09.05.1975
Efri deild: 81. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3701 í B-deild Alþingistíðinda. (2812)
265. mál, ráðstafanir vegna breytingar á gengi íslenskrar krónu
Jón Árnason:
Herra forseti. Í sambandi við þetta mál vil ég segja það, að ég man ekki eftir þeirri hörðu andstöðu frá stjórnarandstöðunni í sambandi við þá samþykkt sem hér var gerð við gengisbreytinguna 29. ágúst s. l. Ég held að það hafi farið ákaflega lítið fyrir þeirri andstöðu vegna þess að það virtist svo að þetta ákvæði hefði farið fram hjá flestum þm. Það, sem hér er verið að gera er að það er verið að leysa Seðlabankann undan þeirri kvöð sem hann hefur haft frá því 1909, þegar lögin voru samþ., varðandi þetta ákvæði um Verðjöfnunarsjóðinn. Forsendan fyrir því, að þetta lagaákvæði var látið taka gildi á sínum tíma, er sú að Verðjöfnunarsjóðurinn verður alltaf að vera fyrir hendi. Það getur hvenær sem er komið til þess að til hans verði að grípa, og þá er sjálfsagt að verðgildi sjóðsins sé tryggt eins og unnt er í sambandi við gengisbreytingar sem verða. Þetta eru peningar sem Seðlabankinn hefur til ráðstöfunar og geymslu, og það er þá þeirra, sem taka þetta fé til ráðstöfunar, að ákveða um að nota peningana með þeim skilmálum sem hér var um að ræða í sambandi við þetta ákvæði varðandi gengistrygginguna. Ég tel að það hafi verið alveg rétt og sjálfsagt að setja þetta lagaákvæði eins og gert var á sínum tíma.
Það kann vel að vera að það sé af ýmsum öðrum ástæðum rétt að það verði ríkissjóður sem hér verði ábyrgur, en ekki Seðlabankinn. Þegar harðnar á dalnum eins og nú hefur átt sér stað um gjaldeyrisvarasjóð þjóðarinnar og það hefur orðið að eyða honum öllum og meira en það, eins og átti sér stað þegar gengisbreytingin seinni kom til framkvæmda, þá má venjulega segja að staðan í gjaldeyrismálum þjóðarinnar sé þannig þegar gripið er til gengisfellingar, að þá eru uppurnir allir gjaldeyrissjóðir sem um er að ræða.
Ég tel að það sé alls ekki rétt, sem hv. 1. landsk. hélt hér fram áðan, að ríkisstj. þurfi að vera að bæta fyrir einhverja vitleysu sem hún hafi gert í þessu sambandi. Það er alls ekki. Það er verið að koma hér á leiðréttingu í þessu máli. Og ég endurtek það að ég minnist ekki þeirrar hörðu andstöðu sem þm. talaði hér um í sambandi við afgreiðslu málsins 29. ágúst þegar gengisbreytingin átti sér þá stað.
Ég tel svo ekki ástæðu til að orðlengja frekar um málið.