02.05.1975
Sameinað þing: 73. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3502 í B-deild Alþingistíðinda. (2638)
110. mál, nefndarskipan um áfengismál
Sigurlaug Bjarnadóttir:
Herra forseti. Ég hef í umr. um þær tvær till., sem hv. frsm. allshn. gerði hér grein fyrir, áður tjáð mig um þær og mun ekki endurtaka það hér, en aðeins í örfáum orðum láta í ljós það álit mitt, að Alþ. hafi
hingað til ekki staðið myndarlega við framkvæmdir og raunhæfar aðgerðir að áfengisvarnarmálum og aðgerðir fyrir þá einstaklinga sem hafa þarna orðið mikilli ógæfu að bráð.
Það er nú svo að góður hugur, falleg orð og jákvæðar yfirlýsingar í þessu efni hafa ósköp lítið að segja. Okkur vantar fé úr sameiginlegum sjóði landsmanna til þess að gera eitthvað sem að gagni geti komið, og það hefur jafnan farið svo þegar till. hafa komið fram á Alþ. sem miða að því, að þá hafa þær ekki náð fram að ganga. Ég nefni till. um ákveðið prósent af ágóða af áfengissölu ríkisins, sem rynni í svokallaðan gæsluvistarsjóð. Hugmynd um það hefur aldrei náð nægilegu fylgi á Alþ. til þess að hún fengi endanlega og jákvæða afgreiðslu. Ég vil einnig minna á að fyrir hv. Alþ. liggur till. frá Oddi Ólafssyni nú um 100 kr. sem sérstaka álagningu á sterkt vín. Þetta á, að því er ég skil, ekki að þýða skertar tekjur ríkissjóðs af áfengissölu svo að það hefur ekki þurft að hræða Alþ. frá að samþykkja hana. Mér skilst að þessi till. muni ekki ná fram að ganga hér og ég harma það mjög.
Ég vil taka undir þau orð hv. frsm. allshn. að við þurfum að takast á af myndarskap við áfengisvandamálið eins og það er í okkar þjóðfélagi í dag en það verður ekki gert með því að láta þær aðgerðir aðeins í ljós með fallegum orðum og jákvæðum yfirlýsingum. Okkur vantar peninga til þess að framkvæma það sem framkvæma þarf í þessum efnum. Hinu vil ég ekki gera lítið úr, að almenningsálitið, hver einstaklingur, hefur þarna mikið að segja og þar koma ekki fjárframlög Alþ. til, heldur hugarfar fólksins sjálfs. En ég verð því miður að láta í ljós óánægju mína með það hve hv. Alþ. hefur sinnt þessum málum lítið í raun.