10.05.1975
Efri deild: 84. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3783 í B-deild Alþingistíðinda. (2914)
140. mál, gatnagerðargjöld
Fram. (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Herra forseti. Hv. félmn. hefur tekið þetta frv. til meðferðar og samþ. að mæla með samþykkt þess svo sem fram kemur í nál. á þskj. 589. Fjarverandi afgreiðslu málsins voru Eggert G, Þorsteinsson, Steingrímur Hermannsson og Ólafur Ólafsson.
Frv. þetta kemur frá Nd. og er um breytingar á lögum nr. 5l frá 1974, um gatnagerðargjöld. 7 3. gr. l. er kveðið svo á að sveitarstjórnum sé heimilt að ákveða með sérstakri samþykkt, sem ráðh. staðfestir, að innheimta sérstakt gjald sem varið skal til framkvæmda við að setja bundið slitlag á götur í sveitarfélaginu og til lagningar gangstétta. Þegar lög þessi komu til framkvæmda og fyrstu samþykktir á grundvelli þessara laga bárust félmrn. til staðfestingar taldi rn. orka tvímælis, hvort þessu ákvæði í lögunum yrði heitt í þeim tilfellum þegar framkvæmdir við bundið slitlag á götum og gangstéttum hefðu verið gerðar fyrir gildistöku laganna. Það þótti orka tvímælis ákvæði í 4. gr. 1., þar sem tekið var fram, að gjöld samkvæmt 3, gr. mætti innheimta af öllum fasteignum við þær götur sem bundið slitlag er sett á og þar sem gangstéttir eru lagðar. Frv. felur í sér breyt. á þessu orðalagi: „eru lagðar“. Í staðinn kemur, eins og frv. var upphaflega lagt fram í Nd.: „hafa verið lagðar“. í Nd. var svo gerð breyt. á frv. á þá leið að þetta ákvæði hljóðar svo: „Gjald samkvæmt 3. gr. má innheimta af öllum fasteignum við þær götur sem bundið slitlag hefur verið sett á og þar sem gangstéttir hafa verið lagðar, enda sé eigi lengri tími en 5 ár liðinn frá því að slitlag var sett eða gangstétt lögð.“ Það er þetta ákvæði, að binda heimildina við það að eigi sé lengri tími en 6 ár liðinn frá því að slitlag var sett eða gangstétt lögð, sem felst í breyt. hv. Nd. Það var enginn ágreiningur um þessa breyt. sem gerð var á frv. í hv. Nd. og í þessu formi hefur frv. komið til þessarar hv. d. Það er þetta form á frv. sem hv. félmn. mælir með að verði samþ.