26.11.1974
Sameinað þing: 12. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 378 í B-deild Alþingistíðinda. (278)

51. mál, gerð landshlutaáætlunar Norður-Þingeyjarsýslu

Forsrh. (Geir Hallgrímsson):

Herra forseti. Í tilefni fsp. hv. 4. þm. Norðurl. e., Halldórs Blöndals, hef ég óskað eftir upplýsingum frá áætlanadeild Framkvæmdastofnunar ríkisins og vil leyfa mér að lesa hér svör áætlanadeildar varðandi efni fyrirspurnanna. Bjarni Bragi Jónsson segir fyrir hönd áætlanadeildar Framkvæmdastofnunar ríkisins eftirfarandi:

„Starf að almennri byggðaþróunaráætlun fyrir Norður-Þingeyjarsýslu hófst vorið 1973. Verkið er unnið á vegum áætlanadeildar, en þar sem önnur verkefni sátu þá í fyrirrúmi var Verkfræðistofu Guðmundar Óskarssonar falið verkefnið undir umsjón áætlanadeildar. Nú fyrir skömmu hefur verið skilað heildarskýrslu um verkefnið. Er skýrslan nú til athugunar hjá stofnuninni og hefur jafnframt verið afhent Fjórðungssambandi Norðlendinga til athugunar. Munu á næstunni teknar ákvarðanir um hvernig samráði við heimamenn og annarri framhaldsmeðferð skýrslunnar verður hagað, þar á meðal um væntanlega birtingu hennar.

Varðandi 2. lið fyrirspurnarinnar, þ.e. til hvaða þátta áætluninni er ætlað að ná, er það að segja að áætlanagerð þessi er alhliða, þ.e. tekur til allra þátta byggðaþróunar eftir því sem heimildir ná til. Tillögugerð innan ramma áætlunarinnar getur því verið hvort sem er á sviði atvinnumála, opinberra framkvæmda og þjónustu eða húsnæðismála, almennra félagsmála o.s.frv. Þó skal á það bent að samgönguáætlun Norðurlands hefur jafnframt tekið til Norður-Þingeyjarsýslu.

Að svo stöddu geta þessar upplýsingar tæpast orðið ítarlegri.

Virðingarfyllst,

Framkvæmdastofnun ríkisins, áætlanadeild,

Bjarni Bragi Jónsson.“

Ég vil aðeins til viðbótar þessu láta það í ljós að ég er sammála hv. 4. þm. Norðurl. e. hvað snertir mikilvægi byggðaþróunar og þar af leiðandi hvað snertir mikilvægi þess að flýta þeirri landshlutaáætlanagerð sem hér um ræðir.