07.05.1975
Neðri deild: 79. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3632 í B-deild Alþingistíðinda. (2749)
251. mál, ráðstöfun gengismunar í þágu sjávarútvegsins
Sighvatur Björgvinsson:
Virðulegi forseti. Við stjórnarandstæðingar hétum því á sínum tíma að koma ekki í veg fyrir það að hægt væri að afgr. þetta mál frá þessari hv. d. í dag. Ég mun því ekki setja á langa tölu til þess að tefja afgreiðslu málsins, en mun verða eins stuttorður og ég mögulega get, og ekki taka langan tíma af þingstörfum.
Hv. þm. Garðar Sigurðsson hefur svarað þeirri gagnrýni sem hæstv. ráðh. hafði uppi á brtt. okkar, 1. lið á þskj. 580, og tel ég ekki rétt að fara öllu nánar út í þá sálma, nema mér finnst það varla vansalaust af hæstv. ráðh. að reyna að snúa út úr till., sem eru augljósar og öllum auðskiljanlegar, með þeim hætti sem hann þar gerði. Ég vil þó aðeins taka það fram og benda hæstv. ráðh. á, sem að eigin hyggju virðist sitja uppi með alla visku í útgerðarmálum, að lesa tillgr. betur en hann hefur gert, vegna þess að í síðustu málsgr. er sagt að það sé heimilt að verja 70 millj. kr. af þessari fjárhæð til lánveitinga til 2–3 ára til fiskverkunarstöðva. Hér er ekki eingöngu rætt um harðfrystihús, heldur fiskverkunarstöðvar í heild, og jafnvel þó að það sé rétt hjá hæstv. ráðh., sem ég raunar benti á í ræðu minni fyrr í kvöld, að það sé búið að vinna nú þegar talsvert mikið að því að bæta aðbúnað starfsfólks og hreinlætisaðstöðu í frystihúsum, þá er því mjög ábótavant í ýmsum öðrum fiskverkunarstöðvum en frystihúsunum, auk þess sem við teljum, sem að þessari till. stöndum, að það sé engin goðgá að verja hluta af þessu fjármagni til frystihúsanna til þess að flýta þeim framkvæmdum sem hér um ræðir. Ég vil eindregið hvetja hæstv. ráðh. til þess að lesa slíkar till. betur áður en hann fer að ráðast á menn fyrir slíkan tillöguflutning.
Hæstv. ráðh. virðist vera þeirrar skoðunar að hann einn sitji uppi með alla visku í sjávarútvegsmálum á Íslandi. En hver er sú viska? Hvað sagði hv. frsm. meiri hl. sjútvn. um þá visku í ræðu sinni í dag? Hann sagði að hún væri slík að allir sjútvn.-menn vildu helst vera lausir við að bera hana fram. Það var öll viskan. Og hvað sögðu þeir aðilar sem komu á fund sjútvn. Nd. til þess að fjalla um þessa visku hæstv. ráðh.? Þeir báðust allir eindregið undan því að hún yrði sett í framkvæmd. Slík var viskan. Og hvað er það sem hæstv. ráðh. segir sjálfur héðan úr ræðustól í kvöld? Hann lofar því að láta það verða eitt sitt fyrsta verk að hnekkja því sem hann sjálfur er að gera. Er þetta viskan? Það er e. t. v. jafngott að allir forustumenn þjóðarinnar skuli ekki vera svona vitrir. Ég vil einnig benda hæstv. ráðh. á nokkuð þegar hann gagnrýnir okkar tillöguflutning í sambandi við c-lið á þskj. 680 þar sem við leggjum til, að í stað sjútvrn. ráðstafi Alþ. því sem afgangs kann að verða af gengismunarsjóðnum. Þetta segir hann að sé fráleit vitleysa og hlægileg vegna þess að það verði ekkert eftir. En er það minna hlægilegt og er það minna fráleitt að hæstv. ráðh. sjálfur eigi að úthluta því sem ekkert verður? Ef að samþ. er óbreytt frvgr. eins og hún hljóðar, þá gerir frv. ráð fyrir því að sjútvrh. úthluti því sem ekkert er, og er meiri viska í því að hæstv. sjútvrh. úthluti því, sem ekkert er, fremur en að Alþ. fái það verk?
Ég vil taka undir það sem hv. þm. Garðar Sigurðsson, sagði í ræðu sinni rétt áðan, að okkur var ókunnugt um þá skriflegu brtt. sem hv. form. sjútvn. mælti fyrir hér í dag, bar hana fram skriflega og þurfti afbrigða við. Ef hún verður samþ. væri auðvitað eðlilegt að j-liðurinn félli niður. Hæstv. sjútvrh. hefur ekki gert till. um að hann falli niður, þannig að hann virðist ætlast til þess að Alþ. samþ. að honum sé falið að úthluta fé sem ekkert verður, og ég skil ekki í því að það sé meiri viska að sjútvrh. hafi þetta verkefni en Alþ. Mér sýnist hvorugt vera ákaflega viturlegt og hefði raunverulega búist við því af hv. frsm. sjútvn., um leið og hann flutti sína till. sem minnkaði gengishagnaðarsjóðinn um þá fjárhæð sem hann tilgreindi, að þá gerði hann jafnframt brtt. um að þessi j-liður skyldi falla brott.