12.05.1975
Efri deild: 87. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3880 í B-deild Alþingistíðinda. (3052)

274. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins

Frsm. (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Herra forseti. Hv. félmn. hefur tekið til meðferðar það frv., sem hér er til umr., og mælir með því að frv. verði samþ.

Þetta frv. er ekki mikið að vöxtum. Það er einfalt. Það gerir ráð fyrir að 80 millj. kr., sem árlega er nú heimilt að veita af Húsnæðismálastofnun ríkisins sem lán til kaupa á eldri íbúðum, verði breytt þannig, að heildarupphæðin megi nema allt að 160 millj. kr. árlega.

Það þarf ekki að fjölyrða um að hér er um mikið nauðsynjamál að ræða. Þó var það svo að þegar l. voru fyrst sett um húsnæðismálastjórn ríkisins árið 1955, þá var ekki gert ráð fyrir að heimilt væri að lána til kaupa á eldri íbúðum. Það var svo allt fram til þess að breyting var gerð í þessu efni við endurskoðun 1. um húsnæðismálastofnun ríkisins árið 1970. Þá var fyrst tekin upp heimild sem var miðuð við allt að 50 millj. kr. Það var hækkað á þeim tíma, sem síðan er liðinn, upp í 80 millj., og nú er gert ráð fyrir að fara feti framar og hækka þessa upphæð um allt að 100% eða upp í 160 millj. kr.

Það má spyrja að því, hvers vegna hafi ekki verið gert meira í þessum efnum áður og hvers vegna hafi ekki verið gert ráð fyrir því í upphafi árið 1955, þegar þessi löggjöf var fyrst sett um húsnæðismálastofnun ríkisins, að heimilt væri að veita lán til eldri íbúða. Það var vegna þess að svo þýðingarmikið sem það er að veita lán til eldri íbúða, þá var hitt talið enn þá þýðingarmeira, að veita lán til nýbyggingar íbúða. Raunar hefur alltaf verið litið svo á og er lítið svo á enn í dag.

Það kann að vera að það væri ástæða til þess að hafa hækkun heimildarinnar meiri en frv. gerir ráð fyrir, láta sér ekki nægja að hækka heimildina um 100%. En á það verður að líta, og það er meginvandamál húsnæðismála í dag og hefur verið á undanförnum árum og áratugum að það hefur ekki verið nægilegt fjármagn til þess að reka þá lánastarfsemi sem hefði þurft að reka. Þetta vitum við allir. Það er ekki gert ráð fyrir í þessu frv. að ráða neina bót á í þessum efnum. Hins vegar hefur í tíð núv. ríkisstj. verið ráðin nokkur bót á, eins og fram kom í máli hæstv. félmrh. er hann mælti fyrir þessu frv. fyrir tveim dögum og okkur er í fersku minni, með því að hækkuð hafa verið lán til nýbygginga hjá Byggingarsjóði ríkisins úr 1060 þús. kr. í 1 700 þús. kr., þannig að heldur miðar í rétta átt í þessu efni hvað varðar nýsmiði íbúðarhúsa og einnig miðar nú nokkuð í rétta átt hvað varðar lán til eldri íbúða. Við skulum vona að hæstv. núv. ríkisstj. takist að bæta hér betur um, þannig að við sjáum betri árangur í þessum málum en hefur verið að ýmsu leyti á undanförnum árum. En aðalatriðið er að afla meira fjármagns til þessarar starfsemi.

Hér hefur komið fram brtt. við þetta frv. á þskj. 674 frá hv. 7. landsk. þm. Þar er gert ráð fyrir að í staðinn fyrir að hækka heimildina fyrir lánsfé úr 80 millj. upp í 160 millj. kr. árlega til eldri íbúða, þá verði sett nýtt ákvæði inn í lögin þess efnis að allt að 10% af því fjármagni, sem húsnæðismálastjórn hefur til útlána á ári, verði varið til lánveitinga til kaupenda eldri íbúða og til meiri háttar endurbóta á eldri íbúðum sem hagkvæmt þykir að endurbyggja að mati tæknideildar húsnæðismálastjórnar eða matsmanna sem hún skipar. Enn fremur er tekið fram í þessari till. að öryrkjar skuli sitja fyrir við úthlutun viðgerðarlána.

Það er engin fjarstæða sem þessi till. fjallar um, síður en svo, og hún gæti vel komið til álita. Það getur verið að það sé réttara að binda við ákveðið hlutfall þá heimild sem hægt er að verja af fjármagni Byggingarsjóðs ríkisins til annarra lána en lána út á nýjar íbúðir. Það kann að vera. En ég hygg að best væri í þessu efni að hafa hvorki hámarksupphæð í krónum, eins og frv. gerir ráð fyrir, né ákveðið prósentuhámark, eins og brtt. hv. 7. landsk. gerir ráð fyrir. Best væri að engin ákvæði væru um þetta, en að það væri heimilt að veita lán til eldri íbúða, til stækkunar á íbúðarhúsnæði, og til viðgerðar á húsum öryrkja og hafa engin ákvæði um það beint í löggjöfinni hvernig skipt er milli þessara þarfa og nýbygginga, en það sé falið húsnæðismálastjórn ríkisins. Auðvitað hefði þetta verið í þessu formi ef nægilegt fjármagn væri fyrir hendi.

En nú er ekki nægilegt fjármagn fyrir hendi. Því tel ég að sinni að það sé rétt að binda þessi afbrigðilegu lán við eitthvert ákveðið hámark. Ég tel það fyrir mitt leyti rétt í bili, hvað sem síðar skyldi verða ákveðið, að miða þar við ákveðna upphæð, eins og gert er í frv. því sem hér er til umr. Ég tel því að það séu allar efnisástæður fyrir því að samþykkja frv., sem hér er til umr., óbreytt og mun því greiða atkv. gegn brtt. hv. 7. landsk. þm.