10.05.1975
Efri deild: 84. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3781 í B-deild Alþingistíðinda. (2909)

276. mál, virkjun Hvítár í Borgarfirði

Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Ég vil taka mjög undir það sem síðasti ræðumaður, hv. 5. þm. Austf., sagði. Þess hefur orðið vart hér, að reynt er að gera þessi virkjunarmál á Austurlandi, þ. e. a. s. virkjun Bessastaðaár, tortryggileg, eins og hann kom inn á, m. a. í fjölmiðlum. Það er kannske létt verk, en löðurmannlegt að reyna að breiða það út meðal landslýðsins að það sé ekkert vatn í þessari á á sumum árstímum, í þeirri á sem á að virkja. Þessi ummæli eru ákaflega villandi, vegna þess að öllum hefur verið ljóst frá upphafi og komið fram í frumáætlunum og margsinnis í umr. hér á þingi að það sem gerir þessa virkjun mjög álitlega, er ekki sjálft vatnsmagnið í Bessastaðaá, heldur tvennt: annars vegar fallhæðin og hins vegar þeir miklu vatnsmiðlunarmöguleikar sem þar eru. Og það er alveg rétt, sem hv. 5. þm. Austf. tók fram, að þar er gert ráð fyrir að hægt sé að gera slíka vatnsmiðlun að þar sé um að ræða margra mánaða forða, eins og hann sagði, 5 mánaða forða. Þó að það sé vafalaust rétt að áin geti orðið mjög vatnslítil á vissum árstímum, þá er það miðlunin sem tryggir starfsemi virkjunarinnar. Ég tel t. d. að það hafi verið heldur óheppilegt að í sjónvarpi nýlega var reynt með ummælum og myndum þar að gera þetta mál tortryggilegt með því að halda því fram hversu lítið vatnsmagn sé í ánni, án þess að geta um það jafnframt að það er einmitt þessi miðlun og hin mikla fallhæð sem skapar þessa möguleika.

Ég tel alveg nauðsynlegt vegna þessara tilrauna til þess að gera málið tortryggilegt að undirstrika það að að undirbúningi Bessastaðaárvirkjunar er unnið af kappi. Lögin voru samþ. hér fyrir jól. Rafmagnsveitum ríkisins var falinn allur undirbúningur. Fyrirtækinu Hönnun hf. var falið verkið í samráði við Rafmagnsveiturnar, og það var lögð á það áhersla við báða þessa aðila að öllum undirbúningi yrði hraðað sem föng væru á. Í fjárlögum er gert ráð fyrir 150 millj. kr. í þessu skyni á þessu ári og gert ráð fyrir að því verði varið til undirbúningskostnaðar vegagerðar, jarðvegsrannsókna og annars sem þarf að gera.

Ég vil aðeins bæta því við að nú fyrir nokkru hefur Orkustofnun verið sérstaklega falið að framkvæma rannsóknarboranir og skýrslugerð varðandi niðurstöður þeirra á svæði Bessastaðaárvirkjunar í Fljótsdal. Enn fremur hafa verið gerðar ráðstafanir til að flytja vinnuskála frá Lagarfossvirkjun þaðan og upp í Fljótsdal þar sem þeirra er not. Enn fremur vil ég taka það fram að Rannsóknastofnun landbúnaðarins hefur fyrir skömmu einnig verið falið að láta nú í vor framkvæma gróðurfarsrannsóknir á fyrirhuguðu vatnasvæði Bessastaðaárvirkjunar í Fljótsdal, þannig að það hefur ekkert breyst í þessum efnum. Að þessu máli er unnið af fullu kappi eins og ótvíræður vilji Alþ. liggur fyrir um, bæði með afgreiðslu laga um virkjunina og með afgreiðslu fjárlaga þar sem ákveðið er að heimila að verja 150 millj. kr. í þessu skyni á þessu ári.