10.05.1975
Neðri deild: 82. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3824 í B-deild Alþingistíðinda. (2989)
11. mál, launajöfnunarbætur
Guðmundur H. Garðarsson:
Virðulegi forseti. Ég vildi fá að segja nokkur orð í sambandi við þetta frv. og vil byrja með því að segja að ég get ekki fallist á það sjónarmið hv. 3. þm. Reykv., að 1. og 2. gr. þessa frv. séu ögrun við verkalýðshreyfinguna. Ég geri ráð fyrir því að ég þekki betur til verkalýðshreyfingarinnar en hv. þm. þótt hann hafi verið að nudda sér utan í hana á undangengnum áratugum án þess að vera virkur og beinn þátttakandi í henni. Hins vegar ber að virða þann góða vilja sem stundum hefur birst í verkum hans gagnvart þeirri hreyfingu. Ég held að ég verði að segja það að allir viti það raunverulega og óþarft sé að vera að tíunda það hér í þingsal að þessar tvær greinar eru eðlileg afleiðing af yfirlýsingu ríkisstj. s. l. haust, þegar hún átti í viðræðum við verkalýðshreyfinguna um láglaunabætur, og koma þess vegna í beinn framhaldi af þeim brbl., sem þá voru sett. Svo er það aftur annað mál, hvort láglaunabæturnar hafi verið nægilega háar eða ekki. Um það væri aftur á móti hægt að deila og geri ég ráð fyrir að flestir hefðu óskað þess að þær hefðu verið hærri.
Hins vegar hlýt ég að lýsa því yfir varðandi bætur almannatrygginga, að ég tel að frv. stefni í rétta átt og í því felist jákvæðar breytingar til hækkunar á greiðslu ellilífeyris og örorkubóta. En auðvitað þarf að gera betur og mun að sjálfsögðu verða stefnt að því af hálfu hæstv. núv. ríkisstj. þegar bati verður í efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar.
Ég mótmæli því sem stuðningsmaður núv. ríkisstj. að það sé stefna stjórnarinnar eða okkar stjórnarstuðningsmanna að níðast á gömlu fólki. Slík stóryrði í garð okkar eru ekki viðeigandi í jafnviðkvæmu máli eins og það er, að ákveða bætur til gamla fólksins, og að segja eins og hv. 3. þm. Reykv. sagði að það væri verið að leysa efnahagsvandamál þjóðarinnar á kostnað aldraðs fólks og öryrkja í landinu, er ósæmandi.
Hv. þm. bar saman almennan lífeyri í Danmörku og hér. Ég held ég verði að segja að það er algjörlega útilokað að bera saman ellilífeyri hér á Íslandi við það sem greitt er t. d. í Danmörku eða Svíþjóð. Það er allt annað kerfi sem þar er notað í sambandi við þessi mál auk þess sem efnahags- og atvinnulíf þessara þjóða er byggt upp með allt öðrum hætti en okkar efnahagslíf. Það er viðurkennt og það vitum við, sem höfum starfað úti í atvinnulífinu, að við erum háðir miklu meiri sveiflum og meiri áhættu en t. d. atvinnuvegirnir eða ríkisbúskapurinn í Danmörku eða á Norðurlöndum yfirleitt. Hv. 3. þm. Reykv. hristir höfuðið yfir þessu sem er von. Hann viðurkennir ekki að íslendingar séu háðir sjávarafla og séu háðir þeirri áhættu sem er í atvinnulífinu. Hv. þm. Alþb. hafa yfirleitt ekki stundað það að vera virkir þátttakendur í íslensku atvinnulífi. Þetta eru yfirleitt atvinnustjórnmálamenn og líta á vandamálin frá sjónarmiði slíkra.
Um fjárfestingarlánasjóðina og 11. gr. þessa frv. vil ég aðeins segja þetta: Ég er þeirrar skoðunar að það eigi að fara mjög varlega inn á þær brautir sem 11. gr. gerir ráð fyrir, að tengja vaxtakjör og lánskjör fjárfestingarlánasjóðanna við verðtryggingu. Það er vitað mál að íslenskir atvinnuvegir eiga mikla erfiðleika að stríða og þeir eiga mjög erfitt með að bæta á sig óhagkvæmum lánum eða lánum þar sem vaxtakjörin eru mjög þung og hvíla þungt á atvinnurekstrinum. Það er rétt, sem fram kom hér áðan í umr., að ef of langt er gengið í þessum efnum gæti það leitt til stöðvunar atvinnufyrirtækja og framkallað atvinnuleysi. En í trausti þess að núv. ríkisstj. sé þeirri meginstefnu sinni trú að viðhalda fullri atvinnu í landinu, þá treysti ég því í afstöðu minni til 11. gr. að hún gæti þess jafnan að beita þessu ákvæði af mikilli varúð, þannig að til þess komi ekki að af þeirri ástæðu verði atvinnuleysi í landinu.
Um þetta frv. og ástæðu þessa þarf ég ekki að fjölyrða mikið. Mér finnst ástæðulaust að það sé verið að gera of lítið úr efnahagserfiðleikum þjóðarinnar. Það er víðar við efnahagsörðugleika að etja en hérlendis, eins og margoft hefur verið talað um, og vil ég í því sambandi vekja athygli á og undirstrika að í Vestur-Evrópu munu núna vera um 41/2 millj. atvinnuleysingja, þar er gífurleg verðbólga og þar hefur orðið mikill samdráttur í kaupmætti hjá öllum almenningi. Okkur hefur til þessa tekist að koma í veg fyrir atvinnuleysi, tryggja fulla atvinnu, að vísu með því fráviki sem er afleiðing þess togaraverkfalls sem nú stendur yfir. Það hefur ekki tekist að vinna bug á verðbólgunni, og það hefur því miður ekki tekist að viðhalda þeim kaupmætti sem verkalýðshreyfingin hafði vænst að unnt væri að viðhalda eftir samningana í febr. 1974, en með gætilegri fjármálastjórn og með aðhaldi treysti ég því að það takist.