12.05.1975
Neðri deild: 85. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3945 í B-deild Alþingistíðinda. (3173)

281. mál, aðsetursskipti

Frsm. (Ellert B. Schram):

Herra forseti. Þetta frv. til l. er flutt af allshn. að beiðni Hagstofu Íslands. Ákvæði þessa frv. er tiltölulega einfalt, miðar að því að auka svigrúm Hagstofunnar til að ljúka árlegri framfærslu þjóðskrár fyrir áramót. Gert er ráð fyrir að þeir, sem hafa í hyggju að flytja á tímabilinu frá 16. nóv. til 1. des. á ári hverju, skuli tilkynna það eigi síðar en 15. nóv., enda liggi þá fyrir hvert menn flytja. Með þessu mundi lokaátak til árlegrar framfærslu þjóðskrár geta hafist þegar um miðjan nóv. eða tveimur vikum fyrr en hingað til. Af þessu leiddi að unnt yrði að draga verulega úr yfirvinnu við framfærslu þjóðskrár í nóv. og des.

Annar ávinningur af þessari breyttu tilhögun er sá að með henni ættu vinnuóhöpp á Hagstofunni, sem alltaf eru möguleg, ekki að geta leitt til þess að þjóðskráin verði of seint tilbúin til nauðsynlegrar skattvinnslu í janúarmánuði.

Frv. felur ekki í sér neina nýja kvöð á almenning, en tilgangurinn með breyt. er sá einn að heimila að lokað verði fyrir árlega móttöku aðseturstilkynninga um miðjan nóv. í stað þess að halda henni áfram til 1. des. eins og skylt hefur verið að gera hingað til.

Það skal tekið fram að nm. hafa óbundnar hendur um afgreiðslu málsins.

Ég legg til, herra forseti, að málinu verði vísað til 2. umr.