26.11.1974
Sameinað þing: 12. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 374 í B-deild Alþingistíðinda. (273)

296. mál, verð á rafmagni til húshitunar

Lúðvík Jósepsson:

Herra forseti. Þegar lög voru sett um niðurgreiðslu á olíuverði vegna upphitunar íbúðarhúsnæðis með olíu, en þau höfðu verið samþ. hér á Alþ. 6. maí 1974, hafði þetta atriði einmitt komið upp, hvernig með skyldi fara þá húshitun sem ætti sér stað með raforku. En þar sem raforkuverðið væri látið hreyfast með olíuverðshækkun og þar sem þetta mál flokkaðist undir mig á þeim tíma sem viðskrh., þá gaf ég margsinnis yfirlýsingu um það að að sjálfsögðu yrði um að ræða sams konar niðurgreiðslu á raforkukostnaði til íbúðarhitunar, þar sem þannig stæði á að raforkuverðið til húshitunar fylgdi olíuverði, en þannig er einmitt ástatt hjá Rafmagnsveitum ríkisins. Ef sem sagt sá kyndingarkostnaður hækkaði í sömu hlutföllum og olíuverðshækkun, þá átti niðurgreiðslan að ná til þessara aðila. Hafði ég lagt fyrir starfsmenn í viðskiptarn. að framkvæma þetta á þennan veg, enda tel ég það hafa verið í fullu samræmi við lögin, því að í 1. gr. laganna segir beinlínis að tilgangur laga þessara sé að draga úr áhrifum verðhækkunar á olíu til hitunar íbúðarhúsnæðis. Þar sem hitunarkostnaðurinn vex vegna olíuverðshækkunarinnar á óumdeilanlegan hátt átti niðurgreiðslan einnig að ná til þeirra. En nú var það einnig vitað, að á nokkrum stöðum á landinu hreyfðist raforkuverðið ekki í þessum hlutföllum, og þá voru líka í lögum sérstök heimildarákvæði til þess að greiða rafveitum í þeim tilfellum þar sem svo stæði á.

Ég tel því að það eigi að framkvæma niðurgreiðsluna á þann hátt sem lýst hefur verið yfir og lofað hefur verið, þannig að þeir eigi að að vera aðnjótandi niðurgreiðslunnar sem hita upp íbúðir sínar með raforku þar sem svo stendur á eins og varðandi kaup frá Rafmagnsveitum ríkisins, og ég vil vænta þess að ríkisstj. sjái um að halda þannig á þessu máli.