10.05.1975
Sameinað þing: 75. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3760 í B-deild Alþingistíðinda. (2891)

215. mál, hafnaáætlun 1975-1978

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að benda á um leið og þessi till. til þál. um hafnarframkvæmdir fyrir árin 1975–1978 er lögð fram, að samkv. Niðurstöðutölum, sem geta hækkað, eins og hæstv. samgrh. tók fram, er hugsað að verja samtals 822.6 millj. til hafnargerða 1975, 881.1 millj. 1976 og 1745.6 millj. 1977 og 1978. Í þessari till., sem hér liggur frammi, kemur fram hvernig verja á þessu fé. Ég vil benda á að það er ekki hugsað framlag til Reykjavíkurhafnar á neinu af þessum árum. Eins og ég hef áður bent á hefur Reykjavíkurhöfn verið sjálfstætt og nokkuð fjársterkt fyrirtæki, en nú er svo komið að Reykjavíkurhöfn á enga sjóði og ekki aðgang að lánsfé til nýbygginga og rekstur hafnarinnar leyfir ekki frekari lántökur. Tekjuafgangur Reykjavíkurhafnar af rekstri með 4–5 milljarða kr. fjárfestingu var áætlaður 18 millj., — það er rétt að ég geti þess að ég á sæti í hafnarstjórn Reykjavíkur, — en þá átti eftir að taka til greina þær hækkanir sem síðast var samið um, launahækkanir o. fl., og náttúrlega þær hækkanir sem hugsanlega kunna að verða við næstu samninga. En ástand hafnarinnar, svo að maður tali nú ekki um nýbyggingar, er þannig að hún er talin stórhættuleg. Við höfum ekki haft fjárhagslegt bolmagn til að hafa í gangi vinnuflokka til að halda höfninni það vel við að hún geti talist hættulaus. Ég vil aðeins benda á þetta ástand, sem ríkir í Reykjavík, og tel að það sé ástæða til þess að ríkisstjórnin láti fara fram athugun á því hvernig ástandið í fjármálum Reykjavíkurhafnar er áður en hún gerir áætlanir langt fram í tímann. Gjaldskrárhækkanir hafa ekki verið leyfðar að neinu marki eða a. m. k. ekki að því marki sem nauðsynlegt er talið til að standa undir lágmarksviðhaldi húsa og mannvirkja. Það er því óhjákvæmilegt að benda á þörfina fyrir að Reykjavíkurhöfn verði ekki lengur útundan þegar framkvæmdafé er deilt til hafnarframkvæmda hér á hinu háa Alþ. Reykjavík er ekki lengur hin ríka mamma, eins og hv. þm. Magnús Kjartansson tók til orða um daginn. Við erum ekki lengur sú ríka mamma sem hægt er að hafa út undan þegar framkvæmdafé þjóðarinnar er skipt á milli byggðarlaga.

Ráðh. gat þess að hann vildi hafa gott samstarf við hafnarstjórnir. Ég vona að hann ætli sér einhvern tíma til þess að kynna sér ástand fjármála Reykjavíkurhafnar með því að annaðhvort boða á sinn fund hafnarstjórann í Reykjavík eða láta embættismenn sína hafa samstarf við hann og endurmeta þarfir Reykjavíkurhafnar. Ég fagna því að ráðh. ætlast ekki til þess að þessi till. hljóti hér endanlega afgreiðslu, heldur muni hún fá víðtæka endurskoðun, að mér skilst, hjá fjvn. og undirnefnd fjvn. Ég treysti því að fjvn. endurskoði hana að því marki að Reykjavíkurhöfn fái a. m. k. einhverja aðstoð í þeim vanda sem fram undan er, því að ekki getum við verið ábyrgir fyrir því, hvorki við, sem í hafnarstjórn Reykjavíkurborgar sitjum, né heldur á hinu háa Alþ., að stöðva annars vegar eðlilegar gjaldskrárhækkanir hafnarinnar og fyrirbyggja að hún geti á eðlilegan hátt starfað og gegnt sínu hlutverki og svo líka hér á hinu háa Alþ. komið í veg fyrir að fjárveitingum sé beint til Reykjavíkurhafnar eins og annarra hafna sem á fjárveitingum þurfa að halda.

Mér þykir ástæða til að bera fram þá ósk til hæstv. ríkisstj. að hún hætti að verka sem einhvers konar bremsa á eðlilegar gjaldskrárhækkanir sem fylgja eiga eðlilegum rekstrarkostnaðarhækkunum í þjóðfélaginu hverju sinni, en píni ekki góð fyrirtæki sveitarfélaga, sem hingað til hafa verið sjálfstæð, en nú eru búin að éta upp sína sjóði, éta upp lánstraust sitt hjá innlendum aðilum og hafa neyðst til þess að fara út í erlendar rekstrarfjárlántökur sem gera það að verkum að taxtarnir þurfa þá að vera enn hærri en eðlilegt hefði verið hefðu hækkanirnar fengið sína eðlilegu meðferð á réttum tímum.