12.05.1975
Neðri deild: 85. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3946 í B-deild Alþingistíðinda. (3175)
263. mál, aðstoð við vangefna og fjölfatlaða
Flm. (Ragnhildur Helgadóttir):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja þáltill., þótt mjög sé orðið áliðið þings, þess efnis að Alþ. skori á ríkisstj, að undirbúa ráðstafanir til þess að auka hjálparstofnanir fyrir vangefna og fjölfatlaða svo og hjúkrunarrými fyrir þá sem haldnir eru þessum vanheilindum á mjög háu stigi.
Ég skal skýra frá því strax að tilefni þessarar till. er ákveðið mál sem vakin var athygli á í fjölmiðlum nú ekki alls fyrir löngu. Svo er mál með vexti, eins og hv. þm. er kunnugt, að farið var í skaðabótamál gagnvart ríkinu af hálfu konu sem fætt hafði mjög vanheilt barn sem hún hafði gengið með er hún hafði fengið rauða hunda í faraldri sem þá gekk yfir landið. Nú ætla ég alls ekki að fara að ræða rök með og móti þeim margumrædda hæstaréttardómi sem féll í þessu máli. Tilefni þess, að þessi till. er flutt, eru hins vegar þeir möguleikar sem börn, vanheil eins og þetta barn, hafa í okkar þjóðfélagi. Það hefur sem sé komið á daginn að foreldrar þessa barns hafa reynt að fá ýmiss konar fyrirgreiðslu, kennslu og umönnun við þess hæfi, en sannleikurinn er sá að fötlun þess er svo saman sett, ef svo má að orði kveða, að það virðist ekki beinlínis eiga heima á neinni stofnun sem til er í þjóðfélagi okkar. Þetta hljómar ákaflega ótrúlega og undarlega. En sagan af baráttu þessara foreldra fyrir því að fá viðeigandi umönnun og aðhlynningu fyrir barn sitt hlýtur að vekja mann til umhugsunar um að það er veruleg þörf á því að auka rými á hjálparstofnunum fyrir foreldra barna eins og þarna um ræðir.
Í raun er hér um að ræða að það vantar stórlega aðstoð við þá foreldra sem hafa vanheil börn á heimilum sínum. Það er alkunna að foreldrar leggja mikið á sig til þess að annast slík börn sjálfir. En hversu mikil umhyggja sem þeim er í té látin og hversu mikla ást sem þessir foreldrar bera til barna sinna, þá er það svo að þreki þeirra verður stundum ofboðið og þá er ekki um annað að ræða en að leita til vistheimila þeirra sem þjóðfélagið hefur að bjóða. Það er ein lausn í þessu máli sem gæti orðið verulega til að létta undir með slíku fólki, en það er að til væri staður í landinu þar sem hægt væri að vista slík vanheil börn um skamman tíma í senn til þess að létta á því álagi sem foreldrarnir hafa af þessari umönnun og raunar heimili þeirra yfirleitt. Þó ekki væru nema nokkrir dagar í senn sem slíkt heimili gæti tekið við vanheilu barni þá mundi það í mörgum tilvikum afstýra því að foreldrar, sem annast vanheil börn sín heima, gæfust hreinlega upp. Þetta er mér vel kunnugt af upplýsingum foreldra sem svona er ástatt um, þótt að sönnu sé það ótrúlegt hve mikið erfiði þetta fólk getur á sig lagt til þess að hjálpa börnum sínum til nokkurs þroska.
Þetta var önnur hlið þessa máls. Hin hliðin er sú að það er þó nokkuð til af einstaklingum, sem eru svo geysilega fatlaðir, auk þess að vera vangefnir, að það eru ekki til hjúkrunarrými í vistheimilum vangefinna sem geta fullnægt þörfum þessa fólks. Það geta verið til einstaklingar sem bæði eru vangefnir og lamaðir, auk þess ef til vill mállausir eða heyrnarlausir eða blindir, allt saman. Þetta fólk þarf svo flókna og mikla hjúkrun að það er ekki hægt að komast hjá því að mínum dómi að sinna þörfum þessa hóps með því að auka nokkuð það rými sem til er í landinu fyrir slíkt fólk.
Ég held að þetta sé mjög aðkallandi verkefni sem af einhverjum ástæðum hefur tæpast verið vakin nægilega mikil athygli á. Ég held að ríkisstj. vilji vissulega gera allt hið besta í þessu máli, en þó sýnist mér vera fyllsta þörf á því að Alþ. veiti líka aðhald í þessu máli að þarna verði nokkuð um bætt.
Mér er alveg ljóst að það er mjög hæpið að mál þetta fái í báðum deildum algjörlega þinglega meðferð, en ég vil freista þess og óska að því verði vísað til n. og að það komist a.m.k. í gegnum þessa hv. d. ef n. sýnist svo. Alla vega tel ég tímabært að vakin sé athygli á þessum sérstaka vanda hér á Alþ. í þeirri von að hv. þm. hafi það í huga næst þegar unnt reynist að stuðla að því að möguleikar á þessu sviði verði bættir.
Ég leyfi mér að leggja til, herra forseti, að umr. um málið verði frestað og því vísað til heilbr: og trn.