10.05.1975
Efri deild: 84. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3785 í B-deild Alþingistíðinda. (2918)
140. mál, gatnagerðargjöld
Helgi F. Seljan; Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. — Það er rétt að þetta er að miklu leyti til komið vegna þess að þegar mörg hinna smærri sveitarfélaga réðust í sínar umfangsmiklu framkvæmdir og fjárfreku, þá voru þau mörg hver ekki tilbúin með sina reglugerð um gatnagerðargjöld, það er rétt, og þau komust fljótlega að raun um að með óbreyttum tekjum sínum gætu þau ekki ráðið við þetta mikla verkefni. Vitanlega varð svo niðurstaða þeirra flestra eða sennilega allra að þau urðu að leita á náðir þessa, að því er mér fannst frá upphafi, sjálfsagða tekjustofns. En ég tel rétt að upplýsa það hér vegna t. d. Austurlands, þar sem þessi gatnagerðargjöld eru nú fyrst að koma til sögunnar, tveim árum má segja eftir að sveitarfélög þar hófu sínar stórframkvæmdir í þeim málum, þá hefur verið farið mjög hóflega í sakirnar með álagningu þessara gjalda þótt aftur í tímann væri. Þessum gjöldum hefur verið skipt niður yfirleitt hjá þessum sveitarfélögum á 5 ár. Ég tek það alveg skýrt fram að íbúarnir, sem eru yfirleitt ekki mjög hrifnir af því að fá, eins og hv. 12. þm. Reykv. tók fram áðan, gjöld sem koma eftir á, — að íbúarnir á þessum stöðum öllum hafa talið þetta sjálfsagt og gegn þessu hefur ekki heyrst ein einasta mótbára svo að mér sé kunnugt um, enda hafa sveitarstjórnirnar farið eins hóflega í þessa heimild eða ætla sér að fara eins hóflega í þessa heimild og þeim er mögulegt. Hitt er svo annað að þetta gildir aðeins vegna þessara stórframkvæmda sem sveitarfélögin hafa ráðist í nú að undanförnu og vegna þess að þau höfðu ekki, því miður, búið sig nógu vel undir. Það er alveg rétt, þau höfðu ekki reiknað með því fyllilega að þau þyrftu að taka þennan tekjustofn inn, en ég tel sjálfsagt, þar sem vilji íbúanna er svo ótvíræður sem raun ber vitni, að þessi tekjustofn sé nýttur, og ef íbúarnir greiða hann með glöðu geði, þá tel ég sjálfsagt að sveitarfélögunum verði veitt þessi fulla heimild.