09.05.1975
Efri deild: 81. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3695 í B-deild Alþingistíðinda. (2800)
264. mál, Verðjöfnunarsjóður fiskiðnaðarins
Frsm. minni hl. (Jón Árm. Héðinsson) :
Herra forseti. Eins og kom fram hjá talsmanni meiri hl. skiluðum við tveir þm. StJ. og ég, sérnál. á þskj. 617 og mun ég nú lesa það upp.
Með löggjöf um Verðjöfnunarsjóð fiskiðnaðarins var lögð sú kvöð á alla aðila í sjávarútvegi að geyma eftir atvikum hluta að verðhækkun sem kæmi fram yfir ákveðna viðmiðun. Með þessu móti skyldi reyna að hamla á móti áhrifum verðsveiflna á sjávarafurðum. Í 1. gr. laga um sjóðinn segir: „Hlutverk sjóðsins er að draga úr áhrifum verðsveiflna er verða kunna á útflutningsafurðum fiskiðnaðarins.“ Með þessu móti var lögð sérstök kvöð umfram aðra aðila þjóðfélagsins á alla þátttakendur í sjávarátvegi í þeim tilgangi að hefta verðbólguþróun. Þeim var sem sagt gert að skyldu að afsala sér hluta tekna sinna og geyma um óákveðinn tíma. Í raun þýddi þetta að ekki var skilað öllum gjaldeyri til framleiðenda eða þjóðarbúsins fyrir seldar afurðir. Það, sem haldið var eftir, átti að varðveita í Seðlabanka Íslands. Í 2. gr. l. er kveðið nánar á um hvernig með skuli fara það fé sem geymt er. Þar segir: „Verði breyting á gengi ísl. kr. skal fé sjóðsins umreiknast til hækkunar eða lækkunar eftir því sem við á í samræmi við gengisbreyt., að því leyti sem það kann að vera ávaxtað í ísl. kr.“
Hér er komið að efni þessa frv. Eins og l. gera ráð fyrir má ætla að stór hluti sjóðsins eða jafnvel allt fé hans sé geymt í erlendri mynt og varðveitt þannig. Þetta er tilgangur l. svo að ekki komi til verðrýrnunar vegna gengisfalls á ísl. kr. Ef allt væri með felldu í búskap okkar og Seðlabankinn ætti jafnan eitthvað af erlendum gjaldeyri sýndist réttmætt að eign Verðjöfnunarsjóðs væri varðveitt eingöngu sem hreint geymslufé í erlendri mynt og þá sem hreinn varasjóður fyrir sjávarritveginn eins og upphaflega var til ætlast En svo ömurlega hefur tekist til að við síðustu gengisfellingu reyndist eign Seðlabankans í erlendum gjaldeyri svo örsmá að bankinn getur ekki staðið við gengistrygginguna og því er þetta frv. flutt til þess að losa hann undan skyldum sinni og koma tapinu yfir á ríkissjóð. Það hefur sem sé komið í ljós að búið var að lána þetta fé út í raun og auka þar með á verðbólguna þvert ofan í tilgang laganna. Eins og oft áður verður svo ríkissjóður að hlaupa undir bagga og hann skal bjarga þótt rýr sé, og veit enginn hve miklu er hér á hann ávísað gagnvart framtíðinni. Þetta kann að vera óhjákvæmilegt miðað við ríkjandi ástand, en er ömurlegt tákn um stjórnlaust efnahagsástand.
Einnig er í þessu frv. sett inn nýtt ákvæði sem er þó í heimildarformi, en það kveður svo á að eftirleiðis megi lána bönkum og öðrum sjóðum fé á vegum Verðjöfnunarsjóðs hér innanlands með allt að 100% gengisáhættu. Gera má ráð fyrir að þetta sé nauðsynlegt og ætti að tryggja eign sjóðsins í íslenskum kr. talið. En varla verður fýsilegt fyrir atvinnulífið að taka slík lán ef höfð er í huga tíðni gengisfellinga á s. l. árum og hin geigvænlega verðrýrnun ísl. kr.
Þetta frv. er talið eiga rétt á sér þar sem ekki hefur reynst unnt að varðveita inneign Verðjöfnunarsjóðs sérstaklega í erlendum gjaldeyri og ráðstafa eingöngu í beinu sambandi við verðsveiflur á sjávarafurðum okkar sem þó var upphaflegur tilgangur l. um sjóðinn.
Við undirritaðir höfum hér að framan gert grein fyrir skoðunum okkar á þessu máli. En með hliðsjón af því að staðreynd er að gjaldeyrissjóðir okkar eru uppétnir munum við ekki greiða atkv. gegn frv., en það verður að koma í hlut stjórnarflokkanna að bera ábyrgð á þróun þessara mála.