09.05.1975
Neðri deild: 81. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3736 í B-deild Alþingistíðinda. (2867)

285. mál, lán fyrir Flugleiðir hf.

Magnús Kjartansson:

Hæstv. forseti. Hér er um ákaflega stórt og ákaflega flókið og mikilvægt mál að ræða, og mér finnst hæstv. ríkisstj. hafa í sambandi við það viðhaft vinnubrögð sem eru í rauninni alger óvirðing við Alþingi íslendinga. Ég veit ekki betur en að það sé ætlun hæstv. ríkisstj.Alþ. ljúki störfum nú fyrir hvítasunnu, þ. e. a. s. eftir viku, og þessu máli er kastað hér inn með afbrigðum og ætlast til þess að það verði afgr. í báðum deildum á þessum stutta tíma.

Nú hefur þetta mál verið á vegum ríkisstj. mjög lengi. Það er í okt. í fyrra sem beiðni kemur frá forráðamönnum Flugleiða að fá þessa óhemjulega stórfelldu ríkisábyrgð. Þetta er ríkisábyrgð sem ásamt fyrri ábyrgðum nemur um 4 milljörðum kr. Í grg. segir að hæstv. ríkisstj. hafi látið kanna þessa beiðni flugfélaganna og niðurstöður hafi legið fyrir í febr. Mér er kunnugt um það að síðan voru skipaðar sérstakar nefndir í þingflokkum stjórnarflokkanna til að fara ofan í þetta mál og kanna það, og það var mikil vinna, senn þar var unnin, og margt sem þurfti að skoða. En við stjórnarandstæðingar höfum ekkert fengið um málið að vita.

Við Alþb.- menn snerum okkur til hæstv. forsrh. fyrir nokkrum vikum, vegna þess að við höfðum fregnir af því að það stæði til að leggja fram slíkt frv., og óskuðum eftir því að fá aðgang að þeim gögnum sem þetta mál varða. Hæstv. forsrh. tók þessari málaleitan vel, en gögnin hafa aldrei komið. Það eina, sem okkur hefur borist, var handrit að þessu frv. sem við fengum á miðvikudaginn var og engar frekari upplýsingar um málið.

Í sambandi við þetta hlýtur að verða að skoða ákaflega margt. Þarna er um hrikalega upphæð að ræða, 4 milljarða kr., og það er einkaaðili sem fer fram á það við ríkisstj. að þjóðarheildin gangi í ábyrgð fyrir 4 milljörðum kr. fyrir slíkt einkafyrirtæki. Ég tel að í sambandi við þetta hljótum við almennir alþm., sem höfum ekki tekið þátt í þessari sérstöku athugun ríkisstj., að leita eftir gögnum um ákaflega mörg atriði. Hvernig er t. d. háttað hlutafé í Flugleiðum? Við vitum hvað hlutafé Flugfélags Íslands var, en um hlutafé Loftleiða held ég að viti ekki nokkur maður, því að það á eftir að reikna það út, skilst mér. En alla vega er ljóst að hlutafé þarna er ekki í neinu hlutfalli við þann umfangsmikla atvinnurekstur sem þarna er hafður uppi.

Þetta er auðvitað ákaflega stórt mál fyrir okkur íslendinga, og ég er algerlega sammála hæstv. fjmrh. um að við íslendingar verðum að tryggja forræði okkar á sviði flugmála. Það verðum við að gera. En það forræði hefur Flugfélag Íslands fyrst og fremst annast eins og menn vita. Það hefur annast flugsamgöngur hér innanlands og það hefur annast það fyrst og fremst að flytja okkur íslendinga út til meginlands Evrópu. Starfsemi Loftleiða hefur hins vegar verið á öðrum vettvangi. Þar hafa aðallega verið fluttir farþegar yfir Atlantshaf, sem hafa að miklum meiri hl. til verið erlendir aðilar, auk þess sem félagið hefur starfrækt fyrirtæki sem heitir Air Bahama og snertir að sjálfsögðu ekki íslenskt forræði á sviði flugmála á einn eða neinn hátt. Þetta verðum við að fá vitneskju um líka, því að ef ríkið á að fara að taka svona feiknalega ábyrgð á fjárfestingu í svona fyrirtæki og þar með á rekstri þess, þá verðum við að fá vitneskju um hvaða ábyrgð við erum að leggja á okkur. Ég veit ekki betur en að það hafi komið í ljós á síðasta ári að það hafi orðið halli á flugi Loftleiða yfir Atlantshaf með útlendinga. Dettur mönnum í hug að það geti staðist til frambúðar að við íslendingar förum að borga með ferðalögum útlendinga yfir Atlantshaf? Auðvitað kemur ekkert slíkt til mála. Þess vegna verður að skoða heildarskipan þessara mála í sambandi við hrikalega ákvörðun af þessu tagi.

Nú mér finnst einnig að það þurfi að kanna ýmsa þætti í starfsemi þessara flugfélaga, t. d. hótelrekstur þeirra, þar sem ýmsir afar dularfullir atburðir hafa gerst, og bílaleigu sem rekin er á vegum þessara fyrirtækja. Þarna hafa þessi fyrirtæki verið að koma upp hálfgildings einokunaraðstöðu fyrir sig. Ég veit ekki betur en nú sé verið að verja æðimiklum fjármunum til þess að koma upp mjög fullkominni kaffiteríu á Hótel Esju sem mundi vafalaust drepa fjölmargar smærri kaffiteríur sem eru þar í nágrenninu. Þannig er þessi aðili að reyna að tryggja sér einokunaraðstöðu á okkar litla og þrönga markaði. Um þetta allt saman tel ég að við alþm. eigum heimtingu á að fá vitneskju. Við eigum heimtingu á að fá í okkar hendur öll gögn og að spyrja þá sem gætu veitt okkur fræðslu um þetta efni.

Ég veit ekki hvort hæstv. fjmrh. heyrir mál mitt. Ég var að segja, hæstv. fjmrh., að ég tel að við alþm. eigum heimtingu á því að fá nægan tíma til þess að fjalla efnislega um þetta mál, að við fáum að kynna okkur öll grundvallargögn í því sambandi og við fáum til viðræðna við okkur ýmsa embættismenn og sérfræðinga, sem um þetta mál hafa fjallað, þannig að við getum kannað það á fullkomlega eðlilegan hátt og tekið til þess þann tíma sem við þurfum. Ég mótmæli því algerlega ef ætlunin er að reka þetta mál gegnum þn., t. a. m. hér í okkar d., á einum eða tveimur dögum. Þetta mál er miklu stærra en svo að slík vinnubrögð komi til mála. Auk þess er þarna verið að gefa ríkisstj. ákaflega stórar heimildir sem ég te1 að Alþ. sjálft eigi að fjalla um. „Ríkisstj. er heimilt“ — segir í 1. gr. — „gegn þeim tryggingum, sem hún metur gildar, og með skilyrðum, sem hún ákveður, þ. á m. um hlutafjáraukningu og eftirlit með fjárhagslegum ákvörðunum félagsins, að veita sjálfskuldarábyrgð“ o. s. frv. Það er verið að veita hæstv. ríkisstj. opna ákvörðun til þess að fjalla um alla þessa þætti. Ég tel ekki að við alþm. getum ráðstafað fjármunum þjóðarinnar á svo gálauslegan hátt að við gerumst ábyrgir fyrir 4 milljörðum kr. án þess að þeirri ákvörðun fylgi þá ákvarðanir af okkar hálfu um það hvernig að þessu máli skuli staðið.

Ég er ekki reiðubúinn til þess að greina frá mínum hugmyndum í þessu sambandi vegna þess að ég hef engin gögn fengið og ég get ekki gert upp mínar skoðanir um þetta fyrr en ég er búinn að fá þessi gögn og fyrr en ég hef fengið ráðrúm til þess að kanna þau. Og ég held að það hljóti að verða afstaða alþm. almennt að svona mál sé ekki hægt að afgr. í neinu hendingskasti. Við þurfum að skoða það mjög gaumgæfilega. Því legg ég enn á það áherslu við hæstv. fjmrh. að sú n., sem fær málið til umfjöllunar, fái eðlilegar upplýsingar og eðlilegan tíma til þess að fullvinna sína afstöðu í málinu.