09.05.1975
Efri deild: 80. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3649 í B-deild Alþingistíðinda. (2764)
251. mál, ráðstöfun gengismunar í þágu sjávarútvegsins
Stefán Jónsson:
Herra forseti. Ég mun halda mjög stutta ræðu um frv. þetta nú við 1. umr. og geyma mér þá til 2. umr. að ræða eðli frv. fremur.
Ég efast ekki um að það sé mjög erfitt að finna svo snjalla lausn á jafnumfangsmiklu og flóknu vandamáli og hér er um að ræða að allir séu ánægðir með hana, og líklega væri ekki hægt að finna þess háttar lausn sem allir voru ánægðir með. Ég hélt líka að það væri erfitt að finna svo kjánalega lausn, jafnvel á svona flóknu vandamáli, að allir væru óánægðir með hana, eins og hæstv. ráðh. sagði okkur þó áðan að allir mundu nú með þessa. Ég leyfi mér að álykta af þessum ummælum hæstv. ráðh. og öðrum upplýsingum sem ég hef að jafngreindur og gegn maður og hann er hafi ekki fengið mjög miklu ráðið um gerð frv., enda kom það fram í ræðu hans að um það hafa miklu fleiri fjallað innan ríkisstj. og vafalaust í flokki hans og yrði þetta frv. þá sönnun fyrir gamla málshættinum um það hversu vel gefast viturra manna ráð þegar margir koma saman.
Ég vil þegar við 1. umr. lýsa yfir því að ég er andvígur þessu frv., Þetta frv. miðar að skerðingu á skiptahlut sjómanna, nákvæmlega það, því að því fer víðs fjarri að höfuðuppátækið, að taka gjaldið, olíuniðurgreiðslugjaldið, af útflutningsverðmæti sjávarafurða, hindri það að ráðstöfunin skerði skiptahlut sjómanna. Við vitum býsna vel hvernig gjald af útflutningsverði orkar á ákvörðun fiskverðs um það er lýkur. Það mun láta nærri að sjómenn haldi nú eftir 60–45% af afla til skipta.
Ég þarf ekki eftir ræðu hv. síðasta ræðumanns, Jóns Árm. Héðinssonar, og mundi raunar taka of langan tíma nú, það verður vikið að því nánar síðar — að koma inn á þau heilindi sem komið hafa í ljós núna síðustu dagana í sambandi við söluverðmæti útgerðarinnar á fiski til kaupenda. Ég vil aðeins vekja athygli á framíkalli frá hv. þm. Jóni Árnasyni í ræðu síðasta ræðumanns þegar síðasti ræðumaður, sem fengist hefur um allmargra ára bil við útgerð sjálfur, vakti athygli á þessu, hvernig fiskverðið hefur verið svikið í skiptum til sjómanna á þessari vertíð. Þá kallaði hv. þm. Jón Árnason fram í fyrir honum og spurði steinhissa á því að Jón Árm. Héðinsson, hv. þm., skyldi vekja athygli á þessum svikum: „Ert þú hættur að gera út?“ Og hv. þm. Jón Árm. Héðinsson sagði nei ósköp eðlilega, einhvern veginn með þeim tóni að þrátt fyrir það væri hann ekki neyddur til að þegja yfir skömmunum. En ég ítreka að við 2. umr, mun ég gera ítarlegri grein fyrir afstöðu minni til þessa frv.