26.11.1974
Sameinað þing: 13. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 404 í B-deild Alþingistíðinda. (302)

31. mál, sjónvarpsmál

Sverrir Hermannsson:

Herra forseti. Ég tel ástæðu til í framhaldi af litlum afskiptum mínum af þessu máli á sumarþinginu að segja hér örfá orð vegna þeirrar till. sem hér liggur fyrir á þskj. 34. Þá hafði ég við till. það að athuga, þegar forseti gerði að till. sinni að höfð yrði ein umr. um till., að ég taldi hana óumræðuhæfa, óþinglega, af því að hún bryti í bága við lög, að það væri óhæfilegt að Alþ. skoraði á ríkisstj. að hlutast til um að brjóta íslensk lög. Við þessa skýringu held ég mér að vísu enn því að undanþágulaus eru þau lög sem kveða svo á að Ríkisútvarpíð skuli hafa einkarétt á að stunda þessa starfsemi, fjölmiðlun með þessum hætti gegnum hljóðvarp og sjónvarp.

Mér hefur að vísu verið bent á, og það kann vel að vera að það standist, á það legg ég ekki dóm, að annað hvort með hefð eða þá vegna þess, að varnarsamningurinn hefur lagagildi í sjálfu sér, þar sem hann var samþykktur hér á Alþ., þá kunni svo að vera að þetta standist lögum samkvæmt. En ég vil þá benda á það að umfram allt hlýtur þá að gilda andi þeirra laga sem sett hafa verið um einkarétt Ríkisútvarpsins í þessu efni. Það er sá andi að við hljótum sjálfir, íslendingar, að hafa á því algera stjórn með hvaða hætti fjölmiðlar þessir verða reknir. Fyrir því er það, að ég hygg að þessi till. sé óþingleg. Út af fyrir sig erum við auðvitað alltaf reiðubúnir til þess að ræða hvað eina sem á dagskrá kemur. En við verðum að gá vel að okkur í þessu efni, halda okkur við almenn þingsköp.

Ég verð að játa það að í gegnum árin vegna þessa máls hefur mér þótt yfir því vera lágkúra, eins og kom fram hjá hv. 9. landsk. þm., lágkúruleg meðferð af hálfu íslenskra stjórnvalda. Ég ætla ekki að fara að rekja þessa sögu. Allt málið hefur verið fleinn í holdi mínu frá upphafi. Mönnum er það, hv. þm. sjálfsagt, allt nægjanlega kunnugt. En íslensk stjórnvöld fóru jafnan með veggjum í þessu og menn vissu löngum og löngum ekki, hverju trúa skyldi eða hvernig að málinu öllu var staðið. Það var lágkúra yfir þeirri málsmeðferð allri. Nú er þetta liðin saga. Tekin hefur verið ákvörðun um að þessu skuli verða lokið, og þess vegna er það að maður þarf svo sem ekkert að sjá eftir því núna í síðasta skiptið að ræða þetta sérstaklega. En ég vænti þess þá að til þess dragi ekki að að þessu þurfi að eyða fleiri orðum.

Hvers vegna skyldi þetta hafa verið ráð löggjafans íslenska, að við sjálfir færum með stjórn á þessum sterkustu fjölmiðlum, sem þekktir eru, hljóðvarpinu þá og sjónvarpinu nú? Sameinuðu þjóðirnar gengust fyrir ráðstefnu 85 þjóða þar sem var rætt um það að þetta yrði gefið frjálst. Framtíðin ber það vafalaust í skauti sínu að móttökutæki verða með þeim hætti að það verður viðráðanlegt einstaklingum að koma sér upp tækjum sem geta tekið við sjónvarpsefni sem varpað yrði frá hnöttum beint. 84 af þeim 85 þjóðum greiddu eindregið atkv. gegn því að þetta yrði gefið frjálst. Bandaríkjamenn einir voru þeirrar skoðunar að þetta bæri að gefa frjálst. Og þegar spurt var hvaða ástæða hefði legið til þess, þá var það álit manna að það hefði verið viðskiptasjónarmið, „bisness“ sem kallaður er og kannske skilst betur en viðskiptasjónarmið þegar þau eru nefnd. Allar aðrar þjóðir töldu brýna nauðsyn bera til að þær hefðu yfirstjórn á þessu sjálfar. Við erum íslendingar, aðilar að alþjóðlegum samtökum, Intelsat sem reka sjónvarpshnetti í dag, — sjónvarpshnetti, sem hanga yfir miðbaug og sjónvarpa efni. Við getum auðvitað gert gangskör að því í náinni framtíð að byggja hér jarðstöð sem getur tekið við sjónvarpssendingum frá þessum hnöttum. En auðvitað verður jarðstöðin að vera ein hér og undir stjórn okkar sjálfra, en ekki með þeim hætti sem hafnar eru tilraunir á í Bandaríkjunum, að byggja móttökutæki sem einstaklingar geta komist yfir og náð sambandi við slíka hnetti. Okkur er alveg lífsspursmál að stjórna sjálfir þessum alsterkasta fjölmiðli, enda hefur það verið frá upphafi skoðun íslenska löggjafans að til þess bæri brýna nauðsyn, enda þótt þetta hefði komist bakdyramegin inn í íslenskt þjóðfélag, sem það gerði, þessi fjölmiðlun frá Keflavíkursjónvarpinu og Keflavíkurvelli. Svo geta menn, ef þeim sýnist, ruglað saman afstöðu manna til varnarliðsins og þeirra samtaka vestrænna þjóða, sem Norður-Atlantshafsbandalagið er, að það sé einhver ósamkvæmni í því, að menn vilji ekki hafa þessa fjölmiðlun inn á gafli á íslenskum heimilum, og því, að menn séu þeirrar skoðunar að okkur beri að treysta vestrænt samstarf, líka á sviði varnarmála. Menn eru að því sjálfráðir.

Til að nefna dæmi hversu langt þróunin hefur þegar náð og hve hratt hún gengur, þá hafa bandaríkjamenn nú þegar skotið upp gervihnetti sem sjónvarpar til neytenda, ef maður má orða það svo, í strjálbýlum héruðum Bandaríkjanna. Það er sjónvarpað heilbrigðisupplýsingum, og þau móttökutæki, sem taka við frá þessum hnetti, kosta ekki nema 2000 dali. Menn sjá í hendi sinni að þegar fjöldaframleiðsla væri hafin á þessu, þá mundi þetta verða viðráðanlegt. En ég legg áherslu á það og það voru 84 þjóðir af 85 sammála um, að hver og ein vildi hafa yfirstjórn á því hvaða sjónvarpsefni yrði dreift. Við vitum um nána samvinnu ýmissa þjóða, eins og t.d. Vestur-Evrópuþjóða, í þessu efni, þar sem sjónvarpsefni er dreift á milli landa eftir örbylgjukerfi. En ég hygg nú að hver og ein þjóð hafi á því fyllstu gát hvaða sjónvarpsefni er yfirleitt kostur á fyrir neytendur í hverju landi.

Það sem greinilega er hið næsta fyrir okkur er þegar í stað að gera áætlanir um litasjónvarp. Við skulum ekki eyða miklu lengri tíma en þegar hefur verið eytt í karp um þetta liðna mál sem er sem betur fer úr sögunni, heldur snúa okkur að því að ræða það sem fyrir liggur að vinna að í þessum mikilvægu málum. Þá er það auðvitað fyrst að ljúka við dreifingu sjónvarpsins um landið. Dreifing þess tókst vel. Að vísu er þetta kerfi okkar langt frá því að vera gallalaust, en nú er unnið að því að koma upp örbylgjukerfinu og innan tíðar mun það komast á t.d. milli Skálafells og Vaðlaheiðar, og það er með þeim hætti, þetta kerfi, að sendingin er ótrufluð af erlendum sjónvarpsstöðvum. Allur tæknibúnaður íslenska sjónvarpsins hefur verið keyptur með það fyrir augum að sjónvarpa lítum. Það yrði mjög smávægilegur kostnaður sem þarf til þess að hægt sé þegar í stað að hefja litasjónvarp af segulbandi, nokkur vegna sjónvarps á litkvikmyndum og svo allmiklu meiri þegar þyrfti að útbúa upptökusal og önnur tæki vegna sjónvarps á öðru efni. Allt yrði þetta langt frá því að vera óviðráðanlegur kostnaður. Og nú þyrfti helst hið allra fyrsta að bregða á þetta ráð, hefja tilraunaútsendingar og gera fólki viðvart um það að þessi nýjung muni halda innreið sína innan 2–3 ára svo að mönnum gefist aðlögunartími í þessu efni til þess að koma sér upp þessum dýru tækjum sem vissulega eru mjög dýr, vissulega misjafnlega dýr eftir gæðum, en má þó gera ráð fyrir að mundu kosta kannske um 200 þús. kr. Það er mikið ef á alla heildina er litið, það er mikil fjárfesting fyrir íslensku þjóðina. Þess vegna er ekki ráð nema í tíma sé tekið og mönnum sé gerð grein fyrir því sem hlýtur að verða hið allra næsta verkefnið, að hefja sjónvarpssendingar í litum.

Ég minntist á það áðan, að það bæri nauðsyn til þess vitanlega að fullkomna það kerfi, sem til er í landinu. Enn eru 470 býli sem sjónvarp nær ekki til. Það er 470 býlum of mikið vegna þess að það er ekki langt frá því að hægt sé að jafna þessu við fæðu, hina líkamlegu fæðu, sem menn þurfa á að halda. Þetta er krafa tímans sem óhjákvæmilega verður að sinna þegar í stað.

Það mætti auðvitað margt um þetta mál segja. Af sérstökum ástæðum lagði ég lykkju á leið mína til að kynna mér ástæður, sem nú eru fyrir hendi, og mér list svo á, þótt það komi raunar á óvart, að við séum miklu betur í stakk búnir en ég hugði til þess að fullkomna bæði dreifikerfið og eins að breyta yfir í litasjónvarp sem allir menn eru sammála um að beri langt af hinni tækninni. Það má svo sem geta þess að sjónvarpstæki, sem taka við svart-hvítu núna, geta það eftir sem áður þótt brugðið verði yfir í lit, þannig að menn gætu kannske gefið sér enn lengri tíma til þess að snúast við þeim mikla kostnaði sem litasjónvarpið veldur. Það mætti kannske hugsa sér það líka að það yrði reynt að létta undir með fólki varðandi þessa fjárfestingu. Það mætti athuga í því sambandi hvort ekki mætti taka tillit til þessa í skattframtölum einhver ár. Ótal leiðir geta komið til greina. Þó er að því að gá að almenningur þarf ýmislegt á sig að leggja vegna þessa því að rekstur þessi kostar mikið fé og t.d. enn sem komið er hafa afnotagjöldin af sjónvarpi öll gengið til rekstrar og dagskrár, en ekki í fjárfestingu, og fyrir því er það að á undanförnum árum hefur mjög dregið úr dreifingu sjónvarpsins og má heita nú síðustu árin að hafi lítið sem ekkert verið aðhafst vegna fjárskorts. Kemur þá enn að því, eins og á fleiri sviðum, hvernig til tókst hjá hæstv. fyrrv. ríkisstj. Það var gróflega dapurlegt „resultat“ í þessum efnum eins og fleirum.

Samskipti milli landa varðandi sjónvarpsefni verða ekki, að því er tæknimenn segja, nema með fjarskiptahnöttum. Og ef, sem við tökum ákvörðun um að reisa hér jarðstöð til þess að nýta það sjónvarpsefni, sem í gegnum það kerfi verður sent, eftir okkar eigin vild, þá hygg ég að það sé það ráð, sem við hljótum að bregða á, að eiga þess kost að leigja það sjónvarpsefni sem þar verður sent út. Við erum raunar aðilar að þessu kerfi~, en það yrði aðeins ein stöð sem við því tæki og undir stjórn okkar sjálfra.

Sem betur fer hygg ég að það sé langmestur meiri hluti manna sem gerir sér grein fyrir því að túlkun á lýðræði út í þann hörgul, að menn geti átt þess kost sjálfir að opna þjóðfélagið fyrir hvers konar áhrifum skipulögðum af stórveldum t.d., sé óráð. Ég hygg að sem betur fer sé mikill meiri hluti manna þeirrar skoðunar að slíkt sé alger óhæfa, án þess að vera að fyrra bragði að ætla öðrum neitt illt.

Bandaríkjamenn eru kannske sú þjóð sem við að öðru jöfnu gætum helst hugsað okkur — ef við á annað borð getum hugsað okkur það — að hefði slíka aðstöðu sem þessa. En þó er það aldeilis fráleitt, jafnvel þótt þetta sé mikil vinaþjóð okkar og við viljum hafa mikil samskipti við hana að gefa henni aðstöðu til þess, séraðstöðu í landinu að ná til meiri hluta þjóðarinnar með þessum sterka fjölmiðli. Í raun og veru er það sannleikur að það er að gera lítið úr bandaríkjamönnum, þessu mikla herveldi, að ætla þeim að hafa slíka aðstöðu án þess að nota hana ekki að neinu leyti. Menn verða að vera sjálfum sér samkvæmir í þessu. Ég hygg að hv. flm. mundi sjálfsagt ekki taka því vel ef því væri varpað fram við hann hvort það væri þá ekki óhætt að gefa öðrum þjóðum kost á þessu, gefa öðrum þjóðum aðstöðu til þess arna, Austur-Þýskalandi, Júgóslavíu, Albaníu, Foster í Suður-Afríku, — ég nefni þetta af handahófi, — Kínverjum, þannig að menn fengju „kverið“ upp lesið kvölds og morgna og um miðjan dag o.s.frv. Nei, við og aðrar þjóðir erum sammála um það, að heita má alfarið, að því, hvernig beitt er þessu mikla áhrifatæki sem sjónvarpið er, verðum við ævinlega að stjórna sjálfir.