12.05.1975
Neðri deild: 84. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3907 í B-deild Alþingistíðinda. (3104)
220. mál, atvinnuleysistryggingar
Frsm. meiri hl. (Ragnhildur Helgadóttir):
Herra forseti. Það hafa vakið nokkra furðu mína þau ræðuhöld sem fram hafa farið um þetta mál og hafa því miður vakið hjá mér grunsemdir um það að þrátt fyrir allt séu íslendingar ekki eins nútímalega hugsandi að því er varðar jafnrétti karla og kvenna og ég hafði vænst og eins og ég hef raunar hvað eftir annað látið hafa eftir mér á ýmsum vettvangi. Ég hef gerst svo djörf að fullyrða það að afstaða íslendinga gagnvart konum birtist í mjög nútímalegri löggjöf og viðurkenningu á fyllstu réttindum kvenna og barna, jafnrétti kvenna og karla og ýmiss konar bættri félagslegri aðstöðu kvenna frá því sem áður var.
Umr. um þetta mál hafa verið þess eðlis að hér hafa ýmsir ræðumenn sagt í sömu ræðunum: Þetta mál er ekki nógu gott vegna þess að það er of stórt. Þetta mál er heldur ekki nógu gott vegna þess að það er of lítið. Það er of stórt fyrir Atvinnuleysistryggingasjóð, það er of lítið fyrir það sem þeim finnst vera svipfallegt gagnvart kjósendum sínum. — Niðurstaðan er sú að þessum sömu hv. þm. finnst réttast að gera ekki neitt. Það er von að maður spyrji sjálfan sig: Hver er vilji þessara hv. þm.? Hver er hugur þessara hv. þm. til sjálfsagðra nútíma réttarbóta? Hver er hugur þessara hv. þm. til réttarstöðu nýfæddra barna, sömu hv. þm. og fyrir nokkrum dögum greiddu atkv. með því að leiða það í íslensk lög að félagslegar ástæður einar saman séu fullnægjandi sem heimild til þess að fá fóstri eytt.
Í öllum þeim löngu og miklu umr., sem fram fóru um fóstureyðingamálið, kom oft fram hjá nokkrum hv. þm. sú röksemd að að sjálfsögðu væri það hin mesta hneisa að lögleiða að félagslegar ástæður gætu verið heimild til fóstureyðingar, vegna þess að það væri svo vel búið að íslenskum konum og börnum þeirra á Íslandi að slíkrar lagaheimildar gæti ekki verið þörf. Einstaka mjög varkárir menn bentu á það og kannske ekki síst kaþólskir menn utan úr löndum, að lögfesting ákvæðis um það að félagslegar ástæður gætu verið heimild til fóstureyðingar fælu í sér þá hættu að þjóðfélagið gæti orðið heldur tregt til þess að bæta félagslegar aðstæður þeirra kvenna sem erfiðast ættu með að hugsa um börn sín.
Nú höfum við rétt — á laugardaginn, ef ég man rétt, — lokið við afgreiðslu þessa margumrædda fóstureyðingamáls, leitt þetta nýja fyrirkomulag í lög, að félagslegar ástæður geti verið þannig, að rétt sé að heimila fóstureyðingu af þeim sökum. Í gær var svo í nágrannakjördæmum Reykjavíkur haldinn hátíðlegur mæðradagurinn sem svo er nefndur þar sem menn sýna af fórnfýsi sinni hvern hug þeir bera til mæðra í þeim hópi sem á erfiðast í þessu þjóðfélagi. Á mánudegi og líka á laugardegi fyrir þennan mæðradag ræða menn um það í Alþ. af fyllstu alvöru að það að veita lægst launuðu konunum á vinnumarkaðnum þá réttarbót að þeim verði kleift að vera heima hjá nýfæddu barni í 12 vikur eftir fæðingu þess muni kannske geta sett samgöngumál landsins úr skorðum. Menn eru þá búnir að gleyma því að á laugardaginn samþykktu þeir félagslegar ástæður sem heimild til þess að eyða lífi sem síðar getur orðið að börnum. Það hefur mjög mikla þýðingu, þótt ekki sé nema fáar vikur framan af ævi barns, að móðir þess geti verið heima hjá því. Jafnvel þótt hún eigi fullt hús af börnum, þá hefur það ómetanlega þýðingu fyrir hið nýfædda barn og móður þess líka að hún sé heima hjá því, geti haft það á brjósti og sinnt því sjálf. Við skulum viðurkenna að þetta gerist ekki hjá þeim konum, sem eru háðar þeim atvinnutekjum sem þær hafa haft, nema þær haldi þessum sömu tekjum á meðan á fríi vegna barnsburðar stendur. Mér dettur ekki í hug að halda að sú kona, sem sinnir að öllu leyti heimilisstörfum sínum og þótt hún hafi þunga starfsbyrði og sé heima hjá barni sínu sem hún hefur nýlega fætt, skilji ekki aðstöðu konu, sem aðeins tveim vikum eftir fæðingu á að standa upp á endann frá kl. 9 að morgni til kl. 6 að kvöldi, e.t.v. við afgreiðslu, og kannske örlítið lengur á meðan hún gengur frá í fyrirtækinu. Það getur verið á mismunandi þægilegum vinnustað, en alla vega sé um að ræða konu með langan og erfiðan vinnudag. Getur konan, sem heima er í þessu tilviki, þá séð ofsjónum yfir því að konan, sem framfærir heimili sitt af þessu erfiði, haldi launum á meðan hún er í fríi til þess að jafna sig eftir barnsburðinn eða sinna barni sínu? Það er harla ólíklegt. Ef ég er nýrisin upp frá barnsburði, þá dettur mér ekki í hug að halda að ég eigi kröfu til sams konar launa og konan úr frystihúsinu eða mjólkurbúðinni, sem er sama tíma að jafna sig eftir barnsburð og ég, ef ég hef haft tækifæri til þess að vera heima hjá mínu barni bæði fyrir og eftir fæðingu og ekkert sérstakt er sem knýr mig út á vinnumarkaðinn. Mér dettur ekki í hug að halda að ég eigi rétt til þess sem hin konan vinnur fyrir. Og hún á sama rétt til þess þegar hún er í barnsburðarfríi að halda sínum launum eins og ef hún liggur í inflúensu. Dettur nokkrum í hug að halda því fram að það sé ranglæti gagnvart heimavinnandi konum eða bændakonum að kona, sem vinnur við ræstingu, í verslun eða á skrifstofu, haldi launum sínum þegar hún liggur þrjár vikur í hálsbólgu? Er það ranglæti gagnvart konu sem vinnur að öllu leyti á heimili sínu? Það er það ekki. Það er um tvö mál að ræða. Hitt er rétt, að það þarf vissulega að styðja og styrkja þær konur sem verja ótrúlega löngum vinnudegi í að sinna heimili sínu af alúð og hugsa um fjölda barna sinna og eiga mjög erfiða aðstöðu. Það er gert með svokölluðum fæðingarstyrk.
Það kann að vera að þetta nafn, fæðingarorlof, hafi nokkuð verkað til þess að drepa þessu máli á dreif. Það, sem hér er um að ræða, er aðeins að það séu metin lögmæt forföll frá vinnu á vinnumarkaðnum að kona fái frí til barnsburðar og til þess að sinna barni sínu um nokkurn tíma. Þessi kona þarf líka að sinna heimili sínu og öðru því sem til fellur eins og konan sem heima er. Við megum ekki láta þessi tvö mál spilla hvort fyrir öðru. Hitt er annað, að ég er sannfærð um að það er rétt að konur, sem vinna að framleiðslustörfum, t.d. í landbúnaði, eiga vafalaust hægara með að ná réttarbótum að þessu leyti til þegar lögleitt hefur verið að það séu lögmæt forföll og að laun séu greidd í fæðingarfríi öllum þeim konum sem laun taka fyrir vinnu sina, sé um að ræða föst laun eða fullt starf.
Þetta var um þá röksemd, að þetta mál sé of smátt og sagt er að það nái ekki til nægilega margra. Við höfum hér á borðum okkar félagsmálasáttmála Evrópu sem okkur er ætlað að samþykkja að fullgiltur verði fyrir Íslands hönd. Í þessum félagsmálasáttmála er eitt ákvæði, sem segir að lögleitt skuli fæðingarorlof í minnst 12 vikur og er þá tekið þar fram að um sé að ræða almannasjóð eins og þessi er með nokkrum hætti.
Ef vikið er að hinni röksemdinni, að þetta mál sé allt of stórt til þess að sjóður eins og Atvinnuleysistryggingasjóður ráði við það, og farið að ræða um þetta mál eins og part af samgöngumálum eins og hv. 5. þm. Vestf, gerði, þá skýtur þar líka mjög skökku við. Stærð þessa máls hefur verið mjög ýkt, og umsögn Atvinnuleysistryggingasjóðs, sem margir hv. þm. taka mið af, byggist á því að hér sé um að ræða miklu fleiri konur en upplýsingar, sem ég hef nú í höndum, benda til. Umsögn stjórnar Atvinnuleysistryggingasjóðs ber þess óneitanlega merki að að henni hefur ekki staðið einn stjórnarmaður í Atvinnuleysistryggingasjóði sem er mikill áhugamaður um framgang þessa máls og raunar einn af flm. þess, hv. 8. þm. Reykv. Hann kom því ekki við að vera á þessum fundi, var hér í Alþ. að sinna nefndarstörfum í sjútvn. að ég held, og vissulega gætum við búist við því að þessi umsögn hefði verið öðruvísi ef hans atbeina hefði notið við á þessum fundi.
Nú er það svo að margir hv. þm. hafa lýst því yfir að þeir muni þrátt fyrir ýmsa agnúa, sem þeir sjá á þessu máli, fylgja því við lokaafgreiðslu, — eða svo hefur mér skilist — en vilja nú samt vekja athygli á hve geysilega erfitt sé að leiða þetta sjálfsagða réttaratriði í lög, með því m.a. að leggja til að framlag atvinnurekenda til Atvinnuleysistryggingasjóðs sé hækkað úr 1% af launum í 1.9%. Hvað þýðir þetta? Þetta þýðir það að flm. þessarar till. ætla sér að nota þessar fáu konur, sem eru þær konur sem vinna lægst launuðu og erfiðustu störfin á vinnumarkaðnum, sem svipu á atvinnurekendur. Þeir ætla að segja við atvinnurekendur: Það er þessum konum að kenna að það verður að skattleggja ykkur að nýju. — Þegar konur eiga í hlut, þá haga þeir, sem þykjast bera hagsmuni þeirra mest fyrir brjósti, sér svona gagnvart þeim. En ef um er að ræða alls kyns greiðslur og af ólíkustu tegundum sem lagðar hafa verið á Atvinnuleysistryggingasjóð, þá heyrast ekki þessar röksemdir. En þegar komið er að því að leysa úr vanda þeirra kvenna, sem eiga erfiðast með að reka réttar síns í kjaramálum, sem hafa reynt það í 20 ár án árangurs, þá stendur upp hv. 3. þm. Reykv. og flytur till. í þingi um að þetta skuli kosta það að atvinnurekendur næstum tvöfaldi iðgjöld sín til Atvinnuleysistryggingasjóðs. Halda hv. þm. að slík afstaða bæti aðstöðu þessara kvenna gagnvart atvinnurekendum eða á vinnumarkaðnum ef á að kenna þeim um það að það verði að tvöfalda framlag atvinnurekenda í þennan sjóð?
Sama verður upp á teningnum að því er varðar ýmsa aðra hv. þm. Menn segja að það sé óviðfelldið að afgreiða þetta mál utan samninga mál, er varða Atvinnuleysistryggingasjóð, hafi alltaf verið afgreidd með samningum. Er þetta nú rétt? Þetta er ekki rétt. Mikilvæg breyting á lögum um Atvinnuleysistryggingasjóð var gerð þegar lögleidd var breyting á yfirstjórn hans. Annað er líka sem orkar mjög tvímælis í þessari fullyrðingu, því að um það er að ræða að stærstu breytingarnar að því er varðar fjárgreiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði hafa gerst fyrir atbeina ríkisstj. Og hvaða samningsaðstaða er það sem ríkisstj. hefur gagnvart sjóði sem ríkið greiðir helminginn af tekjunum í? Auðvitað er ekki hægt að kalla þá aðstöðu samningsaðstöðu á jafnréttisgrundvelli. Það er einfaldlega svo að ríkisstj. hafa verið eins djarftækar til þessa sjóðs og raun er á vegna þess að sjóðurinn hefur verið svo öflugur. En þegar þær konur, sem verst eru settar í atvinnulífinu, leita réttar síns með því að lagt er til að þessi skylda sé felld á þann sjóð, sem viðurkennt er að er eign launþegasamtakanna, og það á að nota tekjur þessa sjóðs, örlítinn part af þeim, til að veita þeim sjálfsagða kjarabót, þá hika menn við. Menn keppast við að segja: Það er auðvitað sjálfsagt að leysa þetta mál og ég fylgi því — mikil ósköp, en bara ekki samþykkja þetta mál.
Það hafa liðið 20 ár og menn segja: Auðvitað viljum við að konurnar hafi fæðingarorlof. — Ef þetta mál verður ekki samþykkt geta eins liðið önnur 20 ár. Við erum eina landið á Norðurlöndunum sem ekki hefur haft manndóm í sér til að lögleiða þessa kjarabót — og þótt miklu viðar væri leitað. Það er verið að ganga frá upplýsingum um réttarstöðu kvenna á öllum Norðurlöndum núna. Þessar upplýsingar eiga að vera uppístaða í farandsýningu sem á að sýna á öllum Norðurlöndunum á mörgum stöðum og í mörgum löndum heims. Menn hafa sagt hver við annan fullir af stolti: Þarna verður hlutur Norðurlanda glæsilegur því að Norðurlönd standa framarlega í félagslegu öryggi og í jafnréttismálum karla og kvenna. — Hver verður hlutur Íslands? Ef þetta mál verður ekki samþykkt hér á Alþ. kemur til með að vera eyða í reit Íslands þar sem getið er um sjálfsagðar réttarbætur fyrir konur og sjálfsagðar réttarbætur þjóðfélagsins fyrir nýfædd börn.
Ég verð að segja að mér sýnist það ekki vera rétt, sem hv. 4. þm. Austf. sagði hér áðan, að við þurfum miklu lengri tíma til að hugsa um þetta mál. Ég spyr: Er þetta í fyrsta sinn sem þessi skynsami, réttsýni hv. þm. heyrir minnst á fæðingarorlof kvenna? Ég veit ekki betur en að það sé full þörf á þessu í hans kjördæmi eins og annars staðar. Sé svo, þá held ég að hann ætti að verja eins og klukkustund til að kynna sér málið og jafnvel til að fylgjast hér með umr., og mundu þá kannske ljúkast upp augu hans fyrir því að þetta er mál sem hefur verið á döfinni áratugum saman. Og ég verð að játa að ég var svo einföld að mér datt ekki í hug annað en allir hv. þm. væru sammála um nauðsyn þess að málið fengi framgang. Ég hef alltaf haldið að það væri rétt, sem hv. þm. hafa oft sagt bæði innan þings og utan, að þeir væru raunverulega hlynntir þessu máli, ástæðan til þess að þetta væri ekki löngu komið í lög hefði verið sú að ríkissjóður hefði ekki haft bolmagn til þess að taka allt það stökk í einu að taka fæðingarorlof fyrir allar konur landsins inn í lög um almannatryggingar. Hugmyndir um það hafa verið uppi öðru hverju hér á Alþ. s.l. 15 ár a.m.k. Það hefur aldrei verið hægt vegna þess að almannatryggingakerfið hefur ekki haft bolmagn til þess og síst nú. Við höfum ekki haft nægilega háar ýmsar bætur aðrar í almannatryggingum og þess vegna vitum við það, þó að það væri glæsilegt að koma á kjósendafundi og segja: Ég vildi fá þetta fyrir allar konur — full 3 mánaða laun fyrir allar konur hvar sem þær vinna, en þm. aðrir voru bara svo slæmir að þeir vildu ekki samþykkja þetta. — Þetta væri ósköp vel hægt að segja, en mér er alveg ljóst, að það hefði ekki verið hægt, og ég kæri mig ekki um að reyna — og hef ekki gert það — að flytja mál um þetta atriði nema ég teldi að það væri nokkurn veginn einsýnt að hægt væri að ljá því fylgi. Ég taldi að svo væri þegar okkur hafði hugkvæmst sjóður sem með rökréttum hætti stæði þarna á bak við, hann væri fjármagnaður af atvinnurekendum sem sumir hverjir telja að eigi að standa undir þessum greiðslum beint. En við horfumst í augu við það að þeir hafa ekki bolmagn til þess. Þess vegna er það svo að sjóður, sem fjármagnaður er af atvinnurekendum, sveitarfélögum og ríki sameiginlega, er eini sjóðurinn sem með rökréttum hætti getur staðið þarna á bak við að því er þennan hóp varðar. Hitt er mér ljóst, að það eru ekki sömu rök fyrir því að þessi sjóður standi á bak við fæðingarorlof í öðrum stéttum kvenna. Mér er alveg ljóst að sá vandi er eftir að því er varðar þær sem ekki starfa á almennum launamarkaði, og fæðingarstyrkur til þeirra þyrfti sannarlega að vera hærri en hann er. En það þyrfti að leysa með öðrum hætti. Ég hef vakið athygli á því áður að í öðrum löndum er fæðingarorlof — ef við notum orðið fæðingarorlof — til þeirra kvenna, sem eru ekki launþegar á almennum vinnumarkaði, fjármagnað í frjálsum tryggingum innan almannatrygginga hvers lands, sjúkratryggingadeildar venjulega, og þá er það fjármagnað með iðgjöldum þeirra sem um er að ræða.
Ég held, herra forseti, að ég hafi getið um helstu atriði sem ég vildi koma á framfæri til leiðréttingar á ýmsu því sem hér hefur verið sagt um þetta mál. Mér er ljóst að tími þingsins er orðinn naumur. Tími þingsins er takmarkaður. En mér er jafnljóst hitt, að nái þetta mál ekki fram að ganga er sómi þingsins takmarkaður.