07.05.1975
Efri deild: 78. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3558 í B-deild Alþingistíðinda. (2700)
266. mál, þörungavinnsla við Breiðafjörð
Frsm. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Iðnn. hefur haft til meðferðar frv. til l. um breyt. á l. nr. 107/1973, um þörungavinnslu við Breiðafjörð, og eins og kemur fram í nál. á þskj. 571 mælir n. með samþykkt frv. óbreytts, en einstakir nm. áskilja sér rétt til að fylgja eða flytja brtt. Fjarverandi afgreiðslu málsins voru Eggert G. Þorsteinsson og Albert Guðmundsson.
Í raun og veru hefði ég ekki þurft að hafa um þetta fleiri orð, ef mér sýndist ekki nauðsynlegt að svara nokkrum atriðum sem fram komu við 1. umr. þessa máls. Þá var ég bundin í forsetastóli og komst ekki í þennan ræðustól. En ég skal reyna að vera fáorður.
Einkum kom fram hjá hv. þm. Jóni Sólnes, 2. þm. Norðurl. e., allmikil og þung gagnrýni á alla þróun þessa máls, og skildi ég orð hans svo að hann teldi að hér væri um mjög vafasaman undirbúning að ræða og e. t. v. byggðist þetta fremur á bjartsýni en raunhæfu mati. Ég vil mótmæla þessu. Lengi höfum við íslendingar leitað að leiðum til þess að nýta þau fáu náttúruauðæfi, sem við eigum, og lengi höfum við staldrað við jarðhitann og leitað að leiðum til þess að nýta hann og raunar höfum við alllengi litið á þang- og þaramið í kringum þetta land. Ég held að allt frá því í kringum 1950 hafi verið gerðar tilraunir, stundum nokkuð víðtækar og á öðrum árum minni, með nýtingu þarans. Ég ætla ekki að fara að rekja það hér.
En allar þessar tilraunir í gegnum árin leiddu til þess að út kom í okt. 1972 skýrsla Rannsóknaráðs ríkisins um þang- og þaraþurrkunarstöð á Reykhólum við Breiðafjörð. Eins og ég segi var þetta byggt á margra ára athugun og hafði mjög miklu fjármagni verið varið til þessara tilrauna og við þessar tilraunir höfðu komið fjölmargir ágætir vísindamenn sem ég ætla ekki heldur að fara að lengja mál mitt með að nefna, enda hafa þeir allir verið nefndir áður í ræðum hér í þessum sal. Í þessari skýrslu er komist að þeirri niðurstöðu að það sé hagkvæmt að nota þessi náttúruauðæfi, jarðhitann, til þess að þurrka önnur náttúruauðæfi, þang, á Breiðafirði sem er þar ákaflega mikið. Þar er einnig greint frá því að tilraunir hafi sýnt að það sé vafasamara með þarann. Þangþurrkunin byggist að verulegu leyti á mjög athyglisverðu tilboði sem hafði komið frá skosku fyrirtæki, Alginate Industries, um tryggingu á kaupum á verulegum hluta af framleiðslu slíkrar verksmiðju.
Ekki þótti ástæða til þess að rasa um ráð fram, heldur var þessi skýrsla tekin til vandlegrar athugunar af mönnum á vegum iðnrn. Sú athugun leiddi til þess að iðnrn. og iðnrh. komust að þeirri niðurstöðu að þessi skýrsla væri á rökum reist eða niðurstöður hennar og var lagt til að sett yrði upp undirbúningsfyrirtæki. Það var samþ. sem l. héðan frá Alþ. 31. des. 1972. Þessu undirbúningsfyrirtæki var enn falið að framkvæma framhaldsrannsóknir og tilraunir á þessari nýtingu þangsins með jarðhitaþurrkun í huga. Fyrirtækið gerði það. Það framkvæmdi þessar tilraunir og það tók upp þráðinn að nýju við hið skoska fyrirtæki. Allt leiddi þetta til þess að út kom enn ein skýrsla í nóv. 1973, þ. e. a. s. ári síðar, þar sem greint er frá niðurstöðum þessa undirbúningsfyrirtækis. Þar segir t. d., með leyfi forseta: „Hagkvæmt er talið að reisa þangþurrkunarstöð til framleiðslu á 6685 tonnum á ári af þangmjöli. Stofnkostnaður verksmiðjunnar er áætlaður 211 millj. 156 þús. og árlegur rekstrarkostnaður við full afköst er 82 millj. 252 þús. kr. með afskriftum og útskipunarkostnaði. Söluverðmæti er áætlað 98 millj. 213 þús. kr. og rekstrarafgangur fyrir skatta 15 millj. 961 þús. kr.“ Síðan er greint frá öðrum mikilvægum þáttum þessa máls, m. a. tilboði skoska fyrirtækisins Alginate Industries um kaup á a. m. k. 5000 tonnum af þangmjöli í 10 ár, í fyrsta sinn árið 1975 og með vaxandi kaupum upp í allt að 10 þús. tonna framleiðslu.
Jafnframt vil ég geta þess að þessu máli var vísað þegar á árinu 1972 til Náttúruverndarráðs og meðan undirbúningsfélagið starfaði lét Náttúruverndarráð gera ítarlega úttekt á Breiðafirði af sérfræðingum undir stjórn líffræðistofnunar Háskólans, og gerði Náttúruverndarráð síðan mjög vandlega unnar till. um nýtingu þessa þangs á Breiðafirði með það að sjálfsögðu í huga að náttúruverðmæti þar spilltust ekki og ekki væri meira tekið en endurvöxtur þangsins leyfir.
Ég vil því halda því fram að þetta mál hafi fengið óvenjuvandlegan undirbúning, margra ára rannsóknir, ekki síst á vegum þess undirbúningsfélags sem sett var á fót með l. frá 1972. Ég satt að segja man ekki eftir mörgum fyrirtækjum sem hér hafa hlotið svo vandlegan undirbúning sem þetta fyrirtæki. Hefði ég a. m. k. gaman af að heyra frá þeim sagt.
Undirbúningsfyrirtækið lagði til við iðnrn. að sett yrði á fót fyrirtæki til vinnslu á þangi að þessu magni sem ég nefndi áðan og með þeim aðferðum og leiðum sem undirbúningsfyrirtækið bendir á í fyrrnefndri skýrslu sinni. Á þetta var fallist og voru lög samþ. á Alþ. 17. des. 1973, lög nr. 107, og fyrirtækið var stofnað í mars 1974.
Eins og ég gat um áður var sérstaklega minnst á stofnkostnað þessa fyrirtækis og vakin athygli á því að hann hefði hækkað mjög verulega. Því vil ég rekja þá sögu í örfáum orðum.
Á vegum undirbúningsfyrirtækisins var áætlað að stofnkostnaður yrði, eins og ég sagði áðan, um 212 millj. kr. Vegna verðhækkana og gengisfellingar komst sú upphæð upp í 300 millj. kr. í sept. 1974. 1. jan. 1975 var þetta enn endurskoðað og var þá kostnaðurinn áætlaður 340 millj. kr. Nú eftir síðustu gengisfellingu hefur kostnaðaráætlun enn verið endurskoðuð og er, eins og kemur fram í frv. sjálfu, stofnkostnaður nú áætlaður 422 millj. kr. Hann hefur því hækkað úr 212 millj. kr. í 422 millj. af eftirgreindum ástæðum.
Í fyrsta lagi hækkar hann í 300 millj. kr. við gengisfellinguna s. l. haust. Ég held að það liggi í augum uppi að sú gengisfelling hafi þarna mikil áhrif. Öll tæki til þessarar verksmiðju eru innflutt og höfðu ekki verið greidd. Stálgrindarhús, sem reist eru yfir þessa verksmiðju, eru sömuleiðis innflutt og höfðu ekki verið greidd þá, og fleiri þætti mætti nefna. Auk þess urðu miklar hækkanir á vinnulaunum á þessu tímabili. Ég hygg að kostnaðarhækkunin sé ekki meiri en þessar aðstæður gefa tilefni til.
Ég gat þess einnig að 1. jan. var áætlað að kostnaður væri 340 millj. kr. Það veldur fyrst og fremst að endurskoða varð áætlanir sem gerðar höfðu verið um öflun þangsins með sérstökum sláttuvélum. Var talið tryggara að hafa sláttuvélarnar 10–11 í stað 6–7 áður, og er þessi kostnaðarauki fyrst og fremst og raunar nálægt því eingöngu af þessum sökum. Þess má hins vegar geta að þarna kom á móti lægra verð fyrir þangflutningaskip heldur en gert hafði verið ráð fyrir áður. Ef ég man rétt var skipið áætlað á 36 millj. kr., en varð 22 millj. kr. Hins vegar komu nokkrar hækkanir þar á móti vegna gengisfellinga og hækkana á erlendum skuldum sem á skipinu hvíldu. En þar var þó nokkur sparnaður. En m. ö. o.: þessi hækkun 1. jan. 1975 í 340 millj. kr. er af þessum sökum, sem ég hef nú rakið.
Ég held að mönnum sé það ljóst að með síðustu gengisfellingu hlaut að verða hækkun á stofnkostnaði. Enn voru tæki til verksmiðjunnar ekki komin og ekki greidd. Við síðustu gengisfellingu var kostnaðaráætlun enn endurskoðuð og það mjög ítarlega, eins og kemur fram í þeim gögnum sem ég hef hér fyrir framan mig, og varð þá loks áætluð 422 millj. kr.
Ég hygg að þarna sé réttar að farið en mér hefur virst í fjölmörgum tilfellum sem ég þekki vel þar sem stofnkostnaður er áætlaður á einhverju ári fyrir nokkrum árum e. t. v. og síðan haldið dauðahaldi í þá tölu þótt endanleg niðurstaða hljóti og verði að sjálfsögðu allt önnur með þeim hækkunum sem verða gjarnan á millitímanum. Þá er venjulega risið upp og allt komið í strand, allar framkvæmdir hafa stöðvast, ekki hafa verið gerðar ráðstafanir til að afla viðbótarfjármagns, en venjulegast hlaupið undir baggann og einhver ráðstöfun af hálfu ríkisvaldsins ákveðin til þess að bjarga viðkomandi fyrirtæki, a. m. k. ef þar er um að ræða fyrirtæki af einhverri stærð, úr þeim vandræðum sem það er fjárhagslega komið í.
Í þessu tilfelli hefur stjórn verksmiðjunnar talið sjálfsagt og skylt að endurskoða allar kostnaðaráætlanir um leið og breytingar hafa orðið á forsendum, eins og gengisfellingar, og gera eigendum fyrirtækisins þegar grein fyrir því hvað þessar ráðstafanir hafi valdið miklum kostnaðarauka við byggingu verksmiðjunnar. Og ég hika ekki við að segja það að ég tel með þessu móti langtum skynsamlegar og réttar á málum haldið en í þeim tilfellum sem ég nefndi áðan, þar sem segja má að aðilar stingi höfðinu í sandinn og neiti að horfast í augu við þær staðreyndir sem þó blasa við.
Ég held að ljóst sé og hef ég raunar ekki heyrt nein rök til hins gagnstæða, að þessi hækkun á umræddu tímabili úr 212 millj. kr. haustið 1973 í 422 millj. kr. nú sé eðlileg miðað við þær breytingar sem orðið hafa á öllu verðlagi og gengi.
Í upphaflegu frv. var gert ráð fyrir því að hlutafé ríkissjóðs yrði a. m. k. 51 af hundraði og ákveðið allt að 60 millj. kr. af heild sem varð 68.8 millj. kr. Hlutur ríkissjóðs var ekki gerður svo mikill vegna þess að þeir sem beittu sér fyrir þessu máli, sérstaklega iðnrh. þáv., hafi ekki viljað hlut einkaaðila meiri, heldur einfaldlega af þeirri ástæðu að í ljós kom að ekki var hægt að fá meiri þátttöku einkaaðila í þessu fyrirtæki. Talið hefur verið eðlilegt að eigið fjármagn félagsins sé í kringum 25% af stafnkostnaði, sem ég held að sé regla sem fjölmörg fyrirtæki í einkaeigu mættu taka sér til fyrirmyndar, þar sem hlutafé eða eigið fjármagn er sáralítið og stendur hvergi nærri undir þeim ábyrgðum sem á fyrirtækinu hvíla og hluthöfum þess. Því er talið eðlilegt, miðað við aukinn stofnkostnað, að auka þetta hlutafé upp í u. þ. b. 100 millj. kr. Í því sambandi hafa verið gerðar ítrekaðar tilraunir til þess að fá aukið fjármagn frá einkaaðilum. Til þessa hefur verið boðið með auglýsingum í fjölmiðlum, en borið sáralitinn árangur, því miður. Því er horfið að því ráði að leita til ríkissjóðs um aukið hlutafjárframlag, en eins og ég segi, eftir að allar aðrar leiðir hafa verið þrautkannaðar og reyndar. Lagt er til, að ríkissjóður leggi fram 90 millj. kr., þ. e. a. s. auki hlutafé sitt úr 60 í 90 millj. kr.
Til viðbótar því fjármagni, sem fengist hefur frá einkaaðilum og hinu opinbera, vil ég jafnframt geta þess að fyrirtækið Alginate Industries hefur boðist til þess að leggja fram 50 þús. sterlingspund sem hlutafé, en það er fljótlega reiknað í kringum 15 millj. kr. Ekki hefur verið tekin endanleg afstaða til þessa boðs. Það ríður ekki baggamuninn í þessu tilfelli, en mundi t. d. líklega eðlilega leiða til þess að þetta fyrirtæki fengi einn mann í stjórn fyrirtækisina. Og það er spurning hvort við viljum það. Að sjálfsögðu gefur þetta tilboð til kynna traust það sem viðskiptaaðili okkar í Skotlandi ber til þessarar framleiðslu hér, að fyrirtækið er tilbúið að leggja fram þar nokkurt eigið fjármagn. Vel getur komið til greina enn að taks þessu tilboði. Það stendur enn og engin ákvörðun hefur heldur verið tekin um að neita því.
Hlutaféð var 68.8 millj. kr., en nú munu hafa fengist til viðbótar frá einkaaðilum eftir ítrekaðar tilraunir um það bil 2 millj. kr., þannig að hlutaféð verður um það bil eða rúmlega 100 millj. kr. og gæti orðið 115 ef þessu tilboði Alginate Industries yrði tekið.
Að öðru leyti vil ég taka það fram um fjármögnun fyrirtækisins að Iðnþróunarsjóðurinn norræni hefur þegar veitt 105 millj. kr. lán til vinnslunnar og hefur gefið fyrirheit um að lána allt að helmingi stofnkostnaðar sem þá yrði samkv. síðustu áætlun um 211 millj. kr. Ég vil jafnframt geta þess að iðnþróunarsjóðurinn hefur fylgst vandlega með allri framkvæmd í þessu máli og hefur yfirfarið allar stofnkostnaðaráætlanir, enda ekki óeðlilegt þar sem slíkt fyrirheit er gefið eins og nú gat um. Síðan var samþ. af stjórn Framkvæmdastofnunar ríkisins að mæla með erlendri lántöku til þessa fyrirtækis og hefur það síðan komið inn í efnahagsmálafrv. ríkisstj. sem samþ. er frá Alþingi. Fjármögnunin verður þannig: helmingur frá Iðnþróunarsjóði, rúmlega 100 millj. eigið fjármagn eða hlutafé og það, sem ú milli ber, erlent lán. Þó, eins og ég var búinn að segja, getur komið til mála að þiggja tilboðið um 15 millj. kr. hlutafé. Yrði þá erlend lántaka nokkru minni.
Ætlun mín var fyrst og fremst að leiðrétta það sem mér fannst vera á misskilningi byggt hjá hv. 2. þm. Norðurl. e., í fyrsta lagi með tilliti til undirbúnings þessa fyrirtækis, sem ég hef lagt áherslu á og vil enn leggja áherslu á að var mjög vandað til og var ítarlegur og ég efast um, að mörg fyrirtæki hafi fengið slíkan undirbúning, og sömuleiðis þeirra hækkana sem hér er um að ræða og eru fyrst og fremst vegna utanaðkomandi aðstæðna. Þar er um þá nýbreytni að ræða að tekið er tillit til allra breytinga, sem utan að koma, strax og gerð grein fyrir þeim, en ekki reynt að hylja þær og dylja. Ég hefði fagnað meiri þátttöku einkaaðila í þessu fyrirtæki. Ég tel þetta fyrirtæki sem einkaaðilar mættu gjarnan taka ríkan þátt í. Ég hef fyrir mitt leyti reynt að stuðla að því að heimamenn tækju þátt í þessu fyrirtæki, m. a. staðið að samþykkt í stjórn Framkvæmdastofnunar ríkisins um smávægilegan styrk til heimamanna til að leggja fram sem hlutafé. Að sjálfsögðu er hér um litlar upphæðir að ræða. Því miður hefur geta heimamanna ekki verið slík að þeir hafi getað lagt mikið fjármagn í þetta. Þó tel ég að þeir hafi lagt fram töluvert miðað við fjárhagsgetu. En því miður hefur ekki tekist að fá fjármagn að ráði frá öðrum aðilum.
Ég vil geta þess um útlitið eins og það er núna að allt bendir til þess að framkvæmdir verði nokkurn veginn á áætlun. Gert er ráð fyrir því að framleiðsla geti hafist í maí, en ég óttast, að vísu að það dragist fram í júní og kannske fram í byrjun júlí, og stafar það fyrst og fremst af drætti sem orðið hefur á afhendingum nokkurra megintækja, eins og t. d. á ofninum sem er nú kominn til landsins og verið er að setja niður.
Einnig var í ræðu við 1. umr. þessa máls gagnrýnt að hið opinbera hefur lagt verulegt fjármagn í höfn fyrir þetta fyrirtæki. Mig minnir að það hafi bæði komið fram hjá hv. 2. þm. Norðurl. e. og einnig hjá hv. 1. landsk. þm. Vil ég fara örfáum orðum um þessa þætti.
Opinberar framkvæmdir eru auk hafnarinnar jarðvarmaveita til fyrirtækisins og greiðir fyrirtækið kostnað við þá veitu að öllu leyti, þ. e. a. s. það greiðir ákveðið gjald fyrir jarðvarmann sem stendur undir fjármögnun þeirra framkvæmda. Einnig er nauðsynlegt að leggja öflugri rafmagnslínu til verksmiðjunnar. Því miður óttast ég að orka á þessu svæði sé hvergi nærri fullnægjandi, enda mun gert ráð fyrir því að þarna verði varastöð. Að sjálfsögðu greiðir fyrirtækið þann taxta, sem gildir fyrir slík iðnaðarfyrirtæki, og stendur þannig undir þessum kostnaði.
Þá hefur einnig verið lagður vegur út í eyju undan ströndinni þar sem fyrirtækið rís. Kostnað við þann veg hefur hið opinbera borið. Ég þorri varla að fara með töluna í þessu sambandi, en mig minnir að kostnaðurinn hafi orðið um það bil 14–15 millj. kr.
Þá kem ég að höfninni sem er að sjálfsögðu stærsti liðurinn í opinberum framkvæmdum vegna þessarar framleiðslu. Vitanlega var ekki ákveðið að reisa fyrirtækið í Karlsey fyrr en athugun hafði farið fram á hafnaraðstöðu og þá athugun annaðist Vita- og hafnamálaskrifstofan. Sú stofnun komst að þeirri niðurstöðu að þarna mætti gera viðunandi höfn, a. m. k. nægilega stóra fyrir þetta fyrirtæki, þar sem skip af stærðinni 800–900 lestir gætu athafnað sig og raunar eitthvað stærri ef sætt er flóðum. Áætlaður kostnaður við höfnina var, þegar ákvörðun var tekin um verksmiðjuna í lok ársins 1973 um það bil 83–84 millj. kr. Það er skemmst frá að segja að framkvæmd við höfnina hefur dregist töluvert. Bryggjan, sem þar er gerð, átti að vera tilbúin á s. l. hausti, en svo varð ekki. Fyllingu var lokið. Hins vegar komu í ljós ýmsir erfiðleikar við gerð viðlegukants eða þess hauss, sem ráðgert er að setja á þennan garð sem þarna hafði verið lagður út frá eyjum, og mun Vita- og hafnamálaskrifstofan hafa fundið sig tilneydda að breyta fyrri áætlun, nota ekki steypt ker eins og ráðgert hafði verið, heldur stálþil og hefur það líklega aukið kostnaðinn allverulega. Þó hygg ég að kostnaðaraukann megi ekki síst rekja til þess dráttar sem orðið hefur við að ljúka hafnargerðinni. Síðasta áætlun, sem ég heyrði um höfnina, var, minnir mig, 187 millj. kr. eða þar um bil. Við 1. umr. var að vísu nefnd talan 200 millj., en hana hef ég ekki heyrt. En fjarri er það mér að neita því að sú geti orðið endanleg tala við þessa hafnargerð. Út af fyrir sig er þessi hækkun úr 83–84 millj. kr. í um það bil 185–186 millj. kr. ekki miklu meiri en t. d. hækkun á byggingarvísitölu, ef hún er nokkuð meiri. En að vísu krefst slík fullyrðing nánari athugunar því að vitanlega var unnið allan tímann við byggingu þessa hafnargarðs og sumt á ódýrari tíma. En þó hygg ég að þeim drætti, sem þarna er orðinn, sé fyrst og fremst um að kenna sú hækkun, sem hefur á orðið, auk breytinga sem Vita- og hafnamálaskrifstofan telur að hún þurfi að gera á fyrri áætlun. Að sjálfsögðu greiðast hafnagjöld af öllum flutningi til og frá þessari verksmiðju. Árið 1973 voru þessi gjöld áætluð, minnir mig, um 4.5–5 millj. kr. Þau stóðu ekki undir öllum kostnaði við höfnina eins og hann var áætlaður þá. Hins vegar gera allir, sem til þessa máls þekkja, ráð fyrir því að um þessa höfn fari einnig nokkur annar flutningur. T, d. er ráðgert að flytja þar inn áburð til þessa svæðis. Engin höfn er þarna nálægt sem nota má með góðu móti í því skyni, og ég tel engan vafa á því að flutningar muni aukast í framtíðinni til þessa svæðis sem hefur verið mjög illa sett að þessu leyti. Að sjálfsögðu hækka hafnagjöld frá því sem þau voru áætluð 1973 í samræmi við hækkun hafnagjalda í landinu almennt og hefur raunar verið gert ráð fyrir því við endurskoðun á rekstrarkostnaði þessarar verksmiðju. Mér sýnist í fljótu bragði að hafnargjöld standi undir um það bil helmingnum af stofnkostnaði hafnarinnar, og þá geri ég ráð fyrir nokkrum flutningi til annarra aðila en verksmiðjunnar sjálfrar.
Þá er það spurningin hvort of mikið teljist í lagt að hið opinbera leggi þarna fram töluvert fjármagn, við skulum segja 90–100 millj. kr., umfram það sem fæst endurgreitt til þessarar hafnargerðar. Skoðun mín er sú að víða um landið væru frystihús ekki byggð ef hafnarframkvæmdir teldust með í upphaflegum stofnkostnaði einkaaðila við byggingu þessara frystihúsa. Þar hefur hið opinbera talið sér skylt að veita nauðsynlega aðstöðu fyrir það atvinnulíf sem er talið eðlilegt að þróist á viðkomandi stað. Í mínum huga er þetta þjónusta sem hið opinbera á að leggja fram, ber að leggja fram og leggur fram í ríkum mæli, þjónusta við gerð vega, gerð hafna og fjölmargt fleira mætti til telja. Ég sé því ekki að hér sé um neitt annað að ræða en almennt gerist í okkar landi, og mig furðar á því að menn skuli hneykslast á því að hið opinbera skuli í þessu tifelli og fyrir þetta litla og fátæka byggðarlag veita þessa þjónustu sem talin hefur verið sjálfsögð um land allt. Ég vona að það sé ekki vegna þess að Austur-Barðastrandarsýsla er með fátækustu byggðarlögum á þessu landi, með um það bil lægstar meðaltekjur á þessu landi. Eiga íbúarnir að gjalda þess? Ætti það ekki fremur að vera viðleitni hins opinbera að auka þessar tekjur og jafna lífskjör þessa fólks, gera því lífvænlegt á þessu svæði þar sem það vill búa og er sannarlega mikilvægt fyrir okkur alla að byggt sé. Ég lít því á þetta mál og þessa hafnargerð sem byggðamál, nauðsynlega byggðaþróun. Ég held að verksmiðjan muni standa fyrir sínu, á því er enginn vafi. En það er alveg rétt að hið opinbera hefur orðið að leggja fram vissa þætti, veita vissa þjónustu sem ég vona að litið verði á sem sjálfsagða, ekki aðeins í þessu tilfelli, heldur fjölmörgum öðrum sem á eftir munu fylgja.
Ég ætla ekki að hafa þessi orð miklu fleiri. En það er eitt atriði sem er e. t. v. ástæða til að minnast á af því að það kom fram hjá hv. 2. þm. Norðurl. e. Hann furðaði sig mjög á því að hagur verksmiðjanna virtist batna ettir því sem stofnkostnaður jykist, og er ég ekki að áfellast hann fyrir það út af fyrir sig. En þetta á einfaldlega rætur sínar að rekja til þeirrar staðreyndar að fengist hefur að okkar mati mjög hagkvæmur samningur við skoska fyrirtækið Alginate Industries. Ég gat um það grundvallaratriði þess samnings að fyrirtækið skuldbindur sig til þess að kaupa a. m. k. 5000 lestir af þangmjöli á ári í 10 ár. En það segir ekki söguna alla. Í þessum samningi er ákveðið að verðið skuli ákvarðast þannig að það skuli að lágmarki ákvarðast af verðlagi ársins 1974 að viðbættri hækkun í hlutfalli við breytingar á vísitölu í breskum efnaiðnaði. Verðið er þannig nú 99 dollarar á tonn á verðlagi ársins 1974 miðað við ársmeðaltal vísitölunnar eins og hún reyndist á því ári. Í framtíðinni munu síðan 76 pund af verðinu breytast í hlutfalli við hækkun á vísitölu frá ársmeðaltali 1974, en 23 pund verða föst tala og er það í hlutfalli við hlutdeild fjárfestingar í framleiðsluverðinu. Í þessa formúlu hefur verið lögð mikil vinna og að sjálfsögðu hafa viðsemjendur ekki verið á eitt sáttir, en ég tel að sú endanlega niðurstaða, sem nú er fengin og einmitt er verið að ganga frá þessa dagana, sé mjög hagkvæm. Hún tryggir okkur, þótt e. t. v. fórnum við einhverju fyrir þá tryggingu, en miðað við það að markaður á þessari framleiðslu er í höndum örfárra aðila, þá tel ég að það sé skynsamlegt að reyna að tryggja sig að verulegu leyti.
Í samningnum mun verða tekið fram að verksmiðjan hefur heimild til að selja t. d. umframframleiðslu, enda verði hún seld á ákveðnu verði yfir þessu umsamda verði og Alginate Industries noti sér ekki forkaupsrétt, og sömuleiðis mun verksmiðjan að sjálfsögðu hafa rétt til að selja framleiðslu á innanlandsmarkaði, til fóðurblöndunar og þess háttar, en sá markaður er tiltölulega mjög lítill. Ég get getið þess að það grundvallarverð, sem um er samið, er töluvert hærra en þetta fyrirtæki hefur greitt fyrir norska framleiðslu, og stafar það af því að það hefur sýnt sig að þau verðmæti, sem sóst er eftir í þessu þangi, þ. e. a. s. alginötin, eru töluvert betri að gæðum þurrkuð við tiltölulegs lágan hita heldur en olíuþurrkuð eða jafnvel sólþurrkuð erlendis, þar sem skiptast á skin og skúrir eins og í okkar landi og þurrktíminn getur verið nokkuð langur. Svo virðist sem sagt að framleiðsla þessarar verksmiðju geti orðið og vonandi verði í mjög háum gæðaflokki og mun því heimta hærra verð en almennt hefur verið. Því hefur skoska fyrirtækið fallist á hærra verð, og er það vitanlega til þess að treysta allan grundvöll þessa fyrirtækis.
Ég vona að mér hafi tekist að skýra þessi atriði sem komu fram í ræðu hv. þm. við 1. umr. Ég vil leyfa mér að halda því fram að sú gagnrýni, sem þar kom fram, hafi frekar verið byggð á háleitari hugsjón kapítalismans og ósk um einkafjármagnsrekstur heldur en andstöðu við þetta fyrirtæki.