12.05.1975
Neðri deild: 85. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3952 í B-deild Alþingistíðinda. (3182)

274. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins

Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen):

Hæstv. forseti. Í gildandi lögum er veitt heimild til þess fyrir húsnæðismálastjórn að veita lán út á notaðar íbúðir eða íbúðir sem eru ekki nýjar. Þó má hámark þeirra lána ekki vera meira en 80 millj. kr. á ári. Þessi upphæð hefur staðið óbreytt ífáein ár og er nú brýn þörf á að breyta henni. Eftirspurn og þörf er mikil til þess að greiða betur en nú er unnt fyrir því að menn geti keypt og fengið lán út á slíkar íbúðir. Í þessu frv. er gert ráð fyrir að hækka þessa fjárhæð úr 80 millj. kr. upp í 160 millj. Frv. var lagt fyrir hv. Ed. og samþ. þar. Ég legg til að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. félmn.