09.05.1975
Efri deild: 82. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3711 í B-deild Alþingistíðinda. (2829)

11. mál, launajöfnunarbætur

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Ég ætla ekki að fara að ræða efnislega þetta frv. og ekki almannatryggingabæturnar. En aðeins út af fsp. hv. 5. þm. Norðurl. v. vil ég taka það fram, að miðað við þá stefnu, sem ríkisstj. og efnahagssérfræðingar hennar hafa nú markað og telja að verði að fara eftir ef við eigum ekki að raska til muna þjóðarbúskapnum, þá teljum við að þau 3%, sem reiknað er með frá 1. júlí, dugi. Verði veruleg breyt. á því í aðra átt, sem stefni í ógæfuátt, því að við verðum að búa nú við minni þjóðarframleiðslu en áður, þá auðvitað er hægt að taka þetta mál til athugunar og afgreiðslu í ríkisstj. og breyta bótum, almennum lífeyrisbótum almannatrygginganna, með einfaldri reglugerð, eins og bæði við í þessari ríkisstj. höfum gert og hefur verið gert af fyrri ríkisstj.