingum að öll störfin yrðu meira og minna kák. Við 2. umr. fjárl. fyrir árið 1948 komst Gísli Jónsson svo að orði með leyfi hæstv. forseta:

„Hæstv. fjmrh. hélt því fram — og það er eitt af því sem ég vil ekki láta mótmælalaust að sú lækkun, sem fjvn. hefur gert á mörgum liðum, væri sjálfsblekking. Ég veit ekki hvort hv. þm. hafa gert sér það ljóst að fjvn. hefur lækkað útgjaldaliðina um 2 millj. kr. og það verður að skera einhvers staðar niður til þess að ná þeim árangri. Vil ég í því atriði benda á stórt atriði: Það er ein stofnun hér í bæ sem rekin er algerlega á ríkisins kostnað. 4 hæstlaunuðu menn þeirrar stofnunar taka full laun fyrir utan þessa stofnun og eru það svo há laun að þeir eru með allra hæst launuðu mönnum í landinu. Ég verð að segja það að það er full ástæða til þess að athuga hvort það sé nokkur nauðsyn fyrir ríkissjóð að styrkja þessa stofnun að því leyti sem halda þarf uppi fjórum dýrum starfskröftum, því að ef þeir hafa tíma til þess að vinna á fullum launum annars staðar, þá hafa þeir naumast tíma til þess að vinna á fullum launum hjá þessari stofnun og væri þá full ástæða til þess að draga þar úr fullum launum þeirra. Mér er það ljóst að þar sem reynt hefur verið að spara, hlýtur það að valda einhverjum sársauka. Ég hef ekki haft frið síðan nál. kom út um að það mætti ekki lækka eða fella niður þetta eða hitt. Menn hafa staðið hér stundum á göngunum niðurdregnir og hálfgrátandi út af því, hvers vegna liðir þeim viðkomandi hafi verið lækkaðir eða felldir niður. En það er ekki af því að fjvn. vilji vera með neinar persónulegar árásir á þessa menn sem hún hefur lækkað eða fellt niður liði þeim viðkomandi heldur vill fjvn. undirstrika það að eftir að búið er að veita mönnum sæmileg lífskjör, þá á að heimta af þeim vinnu. Menn geta tekið hér fjórföld laun hjá ríkinu án þess að gera skyldu sína, og væri gaman að sjá lista yfir þá menn sem hafa a. m. k. 80–90 þús. kr. kaup frá ríkinu frá a. m. k. 4–5 stofnunum. Ef það á að halda svona áfram á þeirri braut, þá er niðurskurðurinn blekking. En ef það er gert að veruleika að takmarka laun þessara manna, þá þarf niðurskurðurinn ekki að vera blekking.“

Hér lýkur þessari tilvitnun í ræðu Gísla heitins Jónssonar,

Starfið á Alþ., sem hið nýja launakerfi viðurkennir að sé fullt starf, eða hið opinbera þjónustustarf eða embættisverk hlýtur að líða fyrir þetta fyrirkomulag nema hvort tveggja gjaldi þess. Mörg dæmi mætti nefna sem sanna að störf á Alþ. hafi tafist af því að þm. var önnum kafinn í hinu starfi sínu einhvers staðar í borginni. Alþ. er hér sjálft að leggja blessun sína yfir slæm vinnubrögð í hinum þýðingarmeiri störfum. Það er alkunna að sumir hv. alþm. gegna einmitt mjög háum ábyrgðarstöðum í opinberri þjónustu. Það er að sjálfsögðu óskiljanlegt, meira að segja slíkum dugnaðarforki eins og Gísli heitinn Jónason var, hvernig þeir fá rækt slíkt með sæmd samhliða þingmannsstarfi sem nú krefst fullkomins vinnudags og raunar miklu meira en það, svo sem hv. formaður þingfararkaupsnefndar lýsti á áhrifamikinn hátt fyrir alþjóð í minnisstæðum sjónvarpsþætti í vetur, og lét hann þó ógert að lýsa hve langur vinnudagurinn yrði þegar ofan á bættist að gegna þó ekki væri nema 60% af skyldu við eitt meiri háttar starf fyrir ríkið. Sjálfur hefði hann trúlega getað gefið slíka lýsingu. Það er auðvitað ljóst að þessi háttur eykur eigi virðingu löggjafarsamkomunnar. Hann á einmitt þátt í því hvernig hún hefur rýrnað.

Sú spurning kann að vakna hvort sú skipan, sem till. felur í sér, kunni ekki að leiða til þess að menn í opinberri þjónustu fælist frá því að gefa kost á sér til þingmennsku. Ég held að allir séu sammála um að til þess mætti ekki koma. Það verður að telja eðlilegt og raunar sjálfsagt að þessir menn haldi fyrri störfum sínum formlega og geti tekið til við þau að þingsetu lokinni og þeim sé jafnvel að öðrum kosti gefin einhver trygging fyrir því að fá a. m. k. sambærilega launuð opinber störf og þeir áður gegndu. Við teljum þó að tvær undantekningar ættu að vera frá þessu: Dómarar og bankastjórar, sem bjóða sig fram til Alþ., ættu að segja starfi sínu lausu. Við teljum ekki hæfa að menn í þessum tveimur störfum taki þátt í kosningabaráttu. Óhjákvæmilegt væri þó að setja tímatakmörk á það hve lengi mætti geyma opinbert starf fyrir alþm. Stysti tíminn væri eitt kjörtímabil sennilega og trúlega væri lengsti tími tvö. Þetta er auðvitað matsatriði.

Í nánum tengslum við þetta mál er staða ráðh. sem jafnframt eru alþm. Enda þótt þeir haldi óskertu þingfararkaupi auk ráðherralauna, taka þeir ekki þátt í nefndastörfum á Alþ. sem vissulega eru gildur þáttur þingmennskunnar. Það er skoðun flm. að íslendingar ættu að taka upp þann hátt sem á er hafður í Noregi, að ráðh. víki úr þingsæti, en varamaður taki sæti meðan ráðherradómur hans stendur. En auðvitað verður ráðh. eftir sem áður að hafa rétt til að sitja á þingfundi og taka þátt í umr. eftir því sem hann telur þörf á og sú skipan er einnig höfð á í norska Stórþinginu. Þessi breyting á skipan mála gæti líka réttlætt endurskoðun á launakjörum ráðh. sem vitaskuld eiga að hafa hin hæstu laun svo sem ábyrgð starfsins og erfiði gefa tilefni til.

Loks viljum við vekja athygli á einu atriði í sambandi við störf alþm. Um leið og þetta er orðið heils árs starf, þá er ástæða til að nýta starfskrafta þeirra betur en gert hefur verið og stuðla jafnframt að því að þeir geti rækt þau af meira innsæi en verið hefur til þessa. Hér höfum við í huga þann hátt sem tíðkaður er víða um lönd að fastanefndir löggjafarþings starfi í þinghléum, m. a. með því að fara á vettvang víðs vegar um landið til þess að kynnast af eigin raun þeim málum og viðfangsefnum sem þær eiga að fjalla um. Þetta gæti líka verið gagnlegt til þess að vega upp á móti því sérfræðingaveldi sem ýmsir hafa haft áhyggjur af í seinni tíð. Í nýjum vinnubrögðum þm. af þessu tagi fælist sú grundvallarbreyting á starfi fastanefnda Alþ. að þær ættu sjálfar frumkvæði að málum í stað þess, sem tíðkast hefur, að þær taki aðallega við því sem að þeim er rétt. Að okkar hyggju mundi sú skipan mála, sem við höfum hér hreyft, stuðla að aukinni virðingu Alþ. og enn fremur hinn, að löggjafarsamkoman beri betur nafn með rentu en fyrr.

Ég legg til að málinu verði vísað til allshn.