10.05.1975
Neðri deild: 82. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3809 í B-deild Alþingistíðinda. (2973)

220. mál, atvinnuleysistryggingar

Magnús Kjartansson:

Hæstv. forseti. Það er rétt, það er annarlegur hraði á þessu máli. Ég hef ekkert á móti því að hraði sé á málum sem búið er að afgreiða, en þannig stendur á um þetta mál að við, sem skipum minni hl. n., ég og hv. þm. Karvel Pálmason, höfum ekki ráðrúm til þess fyrr en í dag að ganga frá brtt. við frv., og alla vega er ótækt að hægt sé að ræða það fyrr en brtt. eru komnar á borð hv. þm. Ég vil mælast til þess við hæstv. forseta að umr. fari ekki fram fyrr en þessar brtt. eru komnar.