26.11.1974
Sameinað þing: 12. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 371 í B-deild Alþingistíðinda. (268)

9. mál, lántaka fyrir Hafnabótasjóð

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Áð undanförnu hefur samgrn. átt viðræður við Byggðasjóð og Framkvæmdasjóð um fjármál hafna. Þessar viðræður hafa leitt til þess að till. hafa verið lagðar fyrir Byggðasjóð um að gefnar verði eftir um 37 millj. kr. af kröfum hans, og samið hefur verið um að Hafnabótasjóður láni 32.5 millj. kr. og taki lán í því skyni hjá Framkvæmdasjóði. Þá eru og til meðferðar í fjmrn. tilmæli samgrn. um að Ríkisábyrgðasjóður taki að sér til bráðabirgða að greiða skuldir að upphæð 5.3 millj. kr.

Hér er því um að ræða lán og styrkveitingar að upphæð 75 millj. kr. Ríkisstj. telur því að þau fyrirheit, er felast í umræddri lántöku, heimild fjárl., að upphæð 50 millj. kr., hafi með þessum tillögum að fullu verið efnd og vel það og því sé ekki ástæða til þeirrar sérstöku lántöku sem hér er um spurt.