12.05.1975
Neðri deild: 84. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3915 í B-deild Alþingistíðinda. (3107)

220. mál, atvinnuleysistryggingar

Gunnlaugur Finnsson:

Herra forseti. Það hafa orðið miklar og langar umr. um þetta mál hér á Alþ. og af beggja hálfu verið lagður mjög mikill þungi í málflutninginn. Því hefur verið dróttað að mönnum að þeir hafi mælt um hug sinn þegar þeir hafa sagt að þeir væru hlynntir málinu í eðli sínu, en séu ekki reiðubúnir til þess að greiða götu frv. hiklaust nú á síðustu dögum þingsins. Ég hef hlýtt á þessar umr. með mikilli athygli, og ég verð að segja það að enda þótt mér kunni eins og öðrum að verða borið það á brýn að mæla hér um hug minn, þá er ég hlynntur þessu máli, en ég hef verið meðal þeirra sem efast um að málið sé nægilega undirbúið til þess að við getum afgr. það hér og nú.

Mér finnst að fram hafi komið nokkrar athugasemdir, sem mér finnst ástæða til að minnast örlítið á, m.a. hjá hv. síðasta ræðumanni og hv. 4. þm. Reykn., Jóni Skaftasyni. Það hefur verið bent á að þetta væri verðugra verkefni en t.d. að lána til félagsheimila úti um land. Í fljótu bragði virðist þetta næsta eðlileg athugasemd. En ég vil leyfa mér að minna á að þegar atvinnuleysistryggingalögin voru sett í upphafi, þá var gert ráð fyrir því að þessi sjóður yrði ávaxtaður í öllum landshlutum, hann yrði ávaxtaður og varðveittur á þeim stöðum þar sem iðgjöldin voru til hans greidd. Og á sama hátt og lítið er á þennan sjóð sem eign verkalýðshreyfingarinnar, þá var til þess ætlast að verkalýðsfélögin á hverjum stað hefðu áhrif á og gæfu umsagnir um hvernig fjármunum sjóðsins yrði varið. Í framkvæmd var þetta þannig að það voru ekki nema tiltölulega mjög fá verkalýðsfélög sem fengu fé sjóðsins til varðveislu og ávöxtunar í sínu heimahéraði. En hins vegar var fé Atvinnuleysistryggingasjóðs ráðstafað af stjórn hans sem var hér í Reykjavík. Og stjórnin hefur alltaf haft þá skoðun, að því er ég best veit, að henni bæri þess vegna skylda til að ávaxta féð að nokkru með tilliti til þess hvaðan það var runnið. Þess vegna hefur það jafnan verið að mínu mati álit stjórnarinnar að sjóðnum bæri skylda til þess, jafnframt bótagreiðslum sem að sjálfsögðu fara um allt land eftir atvikum, að styrkja bæði atvinnufyrirtæki úti um landið og að styrkja félagslegar þarfir viðkomandi verkalýðsfélaga. Og það er nú svo að viða úti um landið eru verkalýðsfélögin einmitt aðilar að félagsheimilum og verkalýðsfélögin hafa notað Atvinnuleysistryggingasjóð til þess að hjálpa sér til þess að skapa þessa félagslegu aðstöðu fyrir sína félagsmenn.

Það hefur verið sagt hér að sómi Alþ. lægi við að þetta frv. yrði samþ. hér og nú. Það kann að vera nokkuð rétt í því. En ég verð þó að segja það, að ég held að sómi Alþ. yrði mun meiri ef við létum ekki daginn ráða, hvenær þetta mál yrði til lykta leitt, heldur að það verði tekið á þessum málum í heild. Ég tel nefnilega að nú sé grundvöllur fyrir því að leysa mál allra fæðandi kvenna í landinu. Og það kann að vera að þetta framtak flm. og málflutningur hafi einmitt leitt í ljós að nú er vilji fyrir slíku, og þeirra heiður yrði þá ekki lítill ef sá árangur næðist.

Að mínu mati má skipta honum eftir aðstöðu í 4 hópa. Í fyrsta lagi þær sem eru opinberir starfsmenn og hafa löngu náð þessum réttindum sem ákveðnu samningsatriði í kjörum opinberra starfsmanna. Og þar er það ríkið, sveitar- eða bæjarfélögin sem standa undir þessum greiðslum að öllu leyti. Í öðru lagi er sá hópur kvenna sem verið er að ræða um í sambandi við þessa lagasetningu, og ekki hafa notið þessara réttinda og ég tek fyllilega undir að eru mjög vel að því komnar og tími kominn til að þær njóti þessara réttinda. Í þriðja lagi nefni ég konur sem eru starfandi í atvinnulífinu, en ekki kæmu undir þessa tvo flokka sem ég hingað til hef nefnt, þ.e.a.s. konur sem starfa í landbúnaði. Það er nú svo að konur í sveitum eru allt frá því að starfa sem fullgildir bændur með meira en 8 stunda vinnudag alla daga ársins til þess að starfa sem hver önnur húsmóðir. En þó hygg ég að þær séu harla fáar sem vinna ekki meira eða minna að framleiðslustörfum. Og svo eru í fjórða lagi þær konur, sem eru húsmæður og gegna ekki öðrum störfum.

Við þurfum sem sagt að leysa mál þessara þriggja síðast nefndu hópa og frv. fjallar um að leysa mál hóps nr. 2. Ég,man ekki eftir því að það hafi verið lagður á þetta neinn sérstakur þungi í þeim umr. sem hafa farið fram á milli verkalýðsfélaganna og atvinnurekenda. Það kann að vera að það sé hægt að ná þar einhverju samkomulagi. Og þá er spurning um leið hvort ekki sé hægt að ná inn í slíkt samkomulag ákvæði með hliðsjón af væntanlegri lagasetningu, þannig að ef Atvinnuleysistryggingasjóður verður valinn til þess að standa undir þessum greiðslum, þá verði jafnframt gert ráð fyrir því að þessar greiðslur verði e.t.v. ákveðin deild í Atvinnuleysistryggingasjóði og þá hækkuð íðgjöld til sjóðsins bæði frá atvinnurekendum og ríki og e.t.v. sveitarfélögunum.

Ég tel að það sé einmitt upplagt að láta reyna á þetta í þeim samningaumræðum og viðræðum sem fram undan eru. Ég tel að jafnframt þyrfti að líta til þess hvort hægt væri að leysa þetta mál varðandi konur í sveitum. Rétt væri að leita til Stéttarsambands bænda, hvort það hefur ekki ráð til þess að mynda einhvern slíkan tryggingarsjóð, annaðhvort innan stéttarsamtakanna sjálfra eða í samráði við ríkisvaldið, þannig að þær gætu jafnframt komið undir þetta atriði.

En þá er það síðasta og e.t.v. veigamesta atriðið, og það eru þær húsmæður sem gegna ekki öðrum störfum en húsmóðurstörfum. Þar detta mér helst í hug almannatryggingarnar. Það er nú svo að ef við vildum setja þetta allt saman undir þær tryggingar, þá leggjum við þessar byrðar að öllu leyti á herðar ríkisins þar sem niður hafa verið felld persónuleg iðgjöld til trygginga.

Ég er ekki hrifinn af því að taka upp þátt úr tryggingakerfi annarra þjóða þar sem almennar lögbundnar tryggingar eru miklu skemur á veg komnar en hjá okkur, þar sem um er að ræða frjálsar tryggingar mismunandi bóta. Ég tel þess vegna að það væri vel viðunandi fyrir flm. frv. að þeir hafa náð þeim árangri og þeim yfirlýsingum sem hafa komið fram hér á þingi og að það yrði gengið út frá því sem vísu að sumarið yrði notað til þess að leysa þessi mál.

Ég hef sem sagt ekki blandað mér í þessar umr. hingað til en ég vil endurtaka það, að mér þykir að margt hafi komið hér fróðlegt fram undir umr., og ég vildi gera grein fyrir því hvernig ég líti á þessa hluti áður en til atkvgr. kæmi.