26.11.1974
Sameinað þing: 12. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 384 í B-deild Alþingistíðinda. (286)

300. mál, endurvarpsstöðvar sjónvarps á Austurlandi

Fyrirspyrjandi (Helgi F. Seljan):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram fsp. til hæstv. menntmrh. á þskj, 31, svo hljóðandi:

„1. Hve margar smærri endurvarpsstöðvar fyrir einstök byggðarlög á Austurlandi eru í umsjá og eigu heimaaðila?

2. Hvenær ráðgerir Sjónvarpið að fullkomna þessar stöðvar og yfirtaka rekstur þeirra að fullu?“

Þetta mál er okkur báðum mætavel kunnugt sem og sjónvarpsmál austfirðinga yfirleitt. Því ber ég fram fsp. þessa. Um hana hafa komið eindregnar óskir austan að og menn þar eins og ég einnig vita góðan hug hæstv. ráðh. í þessu máli og vænta því úrbóta. Það er reyndar ekki aðeins í þessu einangraða máli sem úrbóta er vænst, úrbóta sem forráðamenn Sjónvarpsins hafa daufheyrst við þó að fast hafi verið knúið á, jafnt af okkur þm. sem austfirðingum yfirleitt. Segja mætti að það væri raunar nær að byrja á byrjuninni, þ.e. hljóðvarpinu okkar blessuðu, sem enn eftir meira en 3 áratugi heyrist vægast sagt misjafnlega og stundum alls ekki sums staðar þar eystra. Það hefur ótvírætt verið lögð þar áhersla á margt annað frekar en góða dreifingu útvarpsefnisins, og hún virðist a.m.k. í litlu samræmi við lenginguna á dagskránni. Sjónvarpsdreifing á Austurlandi er annars um tvennt athugunar- og úrbótaverð. Annars vegar nær sjónvarp alls ekki til fjölmennra byggðarlaga, og hins vegar eru skilyrði vægast sagt léleg, þar sem þau þó eiga að vera fyrir hendi.

Í öllu þessu treysti ég mjög á framtak hæstv. menntmrh. og veit, að hann mun þar einskis láta ófreistað að ráða bót á því óviðunandi ástandi, sem viðgengst með að því er virðist fullri velþóknun þessarar virðulegu þjónustustofnunar alls landsfólksins.

En hvað sjálfa fsp. snertir beint er forsaga þess máls sú að heimamenn á nokkrum stöðum eystra vildu ekki bíða sjónvarpssendinga eftir áætlun Sjónvarpsins heldur komu upp stöðvum í samráði við þá aðila sem hér eiga hlut að, Sjónvarpíð og Landssíma Íslands, sem í umboði þess annast tæknihlið dreifingarinnar. Stöðvarnar átti svo að yfirtaka síðar. Margar voru af vanefnum gerðar, en hvergi þannig að unnið að bryti í bága við framtíðarlausn. Ég hygg að samkv. öllum áætlunum ætti Sjónvarpið fyrir löngu að hafa tekið stöðvar þessar að sér og eflaust er svo um einhverjar þeirra, en um aðrar gildir það að enn hafa heimamenn allan veg og vanda og ýmsan kostnað af þessum stöðvum. Því er um það spurt, hversu margar þessar stöðvar séu og hvenær Sjónvarpið hyggist bæta ráð sitt, — raunar í heild, en um það efni hefði fsp. ef til vill frekar átt að fjalla. Það hef ég hins vegar áður spurt um og fengið svör sem fólu í sér víss fyrirheit, sem ég held að séu óefnd að miklu eða öllu leyti í dag. A.m.k. hef ég ekki sem sjónvarpsnotandi eystra orðið þeirra tiltakanlega var. Þrátt fyrir þessar og aðrar vanefndir þessarar stofnunar við okkur austfirðinga væri fróðlegt að vita hvort ekki væri a.m.k. mögulegt að koma hér til móts við óskir heimamanna sem fyrst, taka af þeirra herðum reksturinn að fullu og sakaði þá ekki að huga duggunarlítið að öllu hinn í leiðinni.

Mig langar svo aðeins að víkja örfáum orðum að smáfyrirspurn um sjónvarpsmál þeirra er syðst búa í Múlasýslum, þ.e. þeirra í Geithellnahreppnum. Þeir treysta nú mjög á það að fá sjónvarp til sín sem fyrst, þar eð bæði vegur og rafmagn er nú til staðar varðandi þann fyrirhugaða stað sem endurvarpsstöð á að rísa á fyrir Álftafjörðinn. Af því að ég veit að hæstv. ráðh. hefur athugað mál þetta sérstaklega nú nýlega þætti mér vænt um að fá einnig hér upplýst hver staða þessa máls er nú í dag.