12.05.1975
Efri deild: 88. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3925 í B-deild Alþingistíðinda. (3125)

222. mál, Leiklistarskóli Íslands

Menntmrh. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Þetta frv. var flutt í Nd. Það tók nokkrum breytingum. Ég vil geta þess að ég er þeim samþykkur öllum saman. Nú standa þessi mál þannig, þ.e. leiklistarkennslan, að það eru tveir skólar starfandi hér í borg og báðir njóta þeir styrkja af ríkisfé. Þetta frv. miðar að því að koma fastari skipan á þessi mál, og miðað við það ástand, sem nú er og fyrirsjáanlegt væri ef ekki yrði hér breyting á, held ég að sé óhætt að segja að þetta frv. stefni ekki til neinna stórra útgjalda fyrir ríkissjóð.

Ég leyfi mér, herra forseti, að leggja til að frv. verði vísað til hv. menntmn. og vil jafnframt vænta þess að hv. n. geri sitt til að greiða fyrir afgreiðslu þessa máls eftir því sem auðið er.