09.05.1975
Neðri deild: 81. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3752 í B-deild Alþingistíðinda. (2882)

272. mál, íslensk stafsetning

Sigurlaug Bjarnadóttir:

Hæstv. forseti. Ég vil ekki lengja mjög þessar umræður, en ég get ekki látið hjá líða að lýsa yfir einlægum stuðningi mínum við það frv. til l. sem hér liggur fyrir. Það er ekki seinna vænna að það komi fram, svo miklum vandræðum og ringulreið sem auglýsing ráðh. frá í fyrra er þegar búin að valda. Ég þekki nokkuð inn í raðir kennarastéttar hér í Reykjavík a. m. k., og ég hef ekki hitt fyrir einn einasta kennara sem mælir þeirri breytingu bót sem gerð var í fyrra. Hún virðist í senn órökvís og vanhugsuð.

Það eru vissulega mörg ómerkari mál sem Alþ. hefur talið ástæðu til að setja um löggjöf heldur en íslensk réttritun sem við hljótum að líta á sem eitt af grundvallaratriðum okkar menningar, þ. e. a. s. óaðskiljanlegan hluta íslensks máls, íslenskrar menningar.

Það urðu miklar og harðar umr. um afnám z á síðasta þingi, þ. e. a. s. þinginu í fyrra. Ég skal viðurkenna, að mér var nokkuð ósárt um z, mér finnst hún ekki skipta meginmáli. Og í sambandi við 2. gr. þessa frv., þar sem tekið er fram að þess skuli ekki krafist í barnaskólum að kennd sé z, heldur s, þá vil ég benda á að í námsskrá þeirri, sem íslenskukennarar fara almennt eftir nú, er heimild fyrir því að z þurfi ekki að kenna í seinfærari bekkjum. Mér finnst þetta mjög rétt og eðlileg ákvörðun. Ég vil að gagnvart z fremur en öðrum stöfum e. t. v. í íslensku ritmáli gildi viss sveigjanleiki og umburðarlyndi. Það er óhæfa, hvað z, eftir því sem íslenskukennarar segja, hefur tekið óhæfilega mikinn tíma af íslenskukennslunni, ekki síst meðal þeirra nemenda sem eitthvað áttu bágara með að tileinka sér hana, og það er alger óþarfi að mínu áliti að gera hana að þvílíku tortímingaratriði gagnvart einkunnagjöf í íslensku eins og hún hefur verið hingað til.

Ég fyrir mitt leyti tel að það sé engum sæmilega greindum manni ofætlun að læra reglurnar um z. En afstaða mín er sú að við verðum að sýna þarna, eins og ég sagði, visst umburðarlyndi og vera ekki allt of einstrengingsleg gagnvart þeim sem vissulega eiga erfitt með að læra hana. Ákaflega miklu jákvæðara teldi ég að íslenskukennurum, sem losnuðu við að kenna yfir heilu línuna z, gæfist meiri tími og þeir legðu meiri rækt við ýmsa aðra þætti íslensks máls, eins og t. d. almenna og lifandi notkun málsins. Maður heyrir nú jafnvel af munni háskólamenntaðs fólks hluti sem gefa manni ástæðu til að hafa nokkrar áhyggjur af málkunnáttu íslendinga almennt — eða hve oft heyrist ekki af munni menntaðra manna — jafnvel menntaðra manna — annað eins og það að talað er um að eitthvað sé frábærlega eða framúrskarandi ljótt. Og heyrt hef ég oftar en einu sinni að orðtakið — hið gamla og góða orðtak — að finna smjörþefinn af einhverju hefur verið notað í alrangri merkingu, eins og þeirri að það sé nauðsynlegt að íslensk börn finni smjörþefinn af því að nota bókasöfn, í staðinn fyrir að átt var við sennilega að þau þyrftu að hafa einhverja nasasjón af því — þar kom annað gott íslenskt orðtak. En það er urmull af slíkum atriðum sem ég fer ekki út í hér, en ástæða væri til að gefa meiri gaum en gert hefur verið hingað til og láta frekar tímann fara í heldur en einstrengingslegar reglur um z.

Ég gat um áðan, eins og raunar hefur komið fram í máli þeirra sem hér hafa talað áður, að þessar nýju reglur hafa valdið miklum glundroða og vandræðum í skólum landsins. Þar að auki er það sýnt mál að næðu þær að festast, sem ákvörðun, þá hefur það í för með sér stórkostlegan kostnað, sem við erum ekki búin að gera okkur grein fyrir, í bókaútgáfu á næstu árum.

Það var talandi dæmi um hversu órökvísar þessar reglur eru um lítinn og stóran staf, þar sem hólsfjallamaður skal skrifast með litlum staf, en Hólsfjallahangikjöt með stórum. Og þannig getum við lengi talið upp. Í einu orði sagt, mér hefur liðið illa að lesa í sumum dagblaðanna og sums staðar sem maður hefur séð þessar ritreglur notaðar, — mér hefur liðið hreinlega illa að líta þær augum. Þarna er um að ræða í senn ákaflega kollóttan, litlausan og órökvísan rithátt.

Ég skal ekki hafa fleiri orð um þetta. Ég vil endurtaka að mér finnst að þekking á notkun z ætti ekki að vera úrskurðaratriði um það hvort íslendingur er sendibréfsfær eða ekki, en það er óþarfi að útiloka hana úr málinu samt. Ég held að við getum ekki nógsamlega lagt áherslu á það, hve notkun íslensks máls er okkur mikilvæg og okkur mikið menningaratriði, og ég vil gjalda varhug við skoðun þeirra manna sem vilja gefa allar reglur frjálsar og leyfa mönnum að skrifa eins og þeim best líkar. Við eigum í vök að verjast gagnvart erlendum áhrifum úr öllum áttum og okkur ber skylda til að standa vörð um okkar mál. Og ég tel að ritreglurnar séu það mikill hluti okkar málmenningar að við þær verðum við að leggja rækt og hafa um þær fastmótaðar reglur sem ég tel eðlilegast og réttast að sett sé um sérstök löggjöf.