10.05.1975
Neðri deild: 82. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3846 í B-deild Alþingistíðinda. (3000)

220. mál, atvinnuleysistryggingar

Svava Jakobsdóttir:

Hæstv. forseti. Ég tók það fram við 1. umr. þessa máls að ég fagnaði þeim áhuga sem þm. allra flokka sýndu allt í einu þessu mikilvæga máli, fæðingarorlofi kvenna. Ég harmaði hins vegar að sá áhugi virtist skyndilega hverfa þegar Alþb. flutti brtt. við frv. til l. um efnahagsráðstafanir þar sem gert var ráð fyrir því að allar konur nytu fæðingarorlofs, en allir stjórnarsinnar og allir flm. frv., sem nú er til umr., felldu þessa brtt. (GHG: Ég var ekki á þingi þegar atkvgr. fór fram.) Ég var ekki að tala um þennan hv. þm. persónulega. Ég tel tímaeyðslu að telja upp alla 60 þm. með nafni sem þá áttu hér sæti.

Það kom fram í ræðu hv. þm. Ragnhildar Helgadóttur í dag að hún teldi eðlilegt að atvinnurekendur bæru sinn hluta af kostnaði við fæðingarorlof kvenna. Í þessari brtt. Alþb., sem ég var að tala um áðan var gert ráð fyrir framlagi atvinnurekenda í þessu skyni. Ég hef ekki enn heyrt fullnægjandi rök frá þessum hv. þm., úr því að þessum skilyrðum var fullnægt, hvers vegna hún gat ekki greitt því atkvæði eða fallist á þá till. sem hefði tryggt, ef hún hefði verið samþ., öllum konum fæðingarorlof og öllum konum, sem vinna utan heimilis, full laun. Frv. það, sem hér liggur fyrir, gerir það ekki. Það markar aðeins vissan áfanga. Það kemur skýrt fram í þeim umsögnum sem borist hafa frá kvennasamtökunum, að hér sé ekki náð hinu endanlega takmarki. Konur fá ekki full laun bætt með þeirri breytingu sem hv. flm. leggja til að gerð verði á Atvinnuleysistryggingasjóði í þessu skyni. Þetta gera raunar hv. flm. sér fullljóst, en virðast í hálfgerðum vandræðum með hvernig eigi að leysa úr og gera raunar enga till. um það. Það næsta, sem þeir komast í þessu efni, er ein setning í grg. sem hljóðar svo; með leyfi hæstv. forseta:

„Mætti hugsa sér að lífeyrissjóðir stéttarfélaganna stæðu undir þeim greiðslum,“ þ. e. a. s. þeim greiðslum sem á vantar.

Nú er það vitað mál að slík uppbót kæmi ekki nema stjórnir lífeyrissjóðanna samþykktu hana, og engin kona hefur tryggingu fyrir því að slík samþykkt kæmi til og hún liggur alls ekki fyrir. Lífeyrissjóðir í landinu eru á annað hundrað talsins og flestir þeir, sem hér kæmu við sögu, eru ákaflega vanmegnugir og févana og ólíklegt, þótt konur gerðu kröfu til að fá þá upphæð, sem á vantar, úr þessum lífeyrissjóðum, að hún fengist. Alla vega mundi það kosta þessar konur mikið átak og mikla fyrirhöfn að reyna að fá þetta fram. Og ég hlýt að segja það, að mér finnst vandséð, svo að vægt sé til orða tekið, hvers vegna hv. flm. vilja heldur leggja slíka baráttu á herðar þessum konum, sem hér eiga hlut að máli, en samþykkja till. um greiðslu fæðingarorlofs á vegum almannatrygginga. Hefði sú till. verið samþykkt væri málið leyst nú þegar að fullu, þannig að allar konur í landinu gætu vel við unað.

En hv. flm. þessa frv. hafa því miður kosið að reyna að veita konum þessi réttindi í áföngum og þar með hafa þeir lagt blessun sína á þau örlög, sem hingað til hafa verið hlutskipti í réttindabaráttu þeirra: að fá aldrei sjálfsögð réttindi eða sjálfstæðar réttarbætur nema í áföngum. Þetta gerðist þegar jafnlaunalögin voru samþ. árið 1961. Þá urðu miklar deilur um það hér á Alþ. hvort konur ættu að fá sömu laun og karlar fyrir sömu vinnu í áföngum eða þegar í stað. Hv. þm. Ragnhildur Helgadóttir var þá í þeim hópi sem valdi áfangaréttinn. Full réttindi skyldu að vísu koma einhvern tíma endanlega, en ekki strax og ekki allt í einu. Því miður virðist þetta sjónarmið ríkja enn hjá hv. þm.

Því miður hafa hv. þm. Ragnhildur Helgadóttir og meðflm. hennar heldur kosið áfangakerfið í stað þess að greiða atkv. með fullu fæðingarorlofi þegar í stað eins og þeir höfðu tækifæri til fyrir örfáum dögum.

Með því frv., sem hér er til umr., fá konur á hinum frjálsa vinnumarkaði því miður ekki sambærileg réttindi við konur í opinberum störfum. Þetta ber að harma, fyrst og fremst af tveimur ástæðum. Það kann svo að fara að þær konur, sem falla undir þetta frv., ef að lögum yrði, neyddust til þess að taka sér styttra fæðingarorlof en frv. gerir ráð fyrir, einfaldlega vegna þess að þær teldu sig ekki hafa efni á því að missa full laun. Í öðru lagi vil ég benda á það að hér er um að ræða konur sem langflestar vinna líkamlega erfið störf. Það er því mjög trúlegt að einmitt þessar konur mundu neyðast til þess að haga fæðingarorlofi sínu öðruvísi en opinberir starfsmenn, sem flestir hverjir geta stundað sína vinnu allt fram á síðasta dag, ef svo mætti segja. Hinar, sem verða að reyna meira á sig líkamlega yrðu að taka sér fæðingarorlof fyrr og hefðu því minna orlof eftir fæðingu en konur sem vinna léttari störf, og þá er þeim tilgangi ekki náð að fullu sem hér átti að ná.

Ég harma það mjög að hv. flm. skyldu fella brtt. Alþb. við frv., til l. um efnahagsráðstafanir. Ég tel nóg komið af því að láta konur alltaf þurfa að sætta sig við réttindi í áföngum. Og eins og ég gat um áðan er það alveg ljóst af umsögnum kvennasamtaka að þær vita fullvel að þetta er ekki nema áfangi og baráttan verður að halda áfram. Ég ítreka það því enn að hér er ekki um sambærileg réttindi að ræða við opinbera starfsmenn.

Ég vil að lokum segja það að fari svo að ég eigi ekki um annað að velja vegna harðfylgis hv. flm. og ef ekki verður neinum rökum komið við, þá mun ég þó fremur velja það að greiða atkv. með þessum áfanga í trausti þess að áfram verði haldið að vinna að því að tryggja konum full réttindi.