27.11.1974
Neðri deild: 12. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 426 í B-deild Alþingistíðinda. (315)

40. mál, vöruhappdrætti fyrir Samband íslenskra berklasjúklinga

Tómas Árnason:

Herra forseti. Frv. til l. um breyt. á l. nr. 19 frá 1959, um vöruhappdrætti fyrir Samband ísl. berklasjúklinga, hefur verið lagt fram hér sem þskj. 43 af Vilhjálmi Sigurbjörnssyni sem gegndi varaþingmennsku í fjarveru minni. Þetta frv. gerir ráð fyrir breytingu á þessum l. að tvennu leyti til: í fyrsta lagi að 20% af nettóágóða vöruhappdrættis SÍBS renni til byggingar elli- og hjúkrunarheimila utan Reykjavíkur og Reykjanessvæðisins og í öðru lagi að heimildin til að reka happdrættið áfram verði framlengd til ársins 1984 í stað 1979 sem nú mun standa í lögunum.

3. gr. l. um vöruhappdrætti Sambands ísl. berklasjúklinga fjallar um það hvernig ágóða af þessari starfsemi skuli varið, og hljóðar þessi gr. svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Heimild þessi gildir til ársloka 1969“ — stendur þar, en er nú 1979, hér er lagt til að heimildin verði framlengd til ársins 1984. — „Ágóða af happdrættinu skal varið til að greiða stofnkostnað við byggingarframkvæmdir vinnuheimilisins að Reykjalundi, til byggingar og rekstrar vinnustofu fyrir öryrkja og til annarrar félagsmálastarfsemi Sambands ísl. berklasjúklinga sem viðurkennd er af ríkisstj.“

Eins og ég gat um áðan, þá er lagt til að hluti af þessum ágóða, nettóágóða, verði varið sérstaklega til byggingar elli- og hjúkrunarheimila utan Reykjavíkur og Reykjanessvæðisins.

Það er alkunnugt að SÍBS hefur ráðist í mörg og mikilvæg verkefni á undanförnum mörgum árum, og þar hefur verið unnið mikið þjóðnytjastarf eins og kunnugt er og mikill dugnaður margra sem þar hefur komið við sögu. Þeir hafa verið bæði bjartsýnir og djarfir í sínu starfi, enda hefur árangurinn orðið í samræmi við það. Menn hafa notið verka Sambands ísl. berklasjúklinga hvarvetna af landinu, eins og kunnugt er, og dvalið hér syðra þó að þeir væru búsettir víðsvegar um landið. Síðan berklaveikinni var að mestu útrýmt, sem hefur verið stórkostlegt átak og hefur vakið athygli — ég vil nú ekki segja um allan heim, en það hefur vakið athygli víða um lönd og oft til þess vitnað af erlendum gestum, sem sækja Ísland heim, hversu merkilegt starf hefur verið unnið á þessum vettvangi, — en síðan berklaveikinni hefur að mestu verið útrýmt, þá hefur SÍBS beint starfi sínu að rekstri vinnustofu og endurhæfingarstöð fyrir lamaða og sjúka.

Það fer auðvitað ekkert á milli mála að hér er um mjög merkilegt starf og nauðsynlega starfsemi að ræða, og þarf ekki að fara fleiri orðum um það. Á hitt ber að líta, að það hefur verið vaxandi vandamál úti á landsbyggðinni að skort hefur fjármagn til þess að ráðast í byggingar elliheimila og hjúkrunarheimila viða um landið. Á seinustu árum hefur dregið úr fólksflutningum til höfuðborgarsvæðisins. Árið 1973 var það staðreynd að fólksfjöldi óx meira úti á landsbyggðinni heldur en á höfuðborgarsvæðinu. Þetta ár, 1973, er í þessu tilliti eins konar vatnaskilaár, merkilegt ár að því leyti að þá fjölgaði fólki meira úti um landsbyggðina heldur en hér á höfuðborgarsvæðinu.

Fólksflutningarnir, sem átt hafa sér stað í landinu á undanförnum áratugum, hafa verið eitt mesta vandamál við að fást í íslensku þjóðlífi. Margar sveitir og mörg byggðarlög hafa mjög grisjast í búsetu á undanförnum árum, og það hefur valdið stórkostlegum vandamálum í vaxandi mæli viða úti um landið. Þess vegna eru það gleðitíðindi, að breyting hefur orðið á þessari þróun, og lífsnauðsyn að hún haldi áfram.

Nú var það svo meðan fólksstraumurinn var mestur til höfuðborgarsvæðisins utan af landsbyggðinni, þá var það sérstaklega yngra fólkið sem fluttist úr heimahögunum og til höfuðborgarinnar eða í nágrenni við hana, setti þar niður heimili og tók sér búfestu. Þá varð reyndin sú að gamla fólkið, eldra fólkið, fluttist gjarnan á eftir börnum sínum, á eftir unga fólkinu til Reykjavíkur til þess að eyða ellinni í nágrenni og í samvistum við börn sín. Með þeirri breytingu, sem ég var að lýsa áðan, á búsetu eða flutningum hefur það gerst nú í auknum mæli að unga fólkið sest að í heimahögunum og þess vegna vill náttúrlega eldra fólkið einnig eyða ellinni á þeim slóðum. Þess vegna hefur þörfin fyrir byggingu og rekstur elliheimila og hjúkrunarheimila farið vaxandi úti á landsbyggðinni nú á allra seinustu árum.

Hér er lagt til að nokkrum hluta af hreinum ágóða happdrættis Sambands ísl. berklasjúklinga verði varið í því skyni að reisa elli- og hjúkrunarheimili úti um landsbyggðina. Nú er það vitað að sveitarfélögin eru yfirleitt vanmáttug í því að reisa slík mannvirki. Það kostar geysilegt fé og er mikið vandamál, ekki aðeins á þeim stöðum úti á landi sem eru að vaxa, að reisa nýjar byggingar. Þetta er einnig vandamál á þeim stöðum sem hafa búið við elliheimili og hjúkrunarheimili í húsnæði sem er algerlega úr sér gengið og þarf að endurnýja. Mér dettur í hug dæmi eins og t.d. á Seyðisfirði þar sem hefur verið rekið elliheimili og sjúkrahús í líklega 70 ár eða eitthvað um það bil. Nú eru þessi húsakynni þannig að menn eru hræddir um það, mjög hræddir um að þau verði dæmd ónothæf af heilbrigðisyfirvöldum, og þess vegna þarf að ráðast í að byggja nýtt. En þetta kostar gífurlegt fé og menn hafa auðvitað miklar áhyggjur af því hvernig hægt verði að ráða við svo stór verkefni.

Ég vil hins vegar taka það fram, eins og kemur raunar fram í grg. frá flm., að fjárþörf á vettvangi Sambands ísl. berklasjúklinga er sjálfsagt brýn. Það dreg ég ekki í efa. En með tilliti til þess að hér er um að ræða fjáröflun á landsvísu, þ.e.a.s. landshappdrætti, þá virðist ekki óeðlilegt að nokkur hluti af þessari fjáröflun renni til þess verkefnis sem ég hef verið að lýsa og er brýnt viða úti um landsbyggðina.

Ég sé ekki ástæðu til að hafa fleiri orð um þetta frv. og legg til, að því verði vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.