26.11.1974
Sameinað þing: 12. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 385 í B-deild Alþingistíðinda. (287)
300. mál, endurvarpsstöðvar sjónvarps á Austurlandi
Menntmrh. (Vilhjálmur Hjálmarsson):
Herra forseti. Ég vil út af þessari fsp. geta þess að vegna umr. um dreifingu sjónvarps, fsp. og tillöguflutnings á Alþ. oft áður, hefur menntmrn. látið gera ítarlega skýrslu um þessi efni í heild og ég vonast til þess að geta látið þm. hana í té, fjölritaða eða ljósritaða, alveg á næstunni væntanlega í næstu viku. Ég vil líka segja það, áður en ég svara fsp. beint, að ég lít svo á að það að ljúka dreifingu sjónvarpsins um landið það sé hreint mannréttindamál. Það hefur staðið upp á okkur með þetta, hv. alþm., að hlutast til um að þessu máli yrði lokið. Það hefur síðustu 2–3 árin nálega ekkert verið aukið við sjónvarpskerfið. Það þýðir ekki annað en að segja það eins og er. Þetta er auðvitað fyrst og fremst vegna þess að ekki hafa ekki verið tiltækir fjármunir til þess að fara í þetta verkefni, en þetta er að mínum dómi, bókstaflega talað orðið mannréttindamál sem ég tel að við verðum að taka rögg á okkur, hv. alþm., þeir sem fjárveitingavaldið hafa og umráð yfir þessum hlutum, og ráða bót þar á.
Fsp. sjálfri, sem er í tveimur liðum, vil ég svara þannig: Fyrst er spurt: „Hve margar smærri endurvarpsstöðvar fyrir einstök byggðarlög á Austurlandi eru í umsjá og eigu heimaaðila?“ — Svarið er: Samkv. upplýsingum frá Landssíma Íslands eru 4 endurvarpsstöðvar á Austurlandi, enn sem komið er, bráðabirgðastöðvar, þ.e. að þær búa við ófullkomna aðstöðu. Þessar stöðvar eru á Breiðdalsvík, Stöðvarfirði, Reyðarfirði og Jökuldal. Þó er komin endanleg rafmagnslína á Seyðisfirði og endanlegt mastur á Reyðarfirði. Heimamenn hafa eftirlit með þessum stöðvum öllum, en viðgerðir á tækjabúnaði annast tæknimenn Landssímans. Allur tækjabúnaður stöðvanna hefur verið greiddur af Ríkisútvarpinu og er í eigu þess. Hins vegar lögðu heimamenn á sig mikla vinnu og sums staðar fjármuni til þess að flýta því að þessar stöðvar kæmust upp. Á það við um nokkra aðra staði víðs vegar um landið. Útlagður kostnaður heimamanna í þessu sambandi hefur verið endurgreiddur að því leyti sem endurgreiðslu hefur verið óskað og eigi er vitað til að nokkrir eigi óinnleystar kröfur á hendur Ríkisútvarpinu af þessu tilefni segja þeir vísu menn.
Svo er seinni fyrirspurnin: „Hvenær ráðgerir Sjónvarpið að fullkomna þessar stöðvar og yfirtaka rekstur þeirra að fullu?“ — Þar er svarið: Landssími Íslands hefur að beiðni Ríkisútvarpsins gert áætlun um kostnað vegna aðkallandi verkefna við endurbyggingu eða endurbætur nokkurra endurvarpsstöðva sjónvarps. Nær þessi áætlun til 11 endurvarpsstöðva, þ. á m. Breiðdalsvíkur. Áætlaður kostnaður við bráðabirgðaaðgerð þar er 250 000 kr. og Stöðvarfjarðarstöðina kostar um 2.6 millj. að fullgera. Kostnaður vegna þessara 11 stöðva, sem áætlun hefur verið gerð um, er alls 22.9 millj. kr. Í annan stað hefur Landssíminn gert aðra áætlun, er nær til 16 annarra stöðva, og greinir þar hver er áætlaður kostnaður við endurbætur og frágang þeirra. Heildarkostnaður er áætlaður 35.4 millj. kr., þar af fullnaðarfrágangur á stöðinni á Breiðdalsvík 5.9 millj. kr. og á Reyðarfirði 2.85 millj. kr. Í þriðja lagi hefur svo Landssíminn gert áætlun um byggingu 14 nýrra stöðva vegna landssvæða sem enn hafa ekki komist í sjónvarpssamband. Heildarkostnaður þeirra framkvæmda er 49.5 millj. kr. Um það bil þriðjungur þessa kostnaðar er vegna nýrra stöðva á Austurlandi. Ríkisútvarpið hefur ekki fjárhagslegt bolmagn til þess að ráðast í þessar framkvæmdir og augljóst er að þær verður að fjármagna með lántökum. Eftir heimild til lántöku hefur enn ekki verið leitað af Ríkisútvarpsins hálfu.
Þetta eru sem sagt svörin við hinum prentuðu fsp.
Þá vil ég í tilefni af fsp., sem hv. fyrirspyrjandi beindi til mín að auki um hvað liði framkvæmdum í Álftafirði austur, geta þess að ég hef rætt þetta mál ítrekað í haust og vetur við hlutaðeigendur. Seinast, þegar þessi fsp. var komin fram, óskaði ég eftir alveg beinum svörum og helst skriflegum við því hvernig þetta mál stæði. Fékk ég þau með bréfi frá útvarpsstjóra, dags. 19. nóv. 1974, sem hann kallar minnisblað um sjónvarp í Álftafirði, og þar segir:
„1. Sendistöðin á Djúpavogi, sem sendir merki til Álftafjarðar, er starfandi“ — og ég vil bæta því við að til skamms tíma hefur þessi stöð tæplega verið það góð að hún geti fullnægt því að vera nauðsynlegur og fullgildur milliliður og matað þá stöð sem áformað er að byggja í Álftafirði. En úr því er annaðhvort búið að bæta ellegar það verður gert alveg á næstunni. — „2. Lögð hefur verið raflína og vegur að þeim stað sem valinn hefur verið Álftafjarðarstöðinni. Nýbúið er að semja við verktaka um smiði mannvirkja, en óvíst hvenær hægt verður að hefjast handa (það er nokkuð undir veðri komið). Senditæki og mastur er til, loftnet hefur verið pantað. Landssíminn treystir sér ekki að lofa neinu ákveðnu um það hvenær stöðin fari í gang, fremur en þessar upplýsingar gefa til kynna.“
Þetta var bréf útvarpsstjóra frá 19. nóv. um þetta sérstaka atriði. Þá held ég að ég hafi svarað fsp. nokkurn veginn, en vil árétta það að ég mun geta dreift til hv. alþm. skýrslu um þá vitneskju sem fyrir liggur varðandi það sem eftir er að framkvæma til þess að sjónvarpið nái til allra landsmanna.