12.05.1975
Efri deild: 87. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3877 í B-deild Alþingistíðinda. (3033)
246. mál, ættleiðing
Frsm. Ingi Tryggvason:
Herra torseti. Allshn. Ed. hefur athugað frv. til l. um breyt. á l. nr. 19 frá 11. febr. 1953, um ættleiðingu, og varð n. sammála um að leggja til að frv. yrði samþ. óbreytt.
Í viðræðum í n. kom það fram að nm. töldu að heimild sú, sem hér er gert ráð fyrir að veitt verði til að yngri hjón en áður geti ættleitt börn, hljóti einkum að miðast við þau börn sem annað hvort foreldra á, þ.e.a.s. að ef annað þeirra eigi barn, þá geti hitt ættleitt barnið, það hljóti að vera aðalástæðan til slíkrar breyt. sem hér er gert ráð fyrir á lögunum.
Þegar þetta mál var hér til 1. umr. í hv. Ed. komu fram allmargar spurningar varðandi þetta mái og ég vil leyfa mér að gera í aðalatriðum grein fyrir þeim atríðum sem þar var minnst á.
Fjöldi ættleiðingarleyfa og ýmsar tölfræðilegar upplýsingar í því sambandi eru í fyrsta sinn skráðar í hagskýrslum í nýútkomnum mannfjöldaskýrslum fyrir árin 1961–1970. Í þeirri skýrslugerð hafa þó ekki komið fram upplýsingar um aldur ættleiðenda. Möguleiki væri á að gera könnun á aldri ættleiðenda á tilteknu árabili, en mundi taka verulegan tíma. Á tímabilinu frá 1956–1974 hafa ættleiðingar verið allmismunandi að fjölda hin ýmsu ár. Flestar munu ættleiðingarnar hafa verið árin 1959 og 1960 eða 113 hvort ár. Fæstar á þessu tímabili urðu ættleiðingarnar árið 1967, en þá voru ættleiðingar aðeins 53. En á þessu bili er fjöldi ættleiðinga þessi ár frá 53 lægst og upp í 113 hæst. Það sem af er þessu ári, á 4 fyrstu mánuðum ársins, hafa ættleiðingar orðið 22, þannig að það virðist svo sem þarna sé um nokkurt jafnvægi að ræða milli ára og ekki stórar sveiflur á fjölda ættleiðinga. Niðurfellingar ættleiðinga eru nær engar á þessu tímabili. Af hálfu dómsmrn. munu hafa verið tvær eða þrjár niðurfellingar ættleiðinga á síðustu 30 árum, og af hálfu dómstóla hefur ekki komið til niðurfellingar á ættleiðingu svo að vitað sé. Einu sinni hefur verið borin fram krafa um ógildingu leyfisveitingar, en þeirri kröfu var synjað í Hæstarétti. Þeir starfsmenn dómsmrn., sem um þessi mál hafa fjallað, telja að eftirleitunum og fyrirspurnum um leyfi til ættleiðingar frá aðilum, sem ekki hafa náð aldursmarki, hafi fjölgað talsvert á síðustu árum. Í þessu sambandi henda starfsmennirnir á að hjúskaparaldur hefur lækkað hin síðari ár og aldursmunur hjóna mun yfirleitt hafa farið minnkandi.
Ég tel ekki ástæðu til að orðlengja öllu frekar um þetta. Ég tel að með þessum upplýsingum sé í aðalatriðum svarað þeim fyrirspurnum, sem komu fram við 1. umr. málsins og endurtek það, sem ég áður sagði, að allshn. leggur til. að frv. verði samþ. óbreytt.