10.05.1975
Efri deild: 84. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3786 í B-deild Alþingistíðinda. (2919)

140. mál, gatnagerðargjöld

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Ég skal taka undir það með hv. 10. landsk. þm. að tekjuöflun sveitarfélaga er þröngur stakkur skorinn eins og nú er. Því er ég sammála gatnagerðargjöldum og hef ekkert við það að athuga að þau séu innheimt til að standa undir framkvæmdum við gatnagerðir hvort sem þær ern með varanlegu slitlagi eða ekki. Reykjavík hefur ekki innheimt gatnagerðargjöld fyrr en tiltölulega nýlega, — mig minnir að það hafi verið 1972 eða í kringum það, — en Kópavogur t. d. reið á vaðið með gatnagerðargjöld, ef ég fer rétt með, 1958.

Það er eflaust mjög rétt ákvörðun hjá þeim að finna upp þessi gatnagerðargjöld. En það kemur mér spánskt fyrir sjónir, ef maður má orða það þannig, að íbúar almennt úti á landi óski eftir frekari álögum en nú eru þegar á þeim, þeir telji sig færa um að bæta á sig gatnagerðargjöldum sem verka aftur fyrir sig. Ég satt að segja gerði mér ekki grein fyrir því. Ég hef haldið að álagning á fólk og dýrtíðin væri alveg nóg fyrir fólk að greiða almennt. Þetta er nýtt fyrir mig, sérstaklega úr þeim herbúðum sem þessi orð voru töluð. Ég er reiðubúinn til að draga minn málflutning til baka allan ef það er vilji fólksins úti á landi að auka byrðarnar og hækka þá gjöld og láta þau verka aftur fyrir sig, sérstaklega þó á Austfjörðum, mér skilst að það sé svo ríkt fólk þar.

En ég vil segja það að þegar beint er til mín orðum hér sem borgarráðsmanns í Reykjavík, þá býst ég ekki við að Reykjavíkurborg eða meiri hl., sem nú situr í borgarstjórn Reykjavíkur, mundi nokkurn tíma nota sér slíka heimild þó að hún yrði samþykkt. Okkur finnst reykvíkingar þurfa að borga alveg nóg eins og er. Ég hélt að fólki um land allt fyndist sér misboðið ef nú ætti að fara að taka gjöld til að standa undir framkvæmdum fyrri tíma. En ef það er rétt hjá hv. 7. landsk. þm. að fólkið bókstaflega óskar eftir frekari gjöldum til að standa undir gatnagerð, þá dreg ég minn málflutning til baka og biðst afsökunar á því að hafa eytt tíma þessarar hv. d. í þessar umræður.