09.05.1975
Efri deild: 80. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3680 í B-deild Alþingistíðinda. (2789)

130. mál, fóstureyðingar

Frsm. minni hl. (Helgi F. Seljan):

Herra forseti. Þetta getur verið örstutt. Ég tek fyllilega undir með hv. 3. þm. Vestf., Þorvaldi Garðari, að okkur beri skylda til þess að bæta félagslegar aðstæður í þessu landi sem allra mest. Ég veit enda að hann er gamall jafnaðarmaður og veit sömuleiðis að grunnt er á þeim góða jafnaðarmanni enn í honum og fagna því. Hins vegar þótti mér stundum eins og þessi ágæti hæstv. forseti okkar talaði eins og aldrei hefði verið um það að ræða að hér hefðu verið leyfðar fóstureyðingar, svo fjálg var ræða hans á köflum, en ekki efast ég um að þar hafi verið af hjarta mælt. Ég skal hins vegar játa það að ég úfna alltaf heldur við þegar verið er að tala um þetta kristilega siðgæði, þetta óskilgreinda kristilega siðgæði sem við höfum því miður fengið að kynnast heldur rangsnúinni hlið á hjá þeirri stofnun sem á að sjá framar öðrum um þetta blessaða marglofaða kristilega siðgæði. Hitt skal ég svo fúslega játast undir að ef átt er við kristilegt siðgæði eins og það kom fram í orðum meistarans frá Nasaret, þá get ég tekið þar undir. En þá verður að gera töluverðan greinarmun á kristilegu siðgæði kirkjunnar annars vegar og siðgæðinu, sem hann boðaði, hins vegar. Og þar kemur vitanlega sagan óhugnanlega upp á móti okkur.

Hv. 3. þm. Vestf. talaði um það að þegar frelsi væri nefnt hugsaði ég til sama lands og hann gerði, til lands frelsisins, Bandaríkjanna, og síðan fór hann að ræða það frekar. Ég hygg að við hugsum kannske ekki alveg nákvæmlega eins til þess lands, en það kann að vera að sé stutt á milli engu að síður. Ég ræddi hins vegar ekki í minni ræðu um frelsi beint, heldur um réttindi, og samanburður hans, mjög snjall og ágætur, frá landi frelsisins, Nixons og Watergates, — sá samanburður hans var því fremur mér í hag og mínum skoðunum þar sem meginniðurstaða, sem hann vitnaði í hjá sjálfum Abraham Lincoln, hefði verið sú að menn ættu að ráða lífi sínu framar öðru. Það var einmitt það sem ég vék að áðan varðandi réttindi konunnar til að ráða þannig lífi sínu.

Í sambandi við orðið „neyðarúrræði“, sem hv. 2. þm. Reykn. kom hér að, þá vil ég lýsa því að það er mín skoðun og það er einnig skoðun þeirra kvenna, sem ég hef rætt við um þetta mál og hafa verið harðastar varðandi fylgi við 9, gr. frv. eins og hún var upphaflega, að þetta sé neyðarúrræði einnig frá siðferðilegu sjónarmiði.

Hv. þm. Oddur Ólafsson ræddi um það áðan, að læknar væru íhaldssamir í þessum efnum og það væri ekki nema að vonum og vitnaði í heit þeirra sem ég efast ekki um að langflestir þeirra fylgja alldyggilega þó að ég af persónulegum ástæðum efi að allir fylgi þeim heitum nákvæmlega eftir. A. m. k. þekki ég dæmi um tilraunir lækna á dauðvona sjúklingi og hygg að þeir hafi eitthvað farið þar út fyrir þau mörk í sambandi við lotningu fyrir lífinu sem oft er svo fjálglega um rætt. En læknar eru sem betur fer ekki allir íhaldssamir og ég játa það að ef túlkun hv. þm. Sverris Bergmanns væri notuð, þá gæti ég skrifaði undir 9. gr., eins og hún er nú í dag. En það vill bara svo til, því miður, að hvað sem ágæti íslenskra lækna líður, þá er víðsýni og frjálslyndi þeirra allra ekki hið sama og hjá hv. þm. Sverri Bergmann sem sagði í Nd., með leyfi hæstv. forseta: „Læknirinn verður aldrei annað en staðfestingaraðili í þessum efnum.“ Ég legg til við hv. heilbrn. að hún íhugi hvort ekki megi gera vottorðin einfaldari en gert er ráð fyrir í frv. Læknirinn þarf ekki annað en að staðfesta umsögn konunnar. Í sumum tilfellum verður læknirinn ekki aðeins staðfestingaraðili, hann verður einnig beinlínis ráðleggjandi aðili, þannig að hann mælir með því að konan láti framkvæma fóstureyðingu. Þetta mundi læknirinn gera ef konan væri augljóslega haldin einhverjum slíkum sjúkdómi að líklegt væri að það að ganga með barn og ala barn gæti valdið henni alvarlegu og varanlegu heilsutjóni. Ég hef persónulega staðið frammi fyrir slíkum ráðleggingum oftar en einu sinni og síðast fyrir hálfum mánuði. Hins vegar er það konan sem ræður hvaða ákvörðun hún tekur, en ekki ég, það er hennar mál. Hún á sitt líf“.

Þetta voru orð hv. þm. Sverris Bergmanns og þau gæti ég gert að mínum. Ef ég mætti túlka þessa grein á sama hátt og hann gerir greinilega, þá gæti ég skrifað undir hana, en ekki eins og hún er túlkuð almennt af læknastéttinni.