10.05.1975
Neðri deild: 82. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3806 í B-deild Alþingistíðinda. (2964)
Umræður utan dagskrár
Forseti (Magnús T. Ólafsson):
Út af máli því, sem vakið var máls á utan dagskrár um fsp. í d., vil ég skýra frá því að bréf voru send hlutaðeigandi ráðh. samdægurs og fsp. voru leyfðar í d., þ. e. a. s. 3. mars um fsp. til iðnrh. og 12. mars um fsp. til heilbr.- og trmrh. Tímafrestur er ekki á svörum, en í bréfunum er óskað eftir að hlutaðeigandi ráðh. láti forseta vita þegar þeir eru við því búnir að svara þessum fsp. Vil ég mega vænta þess að sú vitneskja berist við fyrstu hentugleika.