13.05.1975
Sameinað þing: 77. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3963 í B-deild Alþingistíðinda. (3210)
191. mál, jarðhitarannsóknir við Varmahlíð
Fyrirspyrjandi (Pálmi Jónsson):
Herra forseti. Á þskj. 380 hef ég leyft mér að bera fram svo hljóðandi fsp. til hæstv. iðnrh.:
„a. Hvaða rannsóknir hafa verið gerðar á jarðhitasvæðinu við Varmahlíð í Skagafirði?
b. Er vitað hvort þar er um að ræða fullnægjandi varmaorku fyrir nærliggjandi umhverfi, þar á meðal grænfóðurverksmiðju, sem ákveðin hefur verið í Vallhólmi?“
Tilefni þessarar fsp. er vitaskuld í fyrsta lagi að fá upplýst hvaða rannsóknir hafi verið framkvæmdar á þessu jarðvarmasvæði og hvort sú vitneskja, sem þar liggur fyrir, bendi til þess að um næga varmaorku muni vera að ræða fyrir byggðina, sem þarna er að rísa, og næsta nágrenni hennar, og svo ekki síður á hinn bóginn að fá um það vitneskju hvort þarna muni vera um að ræða nægan jarðvarma sem gæti orðið til notkunar þegar reist verður grænfóðurverksmiðja í Vallhólmi svo sem ákveðið hefur verið.
Fyrir nokkrum árum eða árið 1972 var staðfest áætlun um byggingu grænfóðurverksmiðja á landinu. Þar var gert ráð fyrir að byggðar yrðu þrjár nýjar verksmiðjur. Við eina er þegar nokkuð langt komið framkvæmdum, þ.e. í Flatey í Mýrahreppi í Austur-Skaftafellssýslu. Hinar tvær eru í Hólminum í Skagafirði og Saltvík í Suður-Þingeyjarsýslu og eru framkvæmdir þar hafnar, en ekki vitað hvenær þær muni taka til starfa vegna þess að fjármagn er nokkuð af skornum skammti til þessara framkvæmda. Hins vegar hefur það komið upp við hækkandi olíuverð að hagkvæmt kunni að vera að nota jarðhita til þurrkunar grænfóðursins, grassins, og þess vegna er mikilvægt að fá um það vitneskju hvort jarðhiti er nægur á þeim stöðum sem hér er um að tefla. Ég lít svo á að það sé mjög þýðingarmikið ef hægt verður að haga svo framkvæmdum í sambandi við byggingu þessara verksmiðja að nota megi innlenda orkugjafa og þá er frumskilyrði þess að af því geti orðið að fá vitneskju um magn þess jarðvarma sem fyrir hendi er.