12.05.1975
Neðri deild: 83. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3894 í B-deild Alþingistíðinda. (3082)
95. mál, vegalög
Frsm. (Friðjón Þórðarson):
Herra forseti. Samgn. hefur fjallað um frv. til l. um breyt. á vegalögum, nr. 80 frá 10. júlí 1973, Nefndin kvaddi á sinn fund vegamálastjóra, ráðuneytisstjóra í samgrn. og fleiri aðila er þessi mál snerta, m.a. fulltrúa frá sýslumannafélaginu. Gáfu þeir ýmsar góðar ábendingar og upplýsingar.
Í nefndinni eru uppi ólík sjónarmið og skiptar skoðanir á ýmsum þáttum þessara mála eins og verða vill á þessu málasviði. Þó held ég mér sé óhætt að fullyrða að enginn nm. vill láta frv. daga uppi. Eins og nál. ber með sér hafa allir nm. samþykkt að mæla með því að frv. nái fram að ganga, en allir hafa þó áskilið sér rétt til breytinga, enda hafa þegar komið fram brtt. svo sem sjá má.
Frv. þetta á langa leið að baki. Á þessu þingi var það lagt fram í Ed. Þar var það samþ. með nokkrum breytingum og reynt að samræma sjónarmiðin. Nú líður að þinglokum. Er því sýnilegt að ekki vinnst tími til að gera miklar breytingar á frv. ef það á að verða að lögum. Hefur því sú leið verið valin að hreyfa sem minnst við frv. í þeirri mynd sem það var afgr. frá Ed. Breytingar þær, sem nefndin varð öll sammála um að gera og getið er um í nál., varða nánast aðeins formshlið málsins.
En það er margt sem má segja um þetta mál. Í aths. er sagt að frv. sé flutt m.a. til að efla sýsluvegasjóðina vegna breyttrar tækni við mjólkurflutninga, styrkja gerð þjóðvega í þéttbýll og ná betra samhengi í samgöngukerfið. Allt er þetta góðra gjalda vert. Reynslan sker úr hvort þetta frv., ef að lögum verður, megnar að nálgast þetta markmið. Meðan þörfin er svo brýn fyrir bættar samgöngur, betri og varanlegri vegi um allt land, en á hinn bóginn lítið fé úr að spila, verða skoðanir alltaf mjög skiptar um fjárveitingar til einstakra framkvæmda. Það er svo auðvelt að rökstyðja aðkallandi þörf á hverjum stað. Að sjálfsögðu eru samgöngumálin, bættar samgöngur, mál allra landsmanna, allrar þjóðarinnar meira og minna, hvar sem unnið er á landinu, og verða ekki leyst nema með sameiginlegu átaki allra. En þó er jafnan sá eldur heitastur sem á sjálfum brennur.
Frv. þessu er ætlað að efla sýsluvegasjóðina. Var þar ekki vanþörf á þar sem þeim eru nú falin mjög aukin verkefni. Vafasamt er þó að hér sé nóg að gert, og raunar ljóst að svo er ekki, einkum ef sú hreyfing heldur áfram sem áberandi var á s.l. ári að nokkur fjölmenn kauptún kröfðust kaupstaðarréttinda og fengu þau að lögum. Þetta getur alveg kippt meginstoðunum undan viðkomandi sýsluvegasjóði og gert hann alls vanmáttugan. Athyglisverðar tillögur hafa komið fram til að sporna við vandræðum af þessu tagi.
Það hafa ýmis ágreiningsefni verið á ferðinni í sambandi við þetta mál. Eitt þeirra er hvort að auka skuli hinn svokallaða 10% sjóð, þ.e.a.s. þar er um að ræða breyt. á 11. gr. frv. eða 34. gr. vegalaga. Ég ætla ekki að rekja þær deilur eða þau ágreiningsefni svo mjög, en bendi á að þetta efni er nú í þeim búningi sem um getur á þskj. 361, þ.e.a.s. þar er það orðið svo eða komið þannig frá Ed. að af heildarframlagi því, sem veitt er til lagningar þjóðvega í kaupstöðum og kauptúnum samkv. 32. gr., skal árlega halda eftir 25% og skal því fé ráðstafað af fjvn. Alþ. að fengnum tillögum vegamálastjóra til að flýta gerð vega og gatna með bundnu slitlagi þar sem sérstök ástæða þykir til að ljúka ákveðnum áfanga eða til að stuðla að hagkvæmari vinnubrögðum. Heimilt er að láta þetta ákvæði einnig ná til þéttbýlis með færri en 200 íbúa.
Eins og menn muna er þetta þannig í vegalögunum að hér er aðeins um að ræða 10% og því fé skal ráðstafað eftir tillögum vegamálastjóra til að flýta framkvæmdum o.s.frv., þ.e.a.s. að auk þess sem þessi sjóður er nú stækkaður til mikilla muna, þá eru nú aðrir aðilar sem ráðstafa honum. Það voru að vísu sumir þm. í Ed. sem vildu að hér væri lagt enn meira fé til hliðar í þessu skyni eða allt að 35%, en fallist var á þá málamiðlun að haldið skyldi eftir 25% eins og ég gat um.
Ég vek athygli á því að jafnframt því að þessi sjóður er nú stækkaður verður það nú fjvn. Alþ. sem úthlutar fé úr honum að fengnum tillögum vegamálastjóra, í stað þess að áður voru það ráðh. og vegamálastjóri. Þær raddir komu fram í n., að það væri eðlilegra að þarna stæði samgöngunefnd eða samvinnunefnd samgöngumála sem úthlutaði þessu fé heldur en fjvn. sem jafnan er mjög önnum kafin. En þó varð niðurstaðan að láta þetta óbreytt standa eins og Ed. skildi við það, en úthlutunin er í höndum Alþ. samkv. þessu ákvæði.
Á þskj. 651 hefur hv. 5. þm. Reykn. ásamt nokkrum öðrum lagt til að 10% sjóðurinn skuli ekki stækkaður upp í 25%, heldur vera óbreyttur og hef ég ekki mörg orð um þá tillögu.
Á þskj. 537 hefur hv. 5. þm. Vestf. og þrír aðrir hv. þm. hreyft brtt. við 32. gr. vegalaga. Ég tel að sú till. sé ekki tímabær eins og á stendur og hef ekki um hana fleiri orð.
Á þskj. 650 hefur hv. 2. þm. Norðurl. v. hreyft nokkrum brtt. Um þessar till. er það að segja að þær eru ekki allar jafnveigamiklar, en nokkrar þeirra eru mjög athyglisverðar. Ég vil sérstaklega benda á að samkv. þeim er lagt til að kauptúnahreppar með 200 íbúa eða fleiri verði undanþegnir gjaldi til sýsluvegasjóðs, en jafnframt verði 28. gr. vegalaga breytt þannig að af tekjum til vegamála samkv. lögum um fjáröflun til vegagerðar skuli árlega veitt til sýsluvega fjárhæð sem sé eigi lægri en þreföld heildarupphæð álagðra sýsluvegasjóðsgjalda um allt land. Þessar tillögur tel ég mjög athyglisverðar og fyllilega þess verðar að þær verði athugaðar nánar, en til þess gefst ekki tími að þessu sinni.
Með hliðsjón af því, sem nú hefur verið sagt, er fullljóst að jafnvel þeir, sem nú vilja samþykkja frv. þetta, telja að vinna þurfi að frekari breytingum á vegalöggjöf hið fyrsta. En allar slíkar breytingar verður vel að vanda og kryfja til mergjar þær tillögur sem þegar hafa komið fram í dagsljósið. Telja nm. því nauðsynlegt að halda áfram endurskoðun á gildandi reglum og löggjöf um þessi efni. Væri vel að slíkar brtt. yrðu undirbúnar fyrir næsta Alþ. Á komandi vetri á að endurskoða vegáætlun fyrir árið 1976 –1977. Það er eðlilegt að ákvæði vegalaga séu nokkuð skoðuð þegar vegáætlun er til meðferðar á þingi, þótt ekki sé mælt með of tíðum eða ótímabærum breytingum á vegalöggjöf frekar en öðrum lögum.
Ég læt þessi orð nægja um leið og ég fylgi nál. þessu úr hlaði.