04.11.1974
Efri deild: 3. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 15 í B-deild Alþingistíðinda. (27)

10. mál, þingsköp Alþingis

Forsrh. (Geir Hallgrímsson):

Herra forseti. Í aths. við lagafrv. það, sem hér er á dagskrá, kemur fram, að fjvn. var fyrst kjörin í Sþ. árið 1934 í kjölfar breytinga, sem gerðar höfðu verið á stjórnarskrá og þingsköpum á árinu 1933. Var þá ákveðið, að n. skyldi skipuð 9 mönnum. Á þeim fjórum áratugum, sem liðnir eru síðan, hafa verkefni n. stóraukist, og mörg undanfarin ár hafa nm. orðið að skipta með sér verkum við athugun einstakra málaflokka. Þykir því eðlilegt að fjölga í nefndinni. Er í þessu frv. gerð till. um í 1. gr., að fjvn. skuli skipuð 9–11 mönnum samkv. ákvörðun Alþingis.

Það hafa átt sér stað samráð með þingflokkum varðandi þetta frv., og það eru enn fremur rök fyrir flutningi þess, að með fjölgun í n. er tryggt, að allir þingflokkar fái fulltrúa í n. Hins vegar hafa umræður og samráð þingflokka leitt til þess nú, eftir að frv. var prentað, að aths. hafa komið fram um það, að tala nm. sé ekki ákveðin, en fari eftir ákvörðun Alþingis hverju sinni, og hefur verið lögð áhersla á, að hér væri sett ákveðin tala. Um leið og ég mæli fyrir samþykkt þessa frv., þykir mér rétt, til þess að fullt samkomulag sé um afgreiðslu þess, að flytja jafnframt skriflega brtt. við frv., þannig að á 1. gr. sé sú breyt. gerð, að í stað „9–11 mönnum samkv. ákvörðun Alþingis“ komi: 10 mönnum.

Ég vænti þess, að um þetta frv. geti verið algjör samstaða, þannig að óþarfi sé að vísa því til n., og mælist til þess, að hv. þdm. geti fallist á hraða afgreiðslu þess, jafnvel svo hraða, að frv. gengi til Nd. nú í dag.