07.05.1975
Efri deild: 78. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3554 í B-deild Alþingistíðinda. (2696)

238. mál, Byggingarefnaverksmiðja ríkisins

Flm. (Stefán Jónsson) :

Herra forseti. Ég ætlaði aðeins að þakka tveimur síðustu ræðumönnum fyrir tiltölulega góðar undirtektir við þetta frv. Líklega hefur það verið vegna þess að þm. Steingrímur Hermannsson hefur beinlínis búist við því að ég væri með einhvern ótugtarskap á meðan hann skrapp frá að hann taldi mig hafa mælt hér af nokkrum þunga í sambandi við málmblendiverksmiðjuna. Ég gerði það ekki. Ég tók það meira að segja fram, líklega á meðan hann var í burtu, að ég ætlaðist ekki til þess að við færum að tyggja hér aftur mat sem búið væri að kyngja.(StH: Það var raforkuverðið.) Já, ég vitnaði þar í útskýringar Jakobs Björnssonar og Þjóðhagsstofnunar, — þetta er rétt hjá þér, — í sambandi við þetta mál og er undarlegt hversu það rifjast nú upp fyrir hv. þm. að þetta hefur nú komið fram.

Það er alveg rétt, eins og raunar er gefið sterklega í skyn í 4. gr. frv. að mjög svo kemur til álita að reka ýmsar deildir fyrirhugaðrar verksmiðju á mismunandi stöðum eftir því hvernig liggur við hráefni og mörkuðum. En verði framleiðsla byggingarefna úr þessum íslensku hráefnum, gosefnum og basalti, undir einum hatti, ef svo má segja, þá þarf fyrirtækið, Byggingarefnaverksmiðja ríkisins, að eiga einhvers staðar heima og af hálfu þess fyrirtækis verður að samræma þessa framleiðslu sem eins og tekið er fram í grg., er af hálfu flm. hugsuð fyrst, og fremst til þess að anna innlendri eftirspurn þó að jafnframt komi til greina að hafa möguleika á útflutningi í bakhöndinni. Samanborið við vegalengdir, ef ég leyfi mér að ýja aftur í þá átt, — samanborið við vegalengdir sem ætlunin er að flytja önnur hráefni til verksmiðjuframleiðslu á Íslandi og samanborið við vegalengdir frá Íslandi á fyrirhugaða markaði annarrar framleiðslu, þá er náttúrlega ekki um langan veg að flytja perlustein úr Prestahnjúk til Akureyrar og ekki heldur jafnvel þó að sækja þyrfti basalt á Þjórsársanda sem er nú ekki kannað hvort fást mundi nær Akureyri. En eins og ég sagði áðan liggur beint við að hafa starfsemi þessa fyrirtækis víðar um landið.

Ég bjóst nákvæmlega við þeim aths. sem hv. þm. Jón Sólnes gerði við hugmyndina um eignarhald á fyrirtæki þessu. Þá játningu verð ég náttúrlega að gera að miklu heldur vil ég sjá íslenska ríkið í félagsskap við innlenda kapítalista, innlenda þegna, heldur en erlenda um eignarhald á slíkri verksmiðju. En óljósan grun hef ég um það að reynsla okkar af samstarfi við fyrirtækið Johns Manville sé ekki öllu betri en sú sem hv. þm. Jóni Sólnes er alveg ljóst. Ég leyfi mér í því sambandi að vitna í einmitt amerískan kapítalista sem frægur var skömmu fyrir síðari heimsstyrjöld, einkaframtaksmann mikinn í Chicago sem hét AL Capone, sem sagði við vini sína, eftir að þeir skutu 5 lögregluþjóna daginn eftir að þeir höfðu skotið 14, og Al Capone fannst þetta ekki hyggileg ráðstöfun: „Never follow a banjoact after another banjoaet.“ Ég held að það sé ástæðulaust að endurtaka að yfirlögðu ráði mistök sem við höfum þegar reynt í samstarfi við Johns Manville og eins og ég hef áður sagt, hugmynd flm. er fyrst og fremst sú að fullnægja innlendri eftirspurn eftir byggingarvörum sem við gætum framleitt hér innanlands úr innlendu hráefni og leyst af hólmi erlendan innflutning á þessum varningi. Mér er ljóst að það er rétt, sem hv. þm. Steingrímur Hermannsson sagði, að á öllum þessum sviðum hafi tilraunir gosefnanefndar ekki verið til lykta leiddar. En þó liggja fyrir að sögn Harðar Jónssonar jákvæðar niðurstöður af ýmsum þessara tilrauna, ekki bara tilrauninni með gasullina eða steinullina, og á að vera hægt fyrir okkur að fá erlendis frá tæknilegar upplýsingar varðandi ýmsa þætti þeirrar framleiðslu, svo sem trefjasteypuframleiðsluna á þakplötum og plötum í útveggjum húsa og til glerframleiðslunnar, þannig að þar getum við hlíft okkur að ákaflega verulegu leyti við tilraunum innanlands. Eftir því sem ég kemst næst er hægt að fá þessar framleiðsluupplýsingar án nokkurra afarkosta.

Ég ætlaði svo ekki að ræða lengur um frv. að þessu sinni, en ítreka sem sagt þakklæti mitt til þessara ræðumanna.