12.05.1975
Neðri deild: 83. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3900 í B-deild Alþingistíðinda. (3084)
95. mál, vegalög
Sigurlaug Bjarnadóttir:
Herra forseti. Ég vil taka undir orð hv. frsm. samgn. að þessu máli þurfum við að koma í gegn hér á þinginu, þannig að ekki er ráðlegt að tala nú málið dautt þannig að það stöðvist í málþófi þm. um það. Ég get þó ekki látið hjá líða að tjá mig um þetta, vegna þess líka að ég er meðflm. að brtt. á þskj. 537 sem hv. 5. þm. Vestf. hefur mælt fyrir hér rétt áður. Það vantar ekki að sannfæringarkraftur okkar vestfirðinga sé nógu mikill, en hins vegar lítil von um að sannfæra marga þm. hér og nú, svo fáir sem þeir sitja á stólum hér eins og fyrri daginn, þannig að frekara tal um þetta ber líklega lítinn árangur.
Hv. 5. þm. Vestf. benti á að það, sem við förum fram á, er að 1/3 hluti af 12.5% af heildarvegafé takist beint og örugglega til kauptúna og kaupstaða á landinu sem skemmst eru á veg komin. Þetta þýddi, sagði hann, og mun rétt vera, u.þ.b. 70 millj. sem kæmu til skipta í þessum tilgangi af um 285 millj. sem renna í þéttbýlisvegasjóð á þessu ári. Hér er ekki fram á mjög mikið farið, finnst okkur dreifbýlisþm.
Það hefur verið talað um það að landsbyggðin sé í þessu máli að gera aðför að þéttbýlinu suðvestanlands. Ég vil segja þetta um það atriði: Enginn neitar því að það er eðlilegt að við úthlutun þessa fjár sé tekið tillit til höfðafjölda og umferðarþunga. Þetta er fyllilega réttmætt sjónarmið. En við megum ekki einblína svo á þörf fjöldans hér á suðvesturhorninu að við gleymum að gæta almenns réttlætis í þessu máli. Hv. 5. þm. Vestf. benti á það með tölum hvernig þetta hefur komið út. Það hefur einfaldlega komið út þannig að smærri kauptún og kaupstaðir, þar sem þó þjóðvegur liggur í gegn, hafa algjörlega verið dæmd úr leik og ég get til viðbótar tölum, sem hv. 5. þm. Vestf. nefndi, bent á að í s.l. 10 ár — og nú bið ég þá fáu þm., sem hér sitja, að hlusta á — að undanfarin 10 ár hafa 67.52% af þéttbýlisvegasjóðnum farið til Reykjavíkur og Reykjaneskjördæmis á móti 23.41% sem hafa farið til fimm annarra kjördæma samanlagt, þ.e.a.s. til Vesturlands, Vestfjarða, Norðurlands eystra, Norðurlands vestra og Austurlands. Ég sé ekki hvernig hv. þm. þessara kjördæma hér sunnan til geta vogað sér að telja það óréttmætt að þessi hlutur hinna fimm kjördæmanna hækki nokkuð borið saman við Reykjanes og Reykjavík, þegar við höfum í huga að hingað til hefur hlutfallið verið 67% fyrir tvö kjördæmi á móti 23% fyrir hin kjördæmin.
Ég vil benda hv. þm. á — og það vita þeir flestir sem hafa gert sér það ómak að kynna sér þessi mál — að af almennu vegafé fer ekkert til þjóðvega í gegnum kauptún og kaupstaði. Það er þéttbýlisvegasjóðurinn sem á að sjá fyrir vegum þar í gegn. Hingað til hefur farið svo að það hefur svo til ekki eyrir runnið til þessara staða nema þá þeirra fjölmennari, til Akureyrar, til Ísafjarðar kannske innan við milljón árlega, en til hinna, sem eru með 200–300 íbúa, ekki eyrir sem hægt er að nefna því nafni, — þó að það væru 50–60 þús., þá er það ekki teljandi til þess að vinna að byggingu varanlegra vega og gatna. Þess vegna er svo augljóst misræmi sem þarna hefur viðgengist að hverjum manni, sem reynir að athuga málið ofan í kjölinn, hlýtur að vera ljóst að þarna þarf breyting að koma til. Þessi þorp, sem ég tala um, þessi smærri staðir úti um landið eru í vonlausri aðstöðu eins og er. Þeir eru í algjörlega vonlausri aðstöðu ef þeirra eina von um skaplegan þjóðveg í gegnum hlaðið hjá sér á að byggjast á þessum þéttbýlisvegasjóði. Reyndin hefur sýnt okkur að það hefur allt farið fram hjá garði þarna. Það hafa farið hundruð millj. í framkvæmdir hér í Kópavogi, við Selfoss og í Hafnarfjarðarveginn. Það er eðlilegt að þessir staðir þurfi sitt fé. Það er mikil umferð hér og við viðurkennum fyllilega þörfina. En það má ekki verða til þess að við séum blind fyrir þörfum annarra landshluta þó að þar lífi eitthvað færra fólk á hverjum ferkílómetra en hér. Gerið ykkur í hugarlund þegar bílaeign Landsmanna nálgast 100 þús., líklega nú, og ferðafólksstraumurinn verður æ meiri hér innanlands, — gerið ykkur í hugarlund malar- og sandvegi í gegnum smáþorp þar sem bílaumferðin er mikil á sumrin. Þar er vægast sagt ólifandi, Þar er rykmökkur, kæfandi rykmökkur sem drepur allt lifandi eða allt að því, og þegar bleyta er og rigning, þá er aursvað upp um glugga og veggi.
Ég styð þessa brtt. sem hér liggur frammi á þskj. 537 um að taka 1/3 af þessu 121/3% beint í þessa smærri staði sem mest eru þurfandi á þessu sviði. Ég vil hins vegar lýsa því yfir hér að verði þessi till. felld, þá mun ég við 3. umr. bera fram aðra brtt. sem ég hygg að mundi koma nokkuð að sama gagni ef hún kæmist í gegn. Í 34. gr. vegalaganna, eins og hún kemur frá Ed., er gert ráð fyrir að 10% sjóðurinn, sem tekinn er undan höfðareglunni, að hann aukist í 25%. Ég væri í rauninni alveg ánægð með það eins og það er ef ég væri víss um að þessi 25% rynnu örugglega til þeirra staða á landinu sem verst eru settir í þessu tilliti og við erum að bera fyrir brjóstinu. En ég tel nauðsynlegt að fenginni reynslu að kveðið sé skýrar á í lögunum en gert er og því mundi mín brtt., verði brtt. á 537 felld nú við 2. umr., hljóða á þá leið, að í staðinn fyrir að þessi 25% renni til óskilgreindra forgangsverkefna, þá mundi ég vilja kveða svo á í greininni að þau renni tvímælalaust til kaupstaða og kauptúna á landinu sem skemmst eru á veg komin og þar sem þörfin er talin mest. Þá tel ég að við séum búin að ná nokkru jafnræði hér og þó ekkert svipað því sem þyrfti til þess að gera þessum málum þau skil sem nauðsynlegt væri.
Ég vil benda mönnum á að blanda hér ekki saman, eins og gert hefur verið, áætlun sveitarfélaganna um gatnagerð. Það er áætlun út af fyrir sig sem miklar vonir eru bundnar við, m.a. við veruleg lán úr Byggðasjóði sem þar koma til. Það eru lán sem þarf að endurgreiða og verða vafalaust sveitarfélögunum allþungbær. Þetta, sem við erum að tala um núna eða ég er fyrst og fremst að leggja áherslu á, er að við fáum þjóðvegina í gegnum þorpin og kauptúnin fullgerða af ríkisfé. Það er hluti af þjóðvegakerfinu og við eigum heimtingu á því að þeir vegaspottar, sem liggja í gegnum þessi smáþorp og kaupstaði, séu ekki settir útundan algerlega miðað við hið almenna þjóðvegakerfi landsins. Ég trúi ekki öðru en að þeir menn, sem vilja stuðla að því í verki að aðstaða fólks sé sem jöfnust hvar sem er á landinu, — ég trúi því ekki fyrr en ég tek á því að þeir skoði ekki hug sinn áður en þeir fella þær till. sem horfa í jafnaðar- og réttlætisátt, og ég leyfi mér að vera nokkuð bjartsýn í því efni.