27.11.1974
Neðri deild: 12. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 433 í B-deild Alþingistíðinda. (319)

41. mál, happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna

Ragnhildur Helgadóttir:

Herra forseti. Við umr. um þetta mál vaknaði sú spurning hvort ekki væri ástæða til að vekja athygli á einu sérstöku atriði sem ég tel mjög aðkallandi og snertir það mál sem hér er á dagskrá. Hér liggur fyrir frv. þess efnis að nú skuli 70% ágóða af happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna ganga til byggingar dvalarheimila aldraðs fólks og sjómanna í Reykjavík og nágrenni og 30% til elli- og hjúkrunarheimila í sjávarbyggðum utan Reykjavíkur og Reykjaneskjördæmis. Þetta er að sjálfsögðu mjög þarft og góðra gjalda vert. En þess var getið í ræðum beggja þeirra hv. þm., sem þegar hafa lokið máli sínu, að hluta af tekjum þessa happdrættis skyldi varið til Byggingarsjóðs aldraðs fólks. Ég get ekki að því gert að það mál og þau ummæli vekja upp hugsanir hjá mér, sem raunar brutust um í kolli bæði mínum og hv. 8. þm. Reykv. fyrir allmörgum árum, er við unnum sameiginlega að því að semja frv. um Byggingarsjóð aldraðs fólks. Ég get játað það hér og nú að það, sem fyrst og fremst vakti fyrir mér, var að finna tekjur sem sérstaklega væri hægt að verja til að styrkja fólk til að byggja hentugar einstaklingsíbúðir við hæfi aldraðra. Einnig var þá hugsað að slíkar íbúðir gætu verið jafnt við hæfi aldraðra og öryrkja.

Nú er það svo að ef frv. eins og þetta, sem hér liggur fyrir, er samþ., þá eru allar tekjur happdrættis Dvalarheimilis aldraðra sjómanna bundnar við að styrkja byggingu stofnana. Ég hygg að öllum sé það mætavel kunnugt að mál þessi hafa á undanförnum tveimur áratugum meir og meir þróast í þá átt að mönnum sé ljóst að það, sem nauðsynlegast sé eða a.m.k. mjög nauðsynlegt, sé að gera fólki kleift að búa sem lengst í hentugum einstaklingsíbúðum án þess að leita til stofnana. Þetta hefur vitanlega eins og margt annað í okkar þjóðfélagi strandað á fjárskorti. Við vitum að húsnæðislánakerfið hefur haft ærnum verkefnum að sinna sem það hefur engan veginn komist yfir, svo að ekki náði það þessum tilgangi að bæta þessu verkefni einfaldlega inn í lög um það. Þess vegna var reynt að fara inn á þá leið að koma á fót sérstökum byggingarsjóði í þessu skyni.

Nú er mér ljóst að á undanförnum árum hefur verkefni þessa sjóðs í raun farið æ meira inn á það svið að styrkja stofnanir, veita þeim fyrirgreiðslu, hvort heldur er á vegum sveitarfélaga eða aðila sem sveitarfélög viðurkenna. Það, sem hér vantar og væri mjög æskilegt að hv. n. hefði í huga við afgreiðslu þessa máls, er hvort ekki væri unnt að flytja verkefni þessa sjóðs, ef honum yxi nú fiskur um hrygg sem sannarlega þyrfti að vera, meira inn á það svið að greiða fyrir byggingum einstaklingsíbúða. Við höfum heyrt hverja ræðuna á fætur annarri um þörfina á því, ár eftir ár, en það, sem vantar, er fyrst og fremst fjáröflun. Ég vek athygli á því í þessu sambandi, að í 3. gr. l. um Byggingarsjóð aldraðs fólks er þess getið að tekjur sjóðsins séu í fyrsta lagi ágóði af happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna samkv. ákvæðum þar um í lögum um happdrættið og í öðru lagi frjáls framlög eða aðrar tekjur sem til kunna að falla. Mér vitanlega hefur verið lítið um þessi frjálsu framlög og þaðan af minna um aðrar tekjur sem kunna að hafa fallíð til. Í þriðja lagi eru vaxtatekjur. Á þessu öllu þyrfti að ráða verulega bót til þess að hægt væri að sinna því verkefni sem er ekki síður nauðsynlegt en reisa umræddar stofnanir, sem sé að reisa íbúðir við hæfi aldraðs fólks og gera því kleyft að búa í þeim.