02.05.1975
Sameinað þing: 73. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3499 í B-deild Alþingistíðinda. (2632)

88. mál, landmælingastjórn ríkisins

Frsm. (Ellert B. Schram) :

Herra forseti. Á þskj. 96, 88. mál, er borin fram till. til þál. um landmælingastjórn ríkisins, svo hljóðandi:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að láta semja frv. til l. um landmælingastjórn ríkisins. Til þess að semja frv. skal ríkisstj. skipa n. 5 manna. Skal einn tilnefndur af Rannsóknaráði ríkisins, einn af Dómarafélagi Íslands, einn af Sambandi ísl. sveitarfélaga og einn af Verkfræðingafélagi Íslands. Formaður n. skal skipaður án tilnefningar. Með samningu frv. skal m. a. að því stefnt að undir landmælingastjórn heyri stjórnun þríhyrningamælinga á Íslandi og hæðamerkjakerfisins, kortamælingar og kortaútgáfa ríkisstofnana, lóða-, landa- og jarðamarkamælingar. N. hraði svo störfum að frv. um þetta efni verði lagt fyrir næsta reglulegt Alþ. Kostnaður við störf n. greiðist úr ríkissjóði.“

Í grg. með þessari till. er bent á að tilgangur till. sé að samræma aðgerðir þeirra aðila á vegum ríkisins sem fást við landmælingar. Fram kemur að í dag starfa að þessum verkefnum 5 ríkisstofnanir, þ. e. a. s. Landmælingar Íslands, Landsvirkjun, Orkustofnun, Skipulag ríkisins og Vegagerð ríkisins. Engin lög eða reglur eru til um það hvernig framkvæma eigi þessar mælingar svo að þær komi að sem viðtækustum notum og geti fengið almennt og viðurkennt gildi. Fram er tekið í grg. að ekki sé átt við að sett sé á fót stofnun sem framkvæma eigi þessar mælingar heldur verði um það að ræða að aðgerðir séu samræmdar svo að fjármunum verði ekki kastað á glæ, heldur fáist full nýting af útlögðu fé.

Hv. allshn. Sþ. hefur haft þessa till. til meðferðar, vísað henni til umsagnar og fengið jákvæðar umsagnir, og með hliðsjón af grg., röksemdum, sem þar koma fram, og umsögnum sem borist hafa, mælir n. með því að þessi till. til þál. verði samþ.