02.05.1975
Sameinað þing: 73. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3501 í B-deild Alþingistíðinda. (2637)

110. mál, nefndarskipan um áfengismál

Frsm. (Ellert B. Schram) :

Herra forseti. Til allshn. Sþ. hafa borist tvær till. til þál. Í fyrsta lagi er þar um að ræða till. á þskj. 47 um afnám vínveitinga á vegum ríkisins og í öðru lagi till. á þskj. 131 um nefndarskipan um áfengismál, og það er sú till., sem hér er nú á dagskrá og til umr. Þess er og að geta að brtt. hefur verið lögð fram á þskj. 84 við till. til þál. um afnám vínveitinga á vegum ríkisins, brtt. frá hv. þm. Benedikt Gröndal. Þessi mál eru í eðli sínu skyld, þar sem þau bæði fjalla um baráttuna gegn áfengi og áfengisneyslu, og því eðlilegt að þau séu rædd í nokkru samhengi. Bið ég hv. Sþ. um að virða það við mig þótt ég blandi því nokkuð saman, enda kemur það fram í nál. um þá till., sem hér er til umr. nú, að n. gerir að nokkru leyti sameiginlegt álit vegna þessara till. beggja.

Það er sameiginlegt álit nm., að baráttan gegn áfengisbölinu eigi skilið fullan stuðning af hálfu Alþ. og raunar eðlilegt að gerð sé krafa um forustu af þess hendi í aðgerðum og í fjárveitingum til þessarar varnarbaráttu. Það er samdóma álit n. að sú ógæfa, sem leiðir af óhóflegri áfengisneyslu, verði ekki í peningum mæld og það sé skylda fjárveitingavaldsins og stjórnvalda að styðja dyggilega við bakið á þeim aðilum í þjóðfélaginu sem vilja sporna gegn þessari ógæfu, gegn óhóflegri áfengisneyslu. Í nál. kemur fram að n. lítur aðdáunaraugum til þess starfs sem ýmis frjáls samtök heyja í þessu skyni, og n. telur að með góðu fordæmi, hvatningu og liðveislu geti þingið komið enn frekar til stuðnings þessum samtökum.

N. tekur fram að það hafi vakið verðskuldaða athygli þegar hæstv. menntmrh. ákvað að veita ekki áfenga drykki í þeim móttökum og samsætum sem hann býður til, og það er mat margra að sú ákvörðun sé til eftirbreytni fyrir aðra ráðh. Hins vegar telur n. ekki rétt að setja ráðh. fyrirmæli í þessu efni, heldur sé eðlilegt að þeir hafi fordæmi hæstv. menntmrh. í huga og reyni þannig að haga veitingum sínum svo að til sóma sé. Það er hins vegar mat n. að boð eða bönn í þessum efnum stoði skammt, sérstaklega þegar um er að ræða ákvarðanir af þessu tagi sem ekki spanna yfir þetta vandamál í heild sinni né heldur koma við kjarna þessa máls, til þess að uppræta óhóflega áfengisneyslu og til þess að draga úr henni almennt þurfi til að koma skipulegur áróður og starf sem mótað gæti almenn viðhorf og afstöðu borgara, ekki síst unglinga. Að því leyti er þetta viðfangsefni miklu víðtækara og þarf að taka öðrum tökum en svo að setja einstökum aðilum reglur um veitingar eða tilhögun í sínum samsætum.

Ég vil vekja athygli á því að þessar till., sem ég hef gert hér að umræðuefni, eru bornar fram af nokkurn veginn sömu hv. þm., 4 af 5 flm. eru þeir sömu að báðum till. Sú till., sem hér er til umr. nú, er að því leyti víðtækari að hún gerir ráð fyrir því að það sé skipuð n. manna sem hafi það verkefni að gera úttekt á stöðu áfengismálanna í dag og gera heildartill. í þeim efnum sem til úrbóta geti orðið. Þess vegna er það niðurstaða n. að rétt sé að vísa till. um afnám vínveitinga á vegum ríkisins til athugunar hjá ríkisstj. án þess að frekari afstaða sé tekin til hennar að svo stöddu, a. m. k. á meðan þingið styður nefndarskipun sem skoðar þessi mál með viðtækari hætti. N. hefur því komist að þeirri niðurstöðu að mæla með samþykkt till. til þál. á þskj. 131, 110. máli, með þeirri breytingu að 2. mgr. breytist og þá hljóði till. svo, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að kjósa nú þegar n, manna er hafi það verkefni að gera úttekt á stöðu áfengismálanna í dag sérstaklega með tilliti til hrikalegra afleiðinga af ofneyslu áfengis sem hvarvetna blasa við.

N. skal leitast við að gera till. til úrbóta, hún skal hraða störfum sem mest og leggja bráðabirgðaálit og till. fyrir þingflokkana næsta reglulegu Alþ.

N. skal skipuð 5 mönnum eftir tilnefningu hvers þingflokks.“

Ég sé ekki, herra forseti, ástæðu til þess að fjölyrða frekar um þetta mál eða þetta álit n. Ég álít að hér sé á ferðinni mál sem allir séu sammála um að þurfi að takast á við með myndarlegum hætti og þetta gæti orðið upphafið að því, að svo yrði, með því að samþykkja þessa nefndarskipun.