09.05.1975
Efri deild: 81. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3701 í B-deild Alþingistíðinda. (2813)
265. mál, ráðstafanir vegna breytingar á gengi íslenskrar krónu
Stefán Jónsson:
Herra forseti. Aðeins örfá orð og þá fyrst og fremst vegna ræðu síðasta hv. ræðumanns, Jóns Árnasonar, 2. þm. Vesturl.
Ef hv. þm. Jón Árnason minnist ekki harðrar andstöðu gegn gengisbreytingunni, þá er það illa farið. Ef hann hefði orðið þeirrar gæfu aðnjótandi að verða hennar var á sínum tíma, þá má vel vera að hann hefði lagt sitt af mörkum til þess að koma í veg fyrir hana með þeim afleiðingum sem nú blasa við okkur.
Hér er vissulega verið að leiðrétta misferli af hálfu ríkisstj. og væri vissulega tími til kominn og fullkomin ástæða til að Alþ. gerði ráðstafanir til þess að leiðrétta fleiri mistök af hálfu ríkisstj. í sambandi við stöðu sjávarútvegsins. Má e. t. v. til sanns vegar færa að meiri þörf væri á því fyrir hv. Alþ. að gera ráðstafanir til þess að bæta gjaldeyrisstöðu okkar, bæta stöðu sjávarútvegsins og sjóða sjávarútvegsins með því að koma út til fiskveiða nær þremur tugum stórra nýtískutogara, sem nú eru bundnir við bryggju, heldur en að þurfa að eyða tíma í að ræða svona innra brask með bókfærsluatriði í sambandi við tóma gjaldeyrisvarasjóði okkar. Sannleikurinn er sá að þegar rætt er um tóma gjaldeyrissjóði, þá er það náttúrlega reginhneyksli að Alþ. skuli ræða önnur mál en stöðu stóru togaranna í dag sem bundnir eru við bryggju í staðinn fyrir að vera að afla okkur gjaldeyris.