10.05.1975
Efri deild: 84. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3778 í B-deild Alþingistíðinda. (2906)

276. mál, virkjun Hvítár í Borgarfirði

Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Hv. fyrri flm., 2. þm. Vesturl., hefur nú gert ítarlega og glögga grein fyrir þessu máli, frv. um virkjun Hvítár við Kláffoss. Ég þarf ekki mörgu þar við að bæta, en vil þó láta nokkur orð falla um málið nú strax við 1. umr.

Ég held að það liggi ljóst fyrir að hér sé um hagkvæma virkjun að ræða og hún standist að því er kostnað snertir fyllilega samanburð við aðrar virkjanir sem teljast hagkvæmar. Gert er ráð fyrir að Orkustofnun láti í ljós álit sitt á virkjunarframkvæmdum áður en þær yrðu festar í lögum, og fyrir nokkru óskaði ég eftir því við Orkustofnun að hún léti í té nú þegar umsögn um þetta mál. Sú umsögn liggur nú fyrir og er rétt að taka fram að þar segir m. a. að miðað við þær stofnkostnaðar- og orkuvinnslutölur sem liggi fyrir virðist hér um hagkvæma virkjun að ræða, einkum þegar stærð hennar er höfð í huga. Ekki er á grundvelli fyrirliggjandi upplýsinga unnt að bera hagkvæmni Kláffossvirkjunar beint saman við t. d. Hrauneyjarfoss-, Blöndu- eða Kröfluvirkjun. Til þess þarf að samræma áætlanirnar. Síðar segir í umsögn orkumálastjóra m.a.:

„Því miður er ekki um marga virkjunarstaði að ræða þar sem saman fer fremur lítil stærð og hagkvæmni, en Kláffoss virðist skera sig úr að þessu leyti. Hér ber því í rauninni allt að sama brunni, að þessi virkjun verður að teljast hagkvæm virkjun.“

Í umsögn Orkustofnunar eru svo hugleiðingar um það hvenær tímabært mundi verða að ráðast í þessa virkjun og talið nauðsynlegt að hafa þar samráð við aðra virkjunaraðila, fyrst og fremst Landsvirkjun, sem framleiðir og selur orku á þessu sama svæði. En síðar segir í lok umsagnar Orkustofnunar að Orkustofnunin sjái ekki neitt því til fyrirstöðu að Alþ. veiti umbeðna virkjunarheimild. Þessi umsögn, sem mér hefur nú alveg nýlega borist, verður að sjálfsögðu lögð fyrir iðnn. þessarar deildar.

Ég held að óhjákvæmilega hljóti orkumál almennt að blandast nokkuð inn í þetta mál og þá m. a. sá ágreiningur sem oft hefur verið uppi um það hvort byggja ætti eingöngu eða aðallega stórar virkjanir og sjá héruðunum fyrir rafmagni með háspennulínum þannig milli landshluta frá þessum stórvirkjunum eða hvort á að gera hvort tveggja, að ráðast í stórvirkjanir, að sjálfsögðu með tengingu milli landshluta fyrir augum þegar tímabært yrði og hægt kostnaðar vegna, en um leið væru einnig byggð orkuver heima í héruðunum, þ. e. a. s. smærri virkjanir. Ég tel alveg hiklaust að beri að fylgja hinni síðari stefnu, að hinar stóru virkjanir eigi ekki að útiloka smærri virkjanir í héruðunum og þess vegna eigi hiklaust á næstunni að ráðast í þessa virkjun í Borgarfirði sem að allra dómi er hagkvæm virkjun.

Það er rétt að taka það fram að það sem ræður þessari afstöðu er m. a. öryggissjónarmið. Það er ljóst að þegar leiða þarf rafmagn mjög langa vegu er ekki aðeins hætta á því að háspennulínur kunni að bila í stórviðrum að vetrarlagi, heldur getur einnig alltaf eitthvað komið fyrir hinar stóru virkjanir og þá er mikill háski á ferðum. Til þess að skapa meira öryggi fyrir íbúana er því nauðsynlegt að hafa smærri virkjanir einnig heima fyrir. En auk þessa öryggissjónarmiðs kemur annað til. Sú skoðun hefur rutt sér mjög til rúms og henni aukist fylgi að undanförnu, að auka beri sjálfsforræði sveitarfélaganna og héraðanna, auka til þeirra verkefni frá ríkisvaldinu. Ég held það sé ótvírætt að einnig virkjanir heima í héruðunum séu liður í þessari viðleitni og þessari baráttu fyrir auknu sjálfsforræði sveitarfélaganna. Þess hefur líka orðið mjög vart að heimamenn eru mjög áhugasamir, ekki aðeins varðandi þessa virkjun í Borgarfirði, heldur einnig um virkjanir heima fyrir í öðrum landshlutum.

Nú er það svo, eins og hv. 2. þm. Vesturl. kom inn á í ræðu sinni, að það er alger samstaða um þetta mál heima í héraði, ekki aðeins á því svæði sem Andakílsvirkjun nær yfir í þrengri merkingu, en Andakílsvirkjun er eins og kunnugt er eign Mýra- og Borgarfjarðarsýslna og Akraneskaupstaðar, heldur nær þessi áhugi og samstaða einnig til annarra hluta Vesturlandskjördæmis, þ. e. a. s. Snæfellsnes- og Dalasýslu.

Varðandi skipulag orkumála er það allt til skoðunar nú og kemur væntanlega til meðferðar Alþ. á haustþinginu, en ég tel að hiklaust beri að stefna að því að samtök héraðanna, þ. e. a. s. orkuveitur í hverjum landshluta, hvort sem er miðað beint við kjördæmi eða önnur mörk, eigi að hafa með höndum miklu meiri verkefni í þessum efnum en verið hefur.

1. flm. gat um að það væri áhugi á því að færa út Andakílsvirkjun þannig að öll héruðin í Vesturlandskjördæmi verði þar aðilar að.

Varðandi Norðurland er nú unnið að því af sérstakri nefnd, sem skipuð var fyrir nokkru, að kanna stofnun Norðurlandsvirkjunar eða Norðurlandsveitu, og enn fremur er unnið að því að kanna viðhorf sveitarfélaga á Austurlandi til stofnunar sameignarfyrirtækis sveitarfélaganna og ríkisins varðandi Austurland.

Ég vil að þessu öllu athuguðu mæla eindregið með því að þetta frv. um heimild til virkjunar Hvítár í Borgarfirði, sem hér liggur fyrir, verði samþ.

Að lokum vil ég aðeins nefna eitt atriði sem mér finnst ástæða til fyrir hv. n. að athuga, og það er með heitið á þessum fossi, því örnefni sem hér er um að ræða. Í frv. er talað um Kláffoss í Hvítá í Borgarfirði og það heiti er mjög algengt eins og kunnugt er. Hins vegar nota ýmsir heitið Kljáfoss um þennan sama foss. M. a. kemur það fram í bréfi sem mér barst nýlega frá Ungmennasambandi Borgarfjarðar, þar sem 53. þing Ungmennasambandsins skorar á viðkomandi ráðamenn að greiða fyrir því að Andakílsárvirkjun geti hafið virkjunarframkvæmdir við Kljáfoss í Hvítá hið allra fyrsta. Nú má vera að það skipti ekki ýkjamiklu máli hvort heitið verður fyrir valinu, og að sjálfsögðu verða héraðsbúar sjálfir fyrst og fremst að ráða þar um. En ég vil aðeins benda á það að í merku riti eftir Harald Sigurðsson bókavörð um Borgarfjarðarsýslu, þ. e. a. s. Árbók Ferðafélags Íslands frá 1954, segir þessi ágæti fræðimaður að rétt neðan við Hurðarbak verði „foss í ánni, sá er Kljáfoss heitir. Fossinn hefur stundum á síðari árum verið nefndur Kláffoss, en það nafn finnst mér vitanlega hvergi í eldri heimildum.“

Ég vildi aðeins leyfa mér út af þessum tveimur heitum, sem eru notuð á víxl, að beina því til n. hvort hugsanlegt væri að komast að niðurstöðu í því efni.

Ég vil svo endurtaka það að ég tel að hér sé um merkilegt mál að ræða og æskilegt að Alþ. fallist á frv. og afgr. þá heimild sem farið er fram á.