26.11.1974
Sameinað þing: 12. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 371 í B-deild Alþingistíðinda. (269)
9. mál, lántaka fyrir Hafnabótasjóð
Fyrirspyrjandi (Karvel Pálmason):
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. fjmrh. fyrir það sem hann sagði hér þó að ég sé langt frá því að vera ánægður með þau svör sem við þessari fsp. hafa komið.
Að því er varðar Byggðasjóð er það ekkert nýtt að þar hafi verið um vanskil af hálfu hinna ýmsu hafnarsjóða að ræða. Það gekk svo langt á árinu 1972 og að ég hygg líka 1973 að Framkvæmdastofnun ríkisins sendi út dóma á sveitarstjórnarmenn víðs vegar um landið sem þeir áttu að sjálfsögðu að afplána sem einstaklingar f.h. sveitarfélaga vegna vangreiðslu á skuldum að því er varðar hafnarsjóðina. Þetta mál er, að að því er ég held, alveg laust við það sem verið var að tala um í sambandi við heimild til handa ríkisstj. til þess að taka lán og endurlána eða styrkja hafnarsjóðina sem verst eru settir. Ég veit ekki betur en að það hafi verið byrjað á því að taka þetta mál sérstaklega upp milli samgrn. annars vegar og hins vegar stjórnar Byggðasjóðs, og það átti ekki að blandast inn í þá lántökuheimild sem hér er um að ræða. Það var aðskilið mál.
Þess vegna lít ég svo á að sú heimild, sem er í fjárl. fyrir ríkisstj., hafi verið ætluð beinlínís til þess að létta þá greiðslubyrði sem fyrir er, ekki við Byggðasjóðinn, heldur ætti að taka það mál upp sérstaklega. Og ég minnist þess að núv. hv. stjórnarsinnar, fyrrv. stjórnarandstæðingar, og þá ekki síst þm. Sjálfstfl., voru engir eftirbátar í því að ýta á eftir fyrrv. ríkisstj. í þeim efnum að það lán væri tekið og því væri komið til skila sem var í heimildargrein fjárl. fyrir árið 1973. Ég er ekki að segja þetta til þess að setja út á það. Ég fagnaði því að þeir höfðu þá áhuga á þessum málum. En ég hryggist yfir því ef sinnaskipti hafa átt sér stað hjá núv. hæstv. ríkisstj., og ég vænti þess að hún sjái ástæðu til þess vegna þessa ástands, sem ríkir hjá hafnarsjóðum mjög víða, að þessi heimild til lántöku verði nýtt og það verði gert með skjótum hætti, þannig að þetta fé geti komið til skila til þeirra aðila sem það var fyrst og fremst ætlað.
Mér þykir það mjög miður að hæstv. ríkisstj. hefur snúist á þennan veg við þeim málum sem hér er um að ræða. Ég átti síst von á því með tilliti til þess sem áður hafði heyrst úr þeim herbúðum, og ég vona að hæstv. fjmrh. taki á sig rögg og beiti sér fyrir því að þessari ákvörðun hæstv. ríkisstj. verði breytt og þetta fé verði fengið þannig að það verði hægt að koma því til skila.