09.05.1975
Efri deild: 80. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3667 í B-deild Alþingistíðinda. (2784)

130. mál, fóstureyðingar

Frsm. meiri hl. (Oddur Ólafsson):

Herra forseti. Heilbr.- og trn. hefur gefið út svohljóðandi nál.:

„Nefndin hefur fjallað um frv. og kynnt sér umsagnir um það. Einnig hefur n. fjallað um allmörg erindi varðandi frv. er henni hafa borist. Nm. eru sammála um að nauðsynlegt sé, að mál þetta fái endanlega afgreiðslu á þessu þingi. Meiri hl. n. leggur því til að frv. verði samþ. óbreytt. Minni hl., Helgi F. Seljan, mun skila séráliti. Fjarstaddur afgreiðslu málsins var Alhert Guðmundsson.“

Það frv., sem hér um ræðir, er lengi búið að vera í meðferð þessa þings og fleiri þinga, enda mikið vandamál og ekki allir á einu máli um frv. Í umr. um þetta mál hafa komið fram ýmis sérsjónarmið og alleinkennileg, t. d. hefur þeirri stétt, sem á að framkvæma þetta frv. að verulegu leyti, læknum, verið brigslað um siðleysi, verið brigslað um hroka og ástæðan er sú að þeir hafa ekki viljað ganga eins langt í því að breyta lögum um þessi atriði í frjálsræðisátt og lagt var til á síðasta Alþ. Það er þó kannske ekki furða þó að það séu einmitt kvensjúkdómalæknarnir sem harðast hafa gengið fram í að hamla gegn þessum breytingum því að þeir eru mennirnir sem eiga að draga út lærin, draga út handleggina, draga út kramda heila. Þeir eru aðilarnir sem eru á staðnum, þar sem verknaðurinn er framinn, og framkvæma hann. Mér kemur í hug kvikmynd sem ég sá einu sinni. Hún fjallaði að verulegu leyti um stríðsmann sem var reyndar flugmaður. Hann hafði flogið alllengi í styrjöldinni, kastað niður bombum og skotið af vélbyssum og honum fannst þetta eiginlega hálfgert sport og taldi ekki að þetta væri sér sérlega ógeðfellt. Síðar kom að því að þessi maður lenti í fótgönguliðinu og stóð andspænis sínum andstæðingi þegar hann stakk hann með byssustingnum og þá opnuðust fljótt augu hans fyrir viðbjóði styrjalda. Læknarnir, sem eru á staðnum og framkvæma þessa hluti, vita hvað um er að ræða betur en aðrir. Og þess vegna finnst mér ómaklegt það álit sem hefur verið látið hér í ljós um afstöðu þessara manna til þess frv. sem hér liggur fyrir.

Annað, sem ég vildi aðeins gera að umræðuefni hér, er það að í nál. í Nd. á þskj. 428, er getið um svar og prentað svar við bréfi sem landlæknir hafði skrifað, og fjallar það nokkuð um störf þeirrar nefndar sem upphaflega samdi þetta frv. og grg. með því. Þetta bréf landlæknis hefur hins vegar hvergi verið prentað og því finn ég mig tilknúinn að lesa nokkuð úr þessu bréfi landlæknis, þar sem það kemur eins og skollinn úr sauðaleggnum að fá hér svar við bréfi sem enginn veit hvað hefur inni að halda. Ég mun þó stikla á stóru í þessu bréfi, en það er bréf frá landlækni og er aths. við grg. um frv. til l. um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir. Þar segir m. a.:

„Ritið er ekki unnið af vandvirkni. T. d. eru könnuð afdrif þess hóps kvenna er fékk leyfi til fóstureyðinga, en jafnframt er ekki til samanburðar athugaður sá hópur, er var synjað leyfis.

Auðvelt var að skrifa læknum landsins og kanna afdrif þeirra kvenna.

Síðan segir: „Í frásögnum af afdrifum kvenna, er sóttu um leyfi til nefndarinnar, en synjað var, eru sumar þess eðlis að ætla má að réttu máli sé hallað. Þar er lýst störfum fyrrv. landlæknis og nm. á þann hátt að ætla má nm. gersneydda allri mannúð. Aftur á móti er mér kunnugt um að fyrrv. landlæknir, Sigurður Sigurðsson, hefur með bréfi til heilbr.- og trmrh. skýrt frá staðreyndum og óskað eftir því, að bréf hans verði kynnt þm.“

Og enn segir hann: „Tölur ern ranghverfar í skýrslunni. Sem dæmi má nefna að talið er að á árunum 1966–1970 svari mæður á aldrinum 16–19 ára fyrir 51.8% af öllum fæðingum. Rétta hlutfallstalan er um 20% eða líkt og á öðrum Norðurlöndum. Mjög er rætt um fjölda kvenna, er synjað var um leyfi til fóstureyðinga samkv. lögum.“

Enn segir: „Túlkun laga um fóstureyðingu hefur orðið frjálsari hin síðustu ár á Íslandi líkt og í nágrannalöndunum. Á árunum 1966–1970 synjar nefndin 8 umsóknum af 79 eða 7.6%. Líkar tölur má nefna frá Danmörku og frá Svíþjóð árin 1984–1966 12.8% og 12.7%, en árin 1960–1968 6.4% og 4.4%. Þess ber þó að geta að verulega færri beiðnir um fóstureyðingu eru hér en í ofangreindum löndum.“

Hann segir svo síðar um fóstureyðingarlög í nágrannalöndunum: „Ákvæði, sem geri konu kleift að fá fóstureyðingu samkv. beiðni án þess að hún þurfi að færa sönnur á fullnægjandi ástæðu fyrir aðgerðinni, gildir í eftirfarandi löndum: Austur-Þýskalandi, Sovétríkjunum, Tékkóslóvakíu, Danmörku, Finnlandi, Rúmeníu, Júgóslavíu, Póllandi og Búlgaríu. Við þetta yfirlit er ýmislegt athugavert. Af þeim löndum, sem eru talin upp, er aðeins í Sovétríkjunum heimilt samkv. lögum að framkvæma fóstureyðingar að beiðni konu, en hún verður jafnframt að sækja sérstaklega um slíka heimild.“

Ég ætla svo ekki að tala meira um þessa upptalningu hér, en síðan segir: „Fóstureyðingarlög í Evrópu og Norður-Ameríku hafa yfirleitt orðið frjálslegri að gerð og í framkvæmd á undanförnum árum, en þó með nokkrum undantekningum: Búlgaríu, Póllandi og Rúmeníu. Í þeim löndum hefur verið horfið frá að heimila fóstureyðingu að ósk konunnar og er nú krafist umsagnar nefndar. Fóstureyðing að ósk konu er því aðeins heimil í Rússlandi, Ungverjalandi, Júgóslavíu og fjórum ríkjum Bandaríkjanna, Danmörku og Svíþjóð. Skammt er liðið frá því að fóstureyðing var leyfð að ósk konu meðal þjóða er búa við lík kjör og við og lítil reynsla fengin af framkvæmd laga þar.“

Síðar segir landlæknir ýmislegt um þann skaða sem kona geti hlotið af fóstureyðingu, og er þá komið að einu því atriði sem læknar hafa einnig verið með áhyggjur út af, og það er að hluti af þeim konum, sem fóstureyðingu fá, þær verða ófrjóar og geta ekki eignast barn síðar. Um það hver þessi kona verði og reyndar einnig hvernig hlutfallið sé er ekki hægt að víta fyrir fram. Það lækkar að sjálfsögðu með bættri tækni. En það hefur þó sýnt sig að hve fullkomin sem tæknin er verður alltaf einhver hluti þeirra ófrjór. Þetta er mjög alvarlegt mál og þar sem hér er að sjálfsögðu um að ræða grundvallarskilyrði til viðhalds hverju þjóðfélagi, þá er varla að undra þó að þeir, sem gerst þekkja til þessara hluta, séu svolítið hikandi við að fara þarna inn á nýjar brautir sem er vafasamt hvort hafi reynst vel þar sem þær hafa verið reyndar og reyndar hafa hvergi verið framkvæmdar um lengri tíma. Hins vegar þykir af ýmsum ástæðum ekki fært annað en að gera þessa löggjöf okkar frjálslegri en hún hefur áður verið og þess vegna höfum við, meiri hl. nefndarinnar, lagt til að frv. verði samþ. óbreytt.