07.05.1975
Efri deild: 78. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3545 í B-deild Alþingistíðinda. (2693)
238. mál, Byggingarefnaverksmiðja ríkisins
Flm. (Stefán Jónsson):
Herra forseti. Ég mun ekki flytja langa framsöguræðu með þessu frv. sem við hv. þm. Helgi F. Seljan flytjum hér í sameiningu. Í meginatriðum skýrir frv. sig sjálft ásamt grg., en aðalatriði þessa frv. og megintilgang þess ber að túlka í stuttu máli á þá lund að nýta beri innlenda raforku til þess að framleiða ýmiss konar byggingarvörur, sem við flytjum nú inn fyrir hundruð milljóna kr. á ári, og spara þannig erlendan gjaldeyri samtímis því sem við gerum samfélag okkar óháðara erlendum verslunarviðskiptum og nýtum vinnuafl og tæknikunnáttu landsmanna í þágu innlendrar uppbyggingar og miðum við það grundvallarsjónarmið að dreifa fyrirtækjum okkar þannig um landið, að ný fyrirtæki, nýjar verksmiðjur sem reistar verði, megi efla byggð utan Faxaflóasvæðisins.
Svo skammt er liðið síðan fram fóru hér á Alþ. býsna ítarlegar umr. um fyrirhugaða verksmiðju sem íslenska ríkinu er ætlað að eiga og reka í félagi við útlendan auðhring til nýtingar á innlendri orku að tæpast er þörf á því að rifja upp nema að óverulegu leyti ýmsar upplýsingar sem þá komu fram um orkufrekan iðnað hérlendis og þörf á slíkum iðnaði í sambandi við rafvæðingu landsins. Ég ætla mér alls ekki að stuðla að því á nokkurn hátt að farið verði nú að jórtra á því máli, sem Alþ. hefur þegar kynnt, en tel að ekki verði hjá því komist að drepa á nokkur atriði í sambandi við frv. þetta til l. um Byggingarefnaverksmiðju ríkisins.
1) Fyrirhuguð málmblendiverksmiðja, kísiljárnverksmiðja í Hvalfirði, á að vinna úr innfluttu hráefni varning sem eingöngu er ætlaður til útflutnings. Af hálfu orkumálastjórnar er tiltölulega mjög lágt raforkuverð, sem þessari verksmiðju er ætlað að njóta, réttlætt með því að vegna dýrra farmgjalda sem leggist bæði á hráefnisverð til þessarar verksmiðju og síðan á framleiðsluverð hennar yrði að bæta fyrirtækinu upp erfiða aðstöðu með lágu orkuverði.
2) Lýst hefur verið yfir því að önnur innlend fyrirtæki skuli fá raforku á sama verði og málmblendiverksmiðjan ef þeir kaupa orkuna upp á sams konar eða álíka býti, þ. e. a. s. forgangsorku í 8 þús. klst. á ári.
3) Það hefur einnig verið staðhæft af hálfu forsvarsmanna hugmyndarinnar um járnsíliverksmiðjuna að innlend fyrirtæki sem stofnuð yrðu um orkufrekan iðnað skyldu njóta sams konar fríðinda um tolla og skatta og hin fyrirhugaða málmblendiverksmiðja.
Að gefnum þessum forsendum má ætla að óvíða í heiminum muni fást ódýrari orka til byggingarefnaframleiðslu þeirrar, sem um getur í frv., en hér á landi og torfundið muni það land sem ætli fyrirtækjum sem þessu betri aðbúð hvað skatta og tolla áhrærir.
Í tíð vinstri stjórnarinnar skipaði þáv. iðnrh. sérstaka n. til þess að rannsaka möguleika á framleiðslu byggingarefna úr íslenskum gos- og steinefnum. Þessi n. hefur þegar skilað merkilegum niðurstöðum af rannsóknum sínum og benda þær til þess að hægt sé að hefja nú þegar með tiltölulega litlum aðdraganda framleiðslu á ágætu byggingarefni úr þessum ódýru hráefnum hér á landi og það á verði sem gera mundi útflutning mjög svo arðbæran. Þessar tilraunir voru kostaðar af íslenska ríkinu og eru niðurstöður þeirra eign ríkisins. Í frv. er svo ráð fyrir gert að framleiðsla Byggingarefnaverksmiðju ríkisins yrði fyrst og fremst miðuð við innlendan markað, en að mati flm. mælir ekkert gegn því að höfð verði hliðsjón af þeim möguleika að hefja útflutning á þeim greinum framleiðslunnar sem til slíks henta. Samtímis því sem verksmiðjan framleiðir byggingarefni liggur í augum uppi að eðlilegt hlýtur að teljast að fyrirtækið standi straum af tilraunum með ýmis innlend efni til húsbyggingar í samráði og samvinnu við aðra innlenda aðila sem að slíkum tilraunum hafa staðið til þessa,
Þá komum við að því atriði í 1. gr. frv. sem að eignarhaldi á þessari verksmiðju lýtur. Að dómi flm. er hér um að ræða svo umfangsmikið fyrirtæki að ekki kemur annað til greina en að hún verði í eigu ríkisins. Hvorugur flm. er svo kappsamur þjóðnýtingarmaður að okkur sé ríkisrekstur heilagt mál ríkisrekstrarins vegna ef svo má segja. Við erum félagshyggjumenn og stefnum að vísu að umbreytingu á þjóðfélaginu í réttlátara form, m. a. með sameignarformi, en við ætlum Byggingarefnaverksmiðju ríkisins að taka til starfa áður en hér verði komið á sósíalistískt samfélag. Við ætlum þessari verksmiðju að gegna félagslegu hlutverki í því blandaða samfélagi einkarekstrar og félagsrekstrar sem hér hefur þróast. Við ætlum Byggingarefnaverksmiðju ríkisins ekki það hlutverk öðru fremur að skila hámarksarði af kapítali eins og verða myndi ef slíkt félag starfaði í einkaeign. Hlutverk þessarar verksmiðju á að vera að framleiða gott, ódýrt byggingarefni úr innlendum hráefnum og jafnframt að stuðla að því að gera innlenda húsasmiði ódýrari og á annan hátt heppilegri en verið hefur. Íslenska ríkinu er ætlað að leggja verksmiðjunni til þá eign sína sem fyrir er í niðurstöðum af rannsóknum á íslenskum byggingarefnum og að leggja henni til höfuðstól og rekstrarfé í byrjun. Af þessum ástæðum einum saman, þótt fleiri mætti til greina, teljum við sjálfsagt að verksmiðjan verði sameign landsmanna.
Ég sagði að flm. aðhylltust ekki ríkisrekstur ríkisrekstrarins vegna. Við ætlum okkur ekki heldur þá dul að rökræða eignarhald verksmiðjunnar við þá hv. þm. sem aðhyllast einkarekstur einkarekstrarins vegna, í hæsta lagi, ef ástæða þykir til, að setja ofan í við þá.
Ég vitnaði í tilraunir sem gerðar hafa verið á vegum gosefnanefndar og leyfi mér að vitna hér með í upplýsingar frá Herði Jónssyni verkfræðingi hjá Iðnþróunarstofnuninni sem hefur veitt blessum tilraunum forstöðu:
„Þá er fyrst að því að víkja að innflutningur á plasti til einangrunar hefur verið um 500 tonn á ári með síhækkandi verði. Innflutt steinull hefur verið ódýrari en einangrun úr plasti, enda þótt sú steinull sé framleidd með mun dýrari orku en þeirri sem hér yrði fáanleg. Gosullin, sem framleidd yrði hér á landi, eða steinullin yrði framleidd til sölu í mottum, plötum og lausri vigt. Tvær stórar biksteinsnámur eru hér á landi, en úr biksteini má framleiða perlustein. Önnur náman er í Loðmundarfirði eystra, er sú náma miklu minna rannsökuð og þykir liggja verr við vinnslu sökum hafnleysis og vegleysu. Þó er víst að þar má taka hráefni til mikillar framleiðslu. Hin náman, sem meira hefur verið rannsökuð, er í Prestahnjúk og er ljóst að þar eru a. m. k. 90 millj. lesta af mjög góðu hráefni, ei til vill miklu meira. Þaðan er 50 km vegalengd til sjávar við Hvalfjörð og er áætlað að vegagerð mundi kosta um 200 millj. kr. frá Prestahnjúk til sjávar.
Þegar hafa verið gerðar ráðstafanir til að útvega vélar sem settar verða upp í Sementsverksmiðju ríkisins til tilraunaframleiðslu á þöndum perlusteini og hefst sú framleiðsla væntanlega í sumar. Til greina kemur að framleiða perlustein til einangrunar í lausri vigt og einnig að framleiða úr honum létta, staðlaða millíveggi og loks þilplötur með gifs sem bindiefni. Þá má geta þess að bandaríkjamenn framleiða perlustein nú í allstórum stíl til hreinsunar og er hann þá notaður á sama hátt og kísilgúr. Enn er að geta þess að rússar framleiða úr biksteini gler sem hleypir í gegnum sig útfjólubláum geislum, en þess háttar gler telst hafa mjög mikla þýðingu, m, a. til nota í gróðurhúsum.
Gosefnanefnd hefur fyrirliggjandi kostnaðar- og framleiðsluáætlanir að mestu leyti varðandi framleiðslu þá sem getið er um í þessu frv., að glerframleiðslunni slepptri. Geta má þess að fyrir liggur tilboð í vélbúnað meðalstórrar steinullarverksmiðju sem miðuð er við 14 þús. lesta framleiðslu á ári, sem samsvarar tvöfaldri ársnotkun okkar eins og hún er núna, en líkur benda til þess að hægt sé að stórauka notkun á steinull til einangrunar hér á landi. Nemur kostnaðarverð slíkrar verksmiðju um 500 millj. kr. Þar er miðað við framleiðslu á steinullarmottum og plötum. Geta má þess að erlendis eru framleiddar úr trefjasteypu svonefndri vegg- og þakplötur sem allar líkur benda til að reynast mundu miklu betur í okkar loftslagi heldur en járn- og álplötur sem vissulega hafa sýnt þráláta áráttu til tæringar á þessu fremur úrfellissama landi. Rússar eru þegar byrjaðir að nota steinullartrefjar til bindings í svona plötur. Svo að við víkjum að 2. gr. frv., þá benda líkur til þess að 1500 millj. fjárframlagið, sem þar er reiknað með, mundi nægja til að koma upp þeim deildum verksmiðjunnar sem framleiða mundu steinullarvörur, perlusteinsplötur og trefjaplötur.
Þá er að víkja að glerframleiðslunni lítils háttar. Svo sem þjóð veit var einkaframtakið styrkt til þess af almannafé á sínum tíma að koma upp glerverksmiðju í Reykjavík. Árangurinn varð í senn hörmulegur og dálítið skoplegur. Ég efast ekki um að ríkið hafi bolmagn til að reka glerverksmiðju með góðum árangri og á sú framleiðsla að verða hluti af starfsemi Byggingarefnaverksmiðju ríkisins. Það liggur í augum uppi að þörf okkar fyrir rúðugler hlýtur að aukast mikið á komandi árum í sambandi við sjálfsagða framkvæmdaáætlun á ylrækt í stórum stíl og er mikils um vert að við búum að okkar eigin í því efni ef hægt er,
Þá vík ég að 3. og 4. gr. frv., þar sem segir að Byggingarefnaverksmiðja ríkisins skuli reist á Akureyri, jafnframt því sem gert er ráð fyrir því að verksmiðjan geti rekið útibú í þeim landshlutum þar sem slíkt þykir henta vegna hráefnisöflunar og markaða. Ég hef þegar heyrt frá ýmsum mætum mönnum í kunningjahópi mínum mótbárur á þá lund að þessa verksmiðju eigi að reisa í þéttbýlinu við Faxaflóa þar sem mestur sé markaðurinn fyrir framleiðslu vörunnar. Þeim rökum mótmæli ég af hjartans grunni. Eins og ég sagði fyrr er Byggingarefnaverksmiðju ríkisins ekki fyrst og fremst ætlað að stefna að hámarksgróða af kapítali, heldur öllu fremur og jafnframt á hún að gegna félagslegu hlutverki. Það er eðlilegt að velja fyrirtækinu stað á Norðurlandi, í bæjarfélagi sem hefur allmikið vinnuafl að bjóða og þar sem iðnaðarframleiðsla stendur, að öðrum stöðum ólöstuðum, á hærra stigi en í velflestum öðrum byggðum landsins. Á Akureyri gæti Byggingarefnaverksmiðja ríkisins stuðlað að fullnýtingu á ágætu vinnuafli þar sem jafnan hefur verið hætta á árstíðabundnu atvinnuleysi fram undir síðustu ár. Hugsunarhátturinn, sem liggur að baki þeirri ályktun að reisa eigi fyrirtæki eins og Byggingarefnaverksmiðju ríkisins á Faxaflóasvæðinu vegna þess að þar sé mest eftirspurn eftir byggingarefni, er nákvæmlega þess háttar hugsunarháttur sem fæðir af sér byggðavandamál. Sú stefna að reisa framleiðslufyrirtæki utan Faxaflóasvæðisins mun aftur á móti leiða til þess að þörfin fyrir húsbyggingar dreifist jafnar milli landshluta. Ég vil vekja athygli á því að s. l. þrjú ár, meðan stefnt var markvisst að atvinnuuppbyggingu úti á landi, jókst þörfin fyrir byggingarnar meira vestur, norður og austur á landi en við Faxaflóa, og það er ætlun mín að ekki muni standa lengi óslitin sú stjórnarstefna sem nú er upp tekin, þar sem miðað er að samdrætti úti á landinu, en hemjulítilli fjárfestingu í atvinnufyrirtækjum á Faxaflóasvæðinu. Ég vek enn athygli á því að í 4. gr. frv. er ráðgert að Byggingarefnaverksmiðja ríkisins geti rekið útibú í öðrum landshlutum ef hentugt þykir þótt hún verði að stofni til á Akureyri.
5. og 6. gr. frv. þarf tæpast að skýra.
Í 8. gr. er kveðið á um ráðstafanir í átt til lýðræðislegrar stjórnar verksmiðjunnar. Að dómi flm. er ákaflega mikið í húfi, ekki síst í opinberum rekstri, að starfsfólk fái raunverulega aðild að stjórn fyrirtækjanna innan sjálfsagðra takmarka og finni þannig til þess að starfsfólkið fjallar um eigin eign þar sem fyrirtækið er 9. og 10. gr. frv. skýra sig sjálfar.
Um 11. gr. frv. vil ég fara nokkrum orðum. Hér er gert ráð fyrir því að vistfræðileg könnun fari fram á umhverfi fyrirhugaðrar verksmiðju áður en framkvæmdir hefjast við verksmiðjuna, ekki bara áður en framleiðsla hefst. Að fengnum niðurstöðum þeirra athugana verði kannað að hve miklu leyti hægt sé að gera ráðstafanir til að koma í veg fyrir spjöll af völdum verksmiðjurekstrarins og er niðurstaða þeirrar athugunar liggur fyrir verði síðan vegið og metið af hálfu sérfræðinga, líffræðinga og annarra, hvort réttlætanlegt sé að hefja rekstur af þessu tagi á tilteknum stað.
Í þessari framsöguræðu minni hef ég farið fljótt yfir sögu. Ég ætlast til að málið fái eðlilega umfjöllun í n. þar sem m. a. yrðu til kvaddir sérfræðingar fyrrnefndrar gosefnanefndar að segja álit sitt á frv. Að svo mæltu mælist ég til þess að frv. verði vísað til iðnn.